Stutta svarið við þessari spurningu er einfaldlega „jú“. Í vetrarstillum safnast ryk í andrúmsloftinu saman. Við slíkar aðstæður um áramót getur magn agna sem eru fínni en 10 μm (PM10) orðið hundraðfalt hærra en æskilegt er, eða um 1500-2500 μg/m3. Þetta átti til að mynda við um áramótin 2016/2017. Þess...
Rannsóknasvið Irmu Erlingsdóttur eru franskar bókmenntir og heimspeki, menningarfræði, kynjafræði og samtímasaga. Hún hefur flutt fjölda fyrirlestra um rannsóknir sínar á ráðstefnum og málþingum hérlendis og erlendis. Auk þess að hafa birt greinar og bókakafla á sérsviði sínu hefur Irma þýtt erlenda fræðitexta yfi...
Egill Skúlason er prófessor í efnaverkfræði við Háskóla Íslands en þar stundar hann rannsóknir á efnahvötun á rafefnafræðilegum ferlum.
Helstu rannsóknir Egils snúa að afoxun köfnunarefnis (N2) í ammóníak (NH3) og afoxun koltvíildis (CO2) í eldsneyti. Egill hefur einnig rannsakað efnahvörf sem eiga sér stað í r...
Arna H. Jónsdóttir er dósent í leikskólafræði og menntastjórnun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar hafa meðal annars beinst að menntastjórnun í leikskólum, fagmennsku og faglegri sjálfsmynd (e. professional identities) leikskólakennara og leikskólastjóra. Rannsóknir hennar og áhugasvið tengja...
Sigríður Matthíasdóttir er sjálfstætt starfandi fræðimaður. Rannsóknir hennar spanna allvítt svið innan sagnfræðinnar en hún hefur meðal annars fengist við sögu íslenskrar þjóðernisstefnu, háskólasögu og sögu íslenskra vesturferða með áherslu á sögu kvenna. Sigríður hefur sérstaklega rannsakað íslenska kvenna- og...
Lýðveldi þýðir að þjóðhöfðingi ríkis erfir ekki embættið heldur er kjörinn. Stofnun lýðveldis á Íslandi árið 1944 markaði endalok sambands Danmerkur og Íslands sem staðið hafði í aldir. Smá saman höfðu Íslendingar þó fengið aukið sjálfstæði. Fyrst fengum við löggjafarvald í séríslenskum málum (1874), heimastjórn (...
Öll spurningin hljóðaði svona:Hvað þýða dauð atkvæði í kosningum? Hvaða áhrif hafa dauð atkvæði á kosningaúrslit? Græða einhverjir flokkar á dauðum atkvæðum?
Hugtakið dauð atkvæði (e. wasted votes) er venjulega notað um þau atkvæði sem falla á flokka eða framboð sem ekki fá neina fulltrúa kjörna til þings eða ...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Hvaðan kemur orðið gluggi? Orðið er frábrugðið mörgum öðrum germönskum tungumálum sem nota orð skyld vindauga úr gömlu norsku eða fenestram úr latínu.
Orðið gluggur og veika myndin gluggi koma báðar þegar fyrir í fornritum. Í færeysku er til orðið gluggi 'ljósop, glerglug...
Upprunlega hljóðaði spurningin svona:Í Hvalfirði er landsvæði sem heitir Kjós. Nálægt Skaftafelli, inn af Morsárdal er líka landsvæði sem heitir Kjós. Spurningin er hvað gerir landsvæði að Kjós? Yfir hverju þarf landsvæði að búa til að það sé kallað Kjós?
Orðið kjós merkti í fornu máli ‚þröng vík‘ en merkir n...
Alþingiskosningar verða 29. október 2016. Af því tilefni býður Vísindavefurinn almenningi að senda inn spurningar sem gætu vaknað í tengslum við kosningabaráttu flokkanna.
Í kosningabaráttu er algengt að stjórnmálamenn og talsmenn stjórnmálaflokka setji fram fullyrðingar um tölulegar staðreyndir eða um þætt...
Hér er einnig svarað spurningunni:Hversu gamall er Þríhyrningur í Fljótshlíð og hvernig myndaðist hann? Ef þetta er eldfjall, hvenær gaus það síðast?
Þríhyrningur er ofurlítill fjallshryggur úr móbergi með stefnu SV-NA, sem er sprungustefna á Suðurlandi. Þannig hefur fjallið myndast á stuttri gossprungu við eld...
Á vef Hagstofu Íslands má finna ýmislegt talnaefni, meðal annars upplýsingar um það hversu margir fæðast og deyja á Íslandi á ári hverju. Hægt er greina upplýsingarnar á ýmsan hátt, til dæmis eftir aldri, kyni, sveitarfélögum og dánarorsök.
Ef litið er á 25 ára tímabil, frá 1993 til 2017, sést að dauðsföllum f...
Upplýsingar um ökutæki á landinu er meðal annars að finna á vef Samgöngustofu, inni á sérvef um bifreiðatölur. Orka náttúrunnar birtir einnig tölur um fjölda raf- og tengitvinnbíla á Íslandi.
Samkvæmt gögnum frá Orku náttúrunnar er fjöldi skráðra rafbíla eftir árum eftirfarandi, miðað við nóvembermánuð hvers ár...
Fæðukeðja (e. food chain) sýnir ferðalag orkunnar um lífríkið, frá einni lífveru til annarrar. Fæðukeðjum lífríkisins má skipta í fjóra hluta
Sólin – uppspretta orku lífríkisins.
Frumframleiðendur - plöntur sem binda orku sólar í vistkerfið með ljóstillífun.
Neytendur – lífverur sem fá orku með afráni á öðrum ...
Til þess að geta svarað þessari spurningu þarf fyrst að skoða hvað það þýðir að eitthvað sé „bannað“. Lög geta innihaldið bannreglur, það er reglur sem banna einhverja háttsemi, jafnvel að viðlagðri refsingu. Slíkar reglur geta því leitt til þess að ákveðin háttsemi telst bönnuð.
En lög eru ekki það eina sem ba...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!