Orðasambandið mála bæinn rauðan merkir að ‘skemmta sér ærlega, sleppa fram af sér beislinu’. Það er ekki gamalt í málinu. Í Morgunblaðinu frá desember 1962 er þetta dæmi:
því eins og við sæjum stæði til að fara út og „mála bæinn“.
Að vísu vantar lýsingarorðið rauður en vel má hugsa sér að það hafi verið unda...
Kristín Briem er prófessor við námsbraut í sjúkraþjálfun á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Rannsóknasvið hennar tengist hreyfivísindum og þá sérstaklega hlutlægri greiningu á hreyfingu og athafnagetu mannsins.
Ýmis kerfi líkamans þurfa að vinna saman til að við getum hreyft og athafnað okkur dags dagle...
Líklegt er að Babýlóníumenn hafi fengið sextugakerfi sitt í arf frá Súmerum. Lítið er vitað um Súmera en talið er að menning þeirra sé upprunnin í Mesópótamíu, þar sem nú er suðurhluti Íraks, um 4000 fyrir Krist. Viðtekin kenning gerir ráð fyrir að tveir eldri þjóðflokkar hafi runnið saman og myndað Súmera. Talnak...
Anh-Dao Katrín Tran er aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknaverkefni Anh-Dao snúast um fjölmenningarmenntunarfræði og ungt fólk af erlendum uppruna. Hún er virk í rannsóknum bæði á Íslandi og í Evrópulöndum.
Anh-Dao var þátttakandi í rannsóknarhópi Hönnu Ragnarsdóttur prófessors um Learning S...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Ég er í Grindavík og sé alltaf frekar sterkt ljós sem virðist vera nánast stöðugt yfir Reykjanesinu. Séð frá mér er þetta nánast í vestur og virðist ekki vera mjög hátt. Hvað er þetta og hver er tilgangurinn? Ég geri ráð fyrir að þetta sé gervihnöttur af einhverjum toga og væri g...
Þegar þetta er ritað, í lok nóvember 2014, hefur eldgosið í Holuhrauni staðið yfir í tæpa þrjá mánuði. Kvikan sem hefur komið upp í Holuhrauni til þessa er nú vel yfir einn rúmkílómetri að magni. Þetta er því ef til vill stærsta gosið á Íslandi síðan Skaftáreldar geisuðu árið 1783.
Það er áhugavert að skoða h...
Upprunalega spurningin var:
Er til skilgreining á hugtakinu stofnun, þá er til dæmis átt við kirkjuna eða sjúkrahús sem stofnun?
Stofnun er meðal annars skilgreind sem „föst starfsemi með ákveðin verkefni í almanna þágu“, og einnig „eitthvað fyrirtæki eða annars konar skipulögð starfsemi, opinber eður ei, s...
Mór er jarðlag úr jurtaleifum sem myndast hefur í votlendi og hægt er að nota sem eldsneyti. Í bók Þorleifs Einarssonar Myndun og mótun lands (1991, bls. 195) er stuttlega fjallað um mó. Þar segir:
Á hverju hausti falla jurtir og visna. Á þurrlendi rotna plöntuleifarnar og blandast smám saman jarðveginum, en í mý...
Virkustu eldfjöll á Íslandi eru sennilega Hekla, Grímsvötn og Katla. Sé litið svo á, sem margir gera, að Skaftáreldagosið 1783 tengist í rauninni Grímsvötnum, eru þau það eldfjall sem mest hefur gosið. Lakagígahraunið eitt er talið vera um 15 km3 — mest að rúmmáli þeirra hrauna sem runnið hafa á sögulegum tíma. Að...
Sjúklingur þarf að taka tvenns konar lyf, annars vegar lyf A og hins vegar lyf B. Mikilvægt er að taka einungis eina töflu af lyfi A og eina töflu af lyfi B á hverjum degi þar sem það getur haft alvarlegar aukaverkanir í för með sér að taka fleiri en eina töflu af hvoru lyfi. Auk þess er mjög mikilvægt að taka bæð...
Á jörðinni er lofthjúpur, en það er þunnt gaslag sem umlykur reikistjörnuna okkar. Lofthjúpurinn er að mestu úr nitri og súrefni en inniheldur líka aðrar gastegundir.
Þar sem súrefni og nitur eru litlaus gös við venjulegt hitastig sjáum við þau ekki beinlínis hreyfast. En við finnum fyrir þeim þegar vindur blæs...
Bendistjörnurnar nefnast réttu nafni leiðarstjörnur á íslensku en á ensku kallast þær pointer stars. Leiðarstjörnur eru til í ýmsum stjörnumerkjum en þær vísa þá á aðrar stjörnur.
Þekktustu leiðarstjörnurnar eru líklega Dubhe (α Ursae Majoris) og Merak (β Ursae Majoris). Þær eru báðar í Karlsvagninum ...
Úlfar eru sennilega eitt útbreiddasta landrándýrið á jörðinni. Þeir geta lifað við mjög ólíkar aðstæður, allt frá köldum heimskautaeyjum suður til brennheitra eyðimarka Arabíuskagans. Það er því ekki ólíklegt að lítill úlfastofn gæti lifað hér á landi ef næg fæða er fyrir hendi.
Úlfar þrífast við ýmiss konar að...
Núgildandi lög nr. 36/1993 með síðari breytingum heimila að ösku látinna manna sé dreift yfir öræfi og sjó með leyfi sýslumannsins á Norðurlandi eystra[1]. Þar segir enn fremur:
Óheimilt er að dreifa ösku á fleiri en einn stað sem og að merkja dreifingarstað. Sömuleiðis er óheimilt að geyma duftker fram að ráðs...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað þýðir orðið eða hugtakið skálmöld? Hvaðan er þetta orð komið og við hvers konar skálm er átt?
Orðið skálm er fornt orð yfir sverð en þekkist einnig í merkingunni 'stór hnífur, sveðja'. Skálmöld merkir 'ófriðaröld, vígaöld'. Orðið þekkist fyrst úr 44. (45.) vísu Völ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!