Með misleitu efni, þar sem svonefndur ljósbrotstuðull (e. index of refraction) breytist með staðsetningu í efninu, verður tilveran fjölbreyttari en þegar brotstuðulinn er sá sami alls staðar í efninu. Þá svigna ljósgeislar á ferð sinni um efnið. Þar ...
NánarNýjustu svörin Öll nýjustu svörin
Vísindadagatal 29. mars
Vísindasagan
Johann Heinrich Pestalozzi
1746-1827
Svissneskur kennari og umbótamaður í skólamálum, hélt því fram að menntun væri persónuleg og höfðaði til innsæis hjá hverjum og einum. Hafði mikil áhrif á þróun skólamála á sinni tíð.
Dagatal hinna upplýstu
Te
Tedrykkja varð almenn í Kína líklega á 3. öld e.Kr. Kínverskar þjóðsögur greina þó frá upphafi tedrykkju mun fyrr, eða um 2700 f.Kr. Te barst líklega fyrst til Evrópu frá Japan og á 17. öld komst tedrykkja í tísku meðal evrópskra hástétta. Ef fersk blöð terunnans eru þurrkuð fæst grænt te en ef þau gerjast fyrir þurrkun verður til svart te.
Íslenskir vísindamenn
Ívar Örn Benediktsson
1978
Ívar Örn Benediktsson er sérfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskólans og aðjúnkt við jarðvísindadeild. Rannsóknir hans eru á sviði ísaldar- og jöklajarðfræði og snúa einkum að landmótun jökla og vexti þeirra og hnignun í tíma og rúmi í tengslum við loftslagsbreytingar.
NánarVísindafréttir
Svör um jarðvísindi og hagfræði mest lesin árið 2023
Svör um jarðvísindi og hagfræði raða sér í fimm efstu sæti þeirra svara sem birtust árið 2023 og mest voru lesin á Vísindavef HÍ. Að meðaltali heimsækja um sjö þúsund manns Vísindavefinn daglega og fletta þar tæplega níu þúsund síðum. Breiddin í l...
Nánar