Sennilega er skýringin sú, að í þessi þrjú skipti komu fram sum eða öll þau tákn sem mælanleg eru á undan Kötlugosum og samtíma þeim: (1) jarðhræringar, (2) vöxtur og jafnvel hlaup í ám sem undan Mýrdalsjökli falla – Fúlalæk, Múlakvísl eða Markarfljóti eftir því hvar í Kötlu-öskjunni eldvirknin er, (3) aukin rafle...
Aldamót eru þegar hundraðasta ári aldarinnar lýkur og næsta ár tekur við. Þannig mætast 20. og 21. öldin um áramótin 2000/2001 og þá eru um leið árþúsundamót; annað og þriðja árþúsundið í tímatali okkar mætast. Þetta svar má rökstyðja bæði með almennri vísun til þess hvernig við teljum hluti, tugi, tylftir, hundru...
Tíðahringur kvenna er skilgreindur frá fyrsta degi blæðinga og þar til næstu blæðingar hefjast. Tíðahringir geta verið mislangir milli kvenna og einnig hjá sömu konunni. Að öllu jöfnu er talað um 28 daga tíðahring að meðaltali en fæstar konur hafa reglulegan 28 daga tíðahring. Bandarísk rannsókn á 2316 konum á ald...
Dreyrasýki er arfgengur blæðingarsjúkdómur sem erfist kynbundið. Sjúkdómurinn kemur fram í karlmönnum sem erfa sjúkdóminn frá mæðrum sínum, en þær eru einkennalausir arfberar.
Til eru tvö form af dreyrasýki sem kallast dreyrasýki A (hemophilia A) og dreyrasýki B (hemophilia B). Dreyrasýki A er mun algengari en ...
Bonsai er japanskt orð og þýðir upprunalega að planta í bakka. Merking orðsins hefur þó breyst lítið eitt með tímanum og tengist nú einkum japönskum dvergatrjám og listinni að rækta tré í bökkum.
Bonsai-tré líkjast venjulegum trjám sem vaxa villt í náttúrunni nema þau eru miklu minni. Bonsai-tré eru tekin úr ...
Hæsti hiti sem mælst hefur á jörðinni er 57,7°C. Sá hiti var mældur í Líbýu í Afríku þann 13. september 1922. Lægsti hiti sem mældur hefur verið í Afríku var í Marokkó 11. febrúar 1935. Þá var hitinn –23,9 °C.
Hæsti hiti sem mældur hefur verið á Suðurskautslandinu var á Vonarflóa (e. Hope Bay) og var hann ...
Rannsóknir á áhrifum kynferðisofbeldis á börn og afleiðingum þess síðar á ævinni, hafa hingað til einkum beinst að stúlkum og konum, sem beittar hafa verið slíku ofbeldi í bernsku. Ástæða þessa er væntanlega sú að stúlkubörn virðast oftar vera fórnarlömb kynferðisofbeldis en drengir. Svarið byggist því á rannsóknu...
Kínamúrinn eða The Great Wall of China eins og hann er stundum nefndur á ensku var byggður í áföngum á mjög löngum tíma.
Kínamúrinn á fallegum degi.
Ýmsar goðsagnir hafa verið við lýði um Kínamúrinn eins og til dæmis að hann sé fleiri þúsund ára gamall, ein órofa heild og eina mannvirkið á jörðinni sem sjáist úr...
LitaskynjunKeilur eru þær sjónfrumur augans sem greina liti. Tvær mismunandi gerðir eru af keilum í sjónhimnu hunda. Þessar keilur hafa ljósgleypni á tveimur bylgjulengdum, við 429 nm og 555 nm, en á þeim nema hundar bláan og gulan lit.
Því er hægt að segja að hundar séu með tvílitaskynjun (e. dichromat vis...
Ef allir jöklar, þar með talinn Grænlandsjökull og Suðurheimskautsjökullinn bráðnuðu má reikna með að yfirborð sjávar mundi hækka um tæpa 69 metra. Framlag Suðurheimskautsjökulsins er þar langmest, eða um 61 metri, en Grænland legði til rúma 7 metra. Framlag allra annarra jökla yrði vel innan við einn metri. Á nor...
Hvalir eru svokölluð legkökuspendýr. Spendýrum er skipt í þrjá hópa: monotremata (breiðnefur og mjónefur), marsupials (pokadýr eins og kengúrur) og placentals (legkökuspendýr eins og prímatar, hestar og hvalir).
Dýr í þessum hópum eru líffræðilega áþekk hvað varðar uppbyggingu kynkerfa, æxlun og þroska ungviða...
Í 119. kafla Njáls sögu segir af nokkrum frægðarverkum Þorkels háks. Hann drap spellvirkja á Jamtaskógi og herjaði svo í Austurveg við annan mann. Þar komst hann í kynni við finngálkn:En fyrir austan Bálagarðssíðu átti Þorkell að sækja þeim vatn eitt kveld. Þá mætti hann finngálkni og varðist því lengi en svo lauk...
Á Vísindavefnum er að finna nokkur svör sem fjalla um upphaf lífs á jörðinni, til dæmis þessi eftir Guðmund Eggertsson:Er til fullnægjandi fræðileg skilgreining á lífi?Hvenær kviknaði líf á jörðinni og hvers vegna?Hvers vegna er ekki hægt að búa til lífveru úr súpu lífrænna efna eins og talið er hafa gerst við upp...
Minkur (Mustela vison) er rándýr af marðardýraætt (Mustelidae). Hann er upprunninn í Norður-Ameríku og nær náttúruleg útbreiðsla hans allt frá túndru Alaska í norðri til leiruviðarfenja Flórída og þurrs loftslags Nýju Mexíkó og Kaliforníu í suðri. Frá því að tegundinni var fyrst lýst af Schreber árið 1777 hefur 15...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!