Ýmislegt getur orsakað mænuskaða, svo sem áverkar á andliti, hálsi, höfði, brjóstkassa eða baki. Slíkt getur hent eftir bílslys, lendingu á höfði, árekstur í íþróttum, fall úr mikilli hæð, eftir dýfingaslys, rafstuð eða mikinn snúning um miðju líkamans. Auk þess mætti nefna áverka eftir byssukúlu eða hnífsstungu.
...
Sjór er saltvatn. Í honum eru ýmiss konar sölt en það sem skiptir mestu máli er natrínklóríð sem er hvíta borðsaltið sem allir þekkja. Í hverju kílói af sjó eru gjarnan um 35 grömm af natrínklóðríði en það samsvarar því að sjórinn er 3,5% saltur. Líkamsvökvar okkar eru einnig saltir en selta þeirra er mikið minni,...
Í held sinni hljóðar spurningin svona:Ég hef hvergi rekist á þá skýringu að starfsheitið „víkingur“ kunni að vera tilkomið vegna þess að upprunalega hafi þessi „stétt“ fornmanna komið frá, eða þeir lagt upp frá Vík í Noregi. Er mögulegt að þetta kunni að vera skýringin?
Um uppruna orðanna víkingur og verknaðarh...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvernig býr maður til app, hvaða forritunarmál þarf maður að kunna til að gera það og hvað kostar að gera það?
Í þessu svari verður litið á hvernig búa má til smáforrit (e. app) fyrir síma með annars vegar Android-stýrikerfi (símar og spjaldtölvur frá Samsung, LG, Sony og fleir...
Í Íslendingasögu sem hefur verið kennd við föður Leifs og kölluð Eiríks saga rauða er sagt frá því að Leifur hafi verið í Noregi hjá Ólafi konungi Tryggvasyni og konungur sent hann til Grænlands til að boða landsmönnum kristni. Leifur lætur í haf og er lengi úti og hitti á lönd þau er hann vissi áður enga von til....
Steinfiskar eru tegundir fiska af ættkvíslinni Synanceia. Innan þessarar ættkvíslar eru þekktar fimm tegundir. Steinfiskar finnast aðallega á grunnsævi við Indlandshaf og Kyrrahaf en einnig eru dæmi um steinfiska í ísöltum sjó og í ám í Suðaustur-Asíu. Steinfiskar eru mjög eitraðir og jafnvel eitraðastir allra núl...
Hér er einnig svarað spurningunni:Úr hverju er dínamít búið til og hvernig verkar það?
Dínamít er sprengiefni sem sænski efnafræðingurinn Alfred Nóbel (1833-1896) fann upp árið 1867. Faðir Alfreds, Immanuel, var byggingarverkfræðingur í Stokkhólmi en þaðan fékk Alfred áhuga sinn á að finna upp öruggari og skilv...
Einnig hefur verið spurt: Hvað geymist blóð í blóðbönkum lengi? Er til gerviblóð?
Hver (og hvenær) fann fyrst út að hægt væri að taka blóð úr manneskju, geyma það og nota það síðar í aðra manneskju? Það er gefa blóð.
Hugmyndir um að nota eða taka blóð úr fólki í lækningaskyni eru mjög gamlar. Í margar aldir vo...
Spurnining í fullri lengd hljóðaði svona:
Hver er hugmyndin á bak við vegabréf? Hvenær komu þau fyrst fram og í hvaða tilgangi?
Vegabréf er ferðaskilríki gefið út af yfirvöldum. Vegabréfið staðfestir þjóðerni eigandans og veitir heimild til þess að snúa aftur til heimalandsins. Vegabréf getur líka verið tæk...
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvað er pipar og hvernig verður hann til? er pipar krydd úr berjum piparjurtarinnar Piper nigrum. Til eru nokkrar gerðir af pipar og fer litur og bragð eftir því hvernig berin eru meðhöndluð.
Piparjurtin er upprunninn í Suður- og Suðaustur-Asíu og er meðal elstu krydd...
Xenon hefur sætistöluna 54 í lotukerfinu og er eðallofttegund. Það var uppgötvað af bresku efnafræðingunum Sir William Ramsay (1852-1916) og Morris Travers (1872-1961). Ramsay átt þátt í uppgötvun eðallofttegundarinnar argons árið 1894, ásamt eðlisfræðingnum William Rayleigh. Ramsay sýndi síðan fram á að staðsetni...
Hér er einnig svarað spurningu Þorbjargar:Hvar og hvenær voru hnífapörin fundin upp og hvenær fór almenningur að nota þau?
Yfirleitt er átt við hníf og gaffal þegar talað er um hnífapör, þó skeiðar séu stundum taldar með eins og lesa má um í svari Guðrúnar Kvaran við spurningunni Af hverju tölum við um hnífapör...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hversu mikið er vitað um heimilisofbeldi á Íslandi? Hversu algengt er talið að það sé?
Rannsóknir á heimilisofbeldi á Íslandi eru hvorki margar né fjölbreyttar. Nokkuð er til af eigindlegum viðtalsrannsóknum við þolendur og rannsóknum á viðbrögðum opinberra aðila.[1] Hins vega...
Stutta svarið við þessari spurningu er einfaldlega „jú“. Í vetrarstillum safnast ryk í andrúmsloftinu saman. Við slíkar aðstæður um áramót getur magn agna sem eru fínni en 10 μm (PM10) orðið hundraðfalt hærra en æskilegt er, eða um 1500-2500 μg/m3. Þetta átti til að mynda við um áramótin 2016/2017. Þess...
Hvatberi (e. mitochondrion) er frumulíffæri sem finnst í öllum heilkjarna lífverum. Hvatberar eru belglaga, um 0,5–1 μm, en stærð og lögun getur verið breytileg eftir frumutegundum. Þeir eru nægilega stórir til að sjást með ljóssmásjá og voru fyrst uppgötvaðir á 19. öld. Hvatbera er að finna í nánast öllum fr...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!