Í örstuttu máli þá getur þú ráðið því!
Hnettinum er skipt í 24 tímabelti sem hvert um sig tekur yfir 15 lengdarbauga og er grunnhugmyndin er sú að innan hvers tímabeltis sé klukkan alls staðar það sama. Tímabeltin fylgja þó ekki lengdarbaugunum alveg nákvæmlega því víða fara þau eftir landamærum þannig að sami ...
Austur er höfuðátt í kristinni trú.
Það var gamall siður að þegar fólk var komið á fætur að morgni dags gekk það út undir bert loft, sneri sér til austurs og signdi sig. Kallaðist þetta að sækja daginn. Í kirkjugörðum vísa grafir einnig í austur og vestur og horfir ásjóna hins látna mót austri. Á sama hátt hafa...
Bendistjörnurnar nefnast réttu nafni leiðarstjörnur á íslensku en á ensku kallast þær pointer stars. Leiðarstjörnur eru til í ýmsum stjörnumerkjum en þær vísa þá á aðrar stjörnur.
Þekktustu leiðarstjörnurnar eru líklega Dubhe (α Ursae Majoris) og Merak (β Ursae Majoris). Þær eru báðar í Karlsvagninum ...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:Fjögurra ára sonur minn spyr hvað orðið „kreik“ þýðir, sbr. „mig langar svo að lyfta mér á kreik“. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt orðið öðruvísi en í samhenginu „á kreik“ og hef skilið það sem „af stað“. Hvernig er þetta orð í nefnifalli, hver er merking þess og uppruni...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Er mögulegt að orðið „dandalast“ sé komið frá Enrico Dandolo, sem að var blindur og reið hesti í slagtogi með krossförum til Konstantínópel?
Þegar hefur verið skrifað um sögnina að dandalast á Vísindavefnum (sjá svar saman höfundar við spurningunni Hvaðan er orðið "danda...
Dr. Jane Goodall er ein merkasta vísindakona heims. Hún hefur helgað líf sitt náttúru- og dýravernd og er einna þekktust fyrir rannsóknir sínar á simpönsum.
Jane heldur opinn fyrirlestur í Háskólabíói miðvikudaginn 15. júní kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Í tilefni af heimsókninni bað...
Kaaba eða Ka'bah er steinkassi eða steinhús í miðri al-Haram-moskunni í Mekka. Ka'bah gegnir heilögu hlutverki hjá múslimum, enda telja þeir að Abraham hafi byggt það. Svarti steinninn í Mekka, sem einnig er heilagur, er greyptur í austurhorn Ka'bah. Þegar farið er í pílagrímsferð (hajj) til Mekka er nauðsynlegt ...
Í svari við spurningunni Hver er munurinn á stjórnmálaflokki og stjórnmálahreyfingu? segir um stjórnmálaflokka að þeir séu ólíkir öðrum samtökum að því leyti að þeir bjóða fram í almennum kosningum og hafi oftast nær það yfirlýsta markmið að vilja stjórna ríkisvaldinu. Í þessu svari er tekið mið af þessu og litið ...
Þann 3. febrúar 2020 var nýtt útlit tekið í notkun á Vísindavef HÍ, meðal annars í tilefni af 20 ára afmæli vefsins.
Á meðal helstu nýjunga eru að í haus Vísindavefsins eru nú eru aðgengilegar upplýsingar um sólargang og hvenær tunglið rís og sest í Reykjavík, auk upplýsinga um flóð og fjöru í Reykjavík. Þessi ...
Bandaríska skólakerfið er á margan hátt byggt öðru vísu upp en hið íslenska. Erfitt er að gera nákvæma grein fyrir því þar sem töluverður munur er á útfærslu milli mismunandi ríkja innan Bandaríkjanna. Þó má lýsa kerfinu í grófum dráttum miðað við það sem algengast er.
Skólaganga í Bandaríkjunum hefst yfirleitt...
Skilgreining á hugtakinu útrýmingarhætta felst í því hvort líkur séu á því að viðkomandi dýrategund deyi út í nánustu framtíð. Upplýsingar um ástand dýrastofna er að finna í svonefndri Red Data Book en það er gagnagrunnur sem samtökin IUCN standa að. Í þeim starfa hópur sjálfboðaliða, aðallega úr röðum náttúrufræð...
Tasmaníudjöfull (Sarcophilus harrisi, e. Tasmanian devil) er pokadýr sem eingöngu lifir á eyjunni Tasmaníu suður af Ástralíu. Hann sker sig nokkuð frá öðrum núlifandi pokadýrum þar sem hann minnir um margt á lítið bjarndýr. Tasmaníudjöfullinn er eini núlifandi fulltrúi meðalstórra ránpokadýra eftir að tasmaníutígu...
Eitt þekktasta og mannskæðasta sjóslys allra tíma varð 15. apríl árið 1912 þegar risaskipið RMS Titanic fórst með um 1.500 manns.
Titanic var á þessum tíma eitt stærsta gufuknúna farþegaskip í heimi. Skipið var 269 m langt og 28 metra breitt, eigin þyngd þess var 46.328 tonn en mögulegur heildarþungi skipsins,...
Margar sögur eru til af því að fólk hafi gránað snögglega í kjölfar áfalls en þetta hefur ekki verið staðfest með vísindalegum rannsóknum. Eins segja foreldrar oft að óþekkir krakkar séu að gera þá gráhærða. Undir eðlilegum kringumstæðum er grátt hár þó hvorki tengt áföllum né óþekkum börnum heldur afleiðing öldru...
Í örstuttu og einfölduðu máli þá bráðna jöklar ekki hraðar vegna þess að það er ekki hlýrra í veðri. Hins vegar finnst mörgum breytingarnar vera töluvert hraðar nú á tímum og spurning hversu eftirsóknarvert það væri að jöklar bráðnuðu enn hraðar.
Þegar árferði er stöðugt, það er að segja svipað frá ári til árs...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!