Hakið er hraunstapi syðst í Almannagjá á Þingvöllum, sem myndar eins konar hak milli Hestagjár og Kárastaðastígs. Nafnið er ekki í fornum ritum og ekki vitað hversu gamalt það er (sbr. Björn Th. Björnsson, Þingvellir staðir og leiðir (1984), bls. 64).
Almannagjá á Þingvöllum. Upplýsingamiðstöðin og bílastæðið n...
Athugasemd ritstjórnar: OECD hefur nú samþykkt tölfræðilega skilgreiningu á líftækni. Nánar má lesa um skilgreininguna á heimasíðu OECD.
Ekki mun vera til nein opinber skilgreining á orðinu líftækni en viss hugtök sem tengjast líftækninni hafa þó verið skilgreind í lögum um erfðabreyttar lífverur frá árinu ...
Hugökin þriðji heimurinn, þróunarríkin eða hálfiðnvædd ríki vísa til þjóða aðallega í Asíu, Afríku eða Rómönsku Ameríku sem talin eru vera tæknilega vanþróuð. Í kalda stríðinu var hugtakið þriðji heimurinn einnig notað þegar vísað var til þjóða, einkum í Asíu og Afríku sem ekki tengdust Vesturveldunum né Sovétríkj...
Enska rithöfundinum George Orwell (1903-1950, fæddur Eric Blair) var svo ákaflega uppsigað við óréttlæti heimsins að hann gerði skrif pólitískra ádeiluverka að hugsjón sinni. Fyrstu bækur hans frá fjórða áratug 20. aldar voru í samræmi við þá hugsjón. Bókin Down and Out in Paris and London (Utan garðs í París og ...
Lengsta rúnaristan er á hinum fræga Röksteini á Austur-Gautlandi í Svíþjóð. Hann er frá upphafi 9. aldar. Um hann má lesa meðal annars í bók Sven B. F. Janssonar Runinskrifter i Sverige (1984).
Langflestir rúnasteinar voru reistir á svæðinu milli Stokkhólms og Uppsala, en þaðan eru um 1300 rúnaristur frá lokum ...
Hér er einnig svarað spurningunni:Hvernig hefur þátttaka Íslendinga verið á Ólympíuleikunum?
Á vef ÍSÍ (Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands) er að finna lista yfir íslenska keppendur á sumarólympíuleikum frá upphafi. Íslendingur tók fyrst þátt á sumarólympíuleikum árið 1908 þegar Jóhannes Jósefsson keppti í grí...
Upphaflega hét fossinn í Hvítá í Borgarfirði Bjarnafoss (Heiðarvíga saga, Íslenzk fornrit III:297) en ekki er vitað hvenær nafnið breyttist í Barnafoss.
Bjarnafoss er enn til á sömu slóðum í Borgarfirði, í Norðlingafljóti í landi Kalmanstungu ofan við Núpdælavað, nærri alfaraleið, Núpdælagötum, upp til Arnarva...
Jóhann Svarfdælingur eða Jóhann Kristinn Pétursson (1913-1984) er hæsti Íslendingur sem sögur fara af. Hann mældist 2,34 m en það eru 234 cm eða 2340 mm.
Um tíma var talið að Jóhann væri hæsti maður í heimi. Sá maður sem mælst hefur hæstur í heimi er hins vegar bandaríkjamaðurinn Robert Pershing Wadlow (1918-1...
Gjaldtakan sem slík er heimiluð með 3. og 4. málsgrein 11. greinar höfundalaga nr. 73/1972, eins og þeim var breytt með lögum nr. 60/2000, en þær hljóða svo:Höfundar verka, sem útvarpað hefur verið eða gefin hafa verið út á hljóðriti eða myndriti, eiga rétt á sérstöku endurgjaldi vegna upptöku verka þeirra til ein...
Fyrsti kvenkyns geimfarinn var hin sovéska Valentina Tereshkova.
Tereshkova var ekki flugmaður eins og svo margir af fyrstu geimförunum, heldur starfaði hún áður í textílverksmiðju. Hún var ein fimm kvenna sem valdar voru árið 1962 til þess að taka þátt í geimferðaþjálfun, en Sovétmenn höfðu mikinn áhuga á að ...
Það er ýmsan fróðleik að finna á heimasíðu Veðurstofunnar sem gaman er að skoða. Meðal annars má þar finna upplýsingar um snjóhulu og snjódýpt í Reykjavík kl. 9 að morgni 25. desember allt frá árinu 1921 til 2008.
Á þessu tímabili var 37 sinnum alhvít jörð á jóladag í Reykjavík. Ef aðeins er horft á þessa tölf...
Fjallið Hvítserkur (Röndólfur).
Merking orðsins hvítserkur er ‘hvítur kyrtill (ermalaus eða ermastuttur)’. Hvítserkur sem örnefni er notað um eitthvað sem líkist slíku fati. Þannig heita eftirfarandi náttúrufyrirbæri Hvítserkur: Foss í Fitjaá í Skorradal í Borgarfirði (Annálar 1400-1800. Reykjavík 1940. IV:96...
Máltækið er: Kemur að því er Krukkur spáði. Þetta er sagt ef eitthvað rætist eða kemur fram sem gert hafði verið ráð fyrir.
Ekki er vitað hver Jón krukkur var. Margir telja hann 17. aldar mann og Þórður Tómasson í Skógum er þeirrar skoðunar að hann hafi verið Vestur-Skaftfellingur (Goðasteinn 1984-5:35-41). Þa...
Ölfusá er vatnsmesta á landsins. Á heimasíðu Orkustofnunar er hægt að skoða niðurstöður vatnamælinga á rennsli vatnsfalla víðs vegar um landið. Þar kemur fram að meðalrennsli Ölfusár við Selfoss er 400 rúmmetrar á sekúndu (m3/s) á 44 ára tímabili.
Næst vatnsmesta á landsins er Þjórsá en samkvæmt sömu heimil...
Hér er einnig svarað spurningu Rutar Bergmann: „Hvað var Jóhann risi hár?”
Hæsti maður í heimi heitir Wang Fengjun frá Kína en hann er meira en 2,5 metrar á hæð. Fengjun er 22 ára og á að fara í aðgerð sem á að fá hann til að hætta að stækka. Aðrir spítalar hafa neitað að framkvæma þessa aðgerð af því að hún ku...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!