Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvers konar kind er ókind?

Guðrún Kvaran

Orðið kind hefur fleiri en eina merkingu. Það er í almennu máli notað um sauðkindina en það er einnig notað um kyn og ætt og er þá í fleirtölu kindir. Forskeytið ó- er einkum notað til að tákna andstæðu og snúa við merkingu síðari liðar eins og til dæmis ánægðuróánægður, frelsiófrelsi. Það er einnig notað til að gefa orðum með hlutlausan síðari lið neikvæða merkingu eins og til dæmis kindókind, geðógeð.

Ókind merkir annars vegar ‘kynjaskepna, óvættur’ og hins vegar ‘óhræsi, ódámur’.

Ókind merkir annars vegar ‘kynjaskepna, óvættur’ og hins vegar ‘óhræsi, ódámur’. „Hættu að meiða hundinn ókindin þín,“ er dæmi um ókind sem gróft skammaryrði, sem varla heyrist lengur, en kind er eða var fremur notað sem gælandi við barn, til dæmis „Farðu nú að koma þér fram úr og klæða þig, kindin mín.“

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

1.2.2023

Spyrjandi

Þórarinn Jónmundsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvers konar kind er ókind?“ Vísindavefurinn, 1. febrúar 2023. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=84345.

Guðrún Kvaran. (2023, 1. febrúar). Hvers konar kind er ókind? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=84345

Guðrún Kvaran. „Hvers konar kind er ókind?“ Vísindavefurinn. 1. feb. 2023. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=84345>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...