Í heild hljóðaði spurningin svona:Er til eyja sem heitir Nýárseyja? Af því að það er til Jóla- og Páskaeyja.
Nýárseyja er til og raunar fleiri en ein. Á vefsíðunni Wikipedia eru taldar upp nokkrar Nýárseyjur (e. New Year Island). Ein þeirra er í Bass-sundi, mitt á milli Tasmaníu og Ástralíu, rétt við Konungsey...
Eins og fram kemur í Almanaki Háskólans og víðar er danskt fet 31,39 cm. Það er þannig ívið lengra en bresk-bandarískt fet (foot, fleirtala feet, skammstafað ft) sem er 30,48 cm. Tvö dönsk fet eru í danskri alin sem er 62,77 cm. Í bresk-bandarísku feti eru 12 þumlungar eða tommur (inch, fleirtala inches, skammstaf...
Þetta er almennt talið rétt. Betra væri þó að orða það þannig að við mundum aðallega nota tylftakerfi en ekki tugakerfi ef við hefðum tólf fingur.
Í þessu felst að talan sem við skrifum sem 10 hefur enga sérstaka kosti sem grunntala í talnakerfi aðra en þá sem tengjast sköpulagi mannsins. Sú tala sem hefur skýr...
Tvær tegundir kondóra eru þekktar í heiminum, þær er að finna í Suður- og Norður-Ameríku. Um er að ræða kaliforníukondórinn (Gymnogyps californianus) og andeskondórinn (Vultur gryphus) en hann er sérlega stór, með 3,5 metra vænghaf og 12 kg að þyngd.
Báðar þessar tegundir eru í mikilli útrýmingarhættu. Kaliforn...
Menn hafa lengi velt því fyrir sér hvort fílar hlaupi eða gangi þegar þeir fara hratt yfir. Þegar þeir eru á hraðferð er líkamsbeiting þeirra meira í ætt við hraða göngu en hlaup. Lengi vel var talið að fílsskrokkur þyldi ekki að hlaupa á sama hátt og önnur léttari dýr gera.
Ýmsir náttúrfræðingar hafa þó hrakið...
Rúsínur eru þurrkuð vínber. Oftast eru notuð steinlaus vínber svo ekki verða steinar í rúsínunum. Vínber eru sæt af náttúrunnar hendi og rúsínur þess vegna líka.
Þegar rúsínur eru þurrkaðar, til dæmis sólþurrkaðar, fer allt vatnið úr þeim. Þetta gerir þær krumpaðar. Ef þær eru svo geymdar lengi kristallast ...
Allar nauðsynlegar tilkynningar vegna hættu- eða neyðarástands eru lesnar í útvarpi. Mönnum er bæði bent á FM-sendingar og langbylgju (LW) Ríkisútvarpsins en hún nær um allt land og miðin einnig. Hægt er að lesa meira um FM- og langbylgjusendingar í Símaskránni á blaðsíðu 12.
Á heimasíðu almannavarna.is eru sér...
Skaftáreldar eru með frægustu eldgosum á Íslandi. Þann 8. júní 1783 hófst gos í Lakagígum í Vestur-Skaftafellssýslu og stóð það fram í febrúar 1784. Í þessu gosi kom upp mesta hraun sem runnið hefur í einu gosi á jörðinni síðasta árþúsundið. Heildarrúmál hraunsins er um 12 km3 og flatarmál þess 580 km2.
Gosinu ...
Áður en lengra er haldið er lesendum bent á að ágætt er að kynna sér svar sama höfundar við spurningunni Hvað eru pólskipti?
Það er ekki vitað til þess að pólskipti hafi orðið á sögulegum tíma, og ekki heldur frá lokum ísaldar fyrir um 12 þúsund árum. Það þekktasta af þeim mjög stuttu segulskeiðum sem nú er vit...
Ólífur (Olea europea) vaxa úr blómlegi á ólífutrjám og flokkast því sem ávextir. Upprunalega er ólífutréð frá svæðum við botn Miðjarðarhafs þar sem nú er Ísrael, Líbanon og Jórdanía og hefur ávöxtur þess verið notaður í þúsundir ára. Fyrir um 2.000 f. kr. komust Egyptar í kynni við ólífur og síðar Grikkir og er m...
Þanghafið nefnist einnig Sargassóhaf. Það dregur nafn sitt af lausu sargassóþangi sem flýtur um hafið í miklum breiðum. Þanghafið er hluti af Atlantshafi. Það er fyrir vestan Asoreyjar og nálægt Bermúda-eyjum, á mótum Golfstraumsins og Norðurmiðbaugsstraumsins.
Hér sést Þanghafið á korti.
Það voru líklega po...
Gjaldmiðill Rússlands kallast rúbla (RUB). Þegar þetta er skrifað, snemma í júní 2009, jafngildir 1 rúbla um það bil 4 krónum.
Orðið rúbla á hugsanlega rætur að rekja til rússnesku sagnarinnar рубить (rubit), sem þýðir að höggva. Fyrr á tímum var rúbla silfurmoli af ákveðinni...
Trúmál geta á ýmsan hátt haft áhrif á tungumál þjóðar. Helgirit varðveita oft eldri málstig og geta átt þátt í að varðveita orð, orðasambönd og ýmis málfræðileg atriði. Ef litið er til Íslands þá er saga íslenskrar biblíuhefðar orðin ærið löng. Elstu biblíutextar, sem þekktir eru, eru varðveittir í handriti Íslens...
Fyrstu merki um ketti eru 12 milljón ára. Um það leyti voru þeir í þrem höfuðflokkum: Skógarkötturinn
Afríski villikötturinn
Asíski eyðimerkurkötturinn
Fyrstu kettirnir voru hafðir sem húsdýr um 3000 árum fyrir Krist, þegar þeir voru notaðir til að verja korngeymslur Egypta fyrir nagdýrum. Þessir kettir urðu sv...
Svonefnd verksmiðjulög á Indlandi sem að stofninum til eru frá árinu 1948 en endurskoðuð 1987, kveða á um 48 stunda vinnuviku hjá fullorðnum. Þeir sem stunda skrifstofuvinna vinna að jafnaði 35-40 stunda vinnuviku.
Samkvæmt verksmiðjulögunum skal vinnutími takmarkast við 9 stundir á degi hverjum og að jafnaði e...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!