Upphafleg barst vefnum eftirfarandi spurning:Mér var einhvern tímann sagt að no. purkur, samanber purka og svefnpurka, gæti þýtt draugur er eitthvað til í því?
Nafnorðið purka hefur fleiri en eina merkingu: 'gylta', 'nirfill', 'eitthvað smávaxið' og 'vesaldarleg og syfjuð manneskja'. Það er síðasta merkingin se...
Orðið andfælur (kvk. ft.) merkir 'ofboð' og sambandið að vakna upp með andfælum merkir að 'vakna snöggt og í ofboði'. Sambandið er notað með fleiri sögnum eins og þjóta upp, rjúka upp, hrökkva upp. Andfælur eitt og sér þekkist þegar í upphafi 17. aldar úr lækningabók Odds Oddssonar prests á Reynivöllum og er elsta...
Nafnorðið bísi 'hnuplari; þjófnaður' er ekki gamalt í málinu. Sama er að segja um hvorugkynsorðið bís 'hnupl' og sögnina að bísa 'hnupla, stela'. Þau eru frá því um miðja 20. öld og teljast til slanguryrða.
Bísi, bís og sögnin að bísa eru tökuorð í íslensku og upphaflega úr sjómannamáli.
Orðasambandið að v...
Orðið kúrbítur á rætur að rekja til latínu cucurbita í merkingunni ‘grasker’. Í miðaldalatínu er gert ráð fyrir myndinni *curbita, sem ekki virðist koma fyrir það vitað sé og þess vegna stjörnumerkt.
Í fornháþýsku hét jurtin kurbiz, fengin að láni úr latínu, en í háþýsku heitir hún Kürbis. Í eldri dönsku hét j...
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:Raðtölur. Fyrir mörgum vefst - mér líka - hvernig raðtala er sögð þegar komið er yfir hundrað. Hundraðasti og fyrsti, hundraðasti og nítjándi. En þegar komið er í hundrað og tuttugu, á þá ekki að segja hundrað og tuttugasti; ekki hundraðasti og tuttugasti. Tek sérstaklega eftir ...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Það stendur í BÍN að blóðmör sé karlkynsorð. Ég er ættaður frá Vestfjörðum og hef alltaf notað þetta sem kvenkynsorð. Er bæði notað, eða er bara eitt sem er rétt.
Ég vann í tæpa fimm áratugi á Orðabók Háskólans, síðar orðfræðisviði Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi. Sú...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Getið þið sagt mér til um hvenær staratímabilið er? Getur verið að starinn sé kominn með hreiður á húsinu mínu núna 15 mars?
Starahreiður eru oft á eða í mannabústöðum, í holum undir þakskeggjum, veggjum, hreiðurkössum og jafnvel í yfirgefnum vinnuvélum eða skipum.
Það er...
Líklega er helsti tilgangur augabrúna að koma í veg fyrir að vökvi á borð við regnvatn eða svita berist í augun. Lögun augabrúnanna gerir að verkum að vatn lekur fremur framhjá augunum en inn í þau.
Einnig er mjög líklegt að augabrúnir auðveldi mönnum að sýna tilfinningar sínar. Þegar fólk er reitt hleypir það...
Við segjum að fólk deyji úr elli þegar það er komið á efri ár og deyr án þess að einhver sérstök dánarorsök sé tilgreind. Fólk er þá ekki haldið einhverjum skilgreindum sjúkdómi sem dregur það til dauða.
Með aldrinum hægist smám saman á líkamsstarfsemi fólks og líkaminn hrörnar en ástæðan fyrir því er fyrst og ...
Talið er að hanakamburinn sem á ensku kallast Mohawk eða mohican komi frá Norður-Ameríku. Á enskri tungu er hann kenndur við Móhíkana-indjánaættflokkinn (e. Mohawk) sem kann þó að vera vafasamt því vitað að er að hanakambur var í tísku hjá Wyadot-indjánum mun fyrr.
Árið 2003 fundust 2300 ára gamlar líkamsleifa...
Þegar svara á spurningu sem þessari verður að taka með í reikninginn að villt dýr verða sjaldan mjög gömul. Lífsbaráttan í náttúrunni er hörð og það er sjaldgæft að villt dýr nái háum aldri áður en þau lenda í klónum á rándýrum, verða fyrir fæðuskorti eða öðrum áföllum.
Það er því best að átta sig á mögulegum h...
Biblían er mest selda og mest lesna bók allra tíma. Vefsetur Guinness World Records áætlar að um 2.500.000.000 (2,5 milljarðar) eintaka hafi verið seld í heiminum síðan 1815! Biblían hefur verið þýdd á 2.233 tungumál og mállýskur.
Reikna má með að annað trúarrit, Kóraninn, komi í öðru sæti en á þó harðri barátt...
HIV-veiran smitast aðallega á milli einstaklinga gegnum óvarðar samfarir, með sprautum eða sprautunálum, við blóðgjöf, eða frá móður til barns á meðgöngu, við fæðingu eða við brjóstagjöf. Af öllum þeim milljónum HIV-smita sem eru þekkt er aðeins vitað um eitt tilfelli þar sem veiran barst á milli manna með kossum....
Skammstöfunin et al. er latína og er hún notuð á tvo vegu. Annar vegar er et al. stytting á 'et alibi' en það þýðir 'og annars staðar'. Þegar et al. kemur á eftir ákveðinni tilvísun getur því verið átt við að tilvísunina sé einnig að finna annars staðar, þótt ekki sé tilgreint nákvæmlega hvar.
Hins vegar er ska...
Spurningin í heild sinni hljómaði svona:
Hvað merkir orðið gala? Ég er reyndar alls ekki að spyrja um gálga, gála eða að gala heldur um orðið gala þegar það er notað um klæðnað eða veislu, t.d. galadress, galakjóll og galaveisla.
Lýsingarorðið gala er notað í merkingunni „hátíðar-, viðhafnar-“, til dæmis gala ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!