Upphaflega hljóðaði spurningin svona:
Hver er uppruni setningarinnar „að vera fjarri góðu gamni“?
Orðasambandið þekkist frá 17. öld í lítið eitt annarri mynd: langt frá góðu gamni. Um fjarri góðu gamni eru elstu dæmi frá síðari hluta 19. aldar. Gaman merkir hér ‘ánægja, skemmtun’ og sá sem er fjarstaddur missi...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvenær fer gamanið að kárna? Hvað merkir kárna og á þetta örugglega að vera kárna en ekki grána?
Sögnin að kárna merkir ‘versna, úfna, fara úr lagi, rifna, verða viðsjárverður, ískyggilegur’ samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar (1989:448). Ásgeir telur h...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Kærastan mín sagðist vilja fá 'ogguponsu' mjólk í teið. Ég finn ekkert um þetta orð í neinni orðabók, málið.is innifalið. Getið þið sagt mér hvaðan þetta orð kemur?
Orðið ogguponsu um eitthvað mjög lítið er orðið til í barnamáli. Oggu- er ummyndun á ógnar-. Ógn merkir ‘skelfing, ...
Ég nefni hér stærstu 5 fjöll og jökla á Íslandi, en þeir eru: Hofsjökull 1765 m, Snæfell 1833 m, Kverkfjöll 1860 m, Bárðarbunga 2000 m og Öræfajökull 2119 m. Ég vil benda á að Snæfell er eina fjallið á listanum.
Snæfell.
Heimild:
Kortabók handa grunnskólum, Námsgagnastofnun, 1.útgáfa 1992.
Mynd:
Wik...
Aðalreglan er sú að eignarfall fleirtölu endar á -na í svonefndum veikum kvenkynsnafnorðum sem enda á -a og í svonefndum veikum hvorugkynsnafnorðum.
Með veikum kvenkynsorðum sem enda á -a í nefnifalli eintölu er átt við nafnorð sem beygjast eins og stúlka. Þau eru geysilega mörg í íslensku. Með veikum hvorug...
Fyrirstaðan er ekki meiri en svo að þetta er þegar gert og hefur verið gert í mörg ár í talsvert stórum stíl.
Þeir sem nota rafmagnstannbursta eru að sjálfsögðu að nýta sér þá orkulind sem nýtt er til að framleiða rafmagnið. Hér á Íslandi notum við að mestu leyti orku fallvatna til þess. Þessi orka verður ti...
Svarið er: Nei, hann eyðir meiri orku þegar hann er í notkun heldur en þegar hann er bara „í sambandi“.
Þegar spennubreytir er í sambandi en ekki í notkun fer riðstraumur um inntaksvafningana en ekki úttaksmegin. Spennirinn flytur því ekki afl frá inngangi til útgangs en hann eyðir samt nokkurri orku eða afli....
Arnar Ellertsson spurði 'Hvernig verka lava lampar? Af hverju flýtur vaxið upp og af hverju sýður olían ekki?' og Mattías Páll spurði 'Hvaða efni er í 'peace lamp'?'
Svokallaður lavalampi er glært plastílát með tveimur mismunandi vökvum í og peru fyrir neðan. Yfirleitt er annar glær og hinn litaður, til...
Krabbamerkið er eitt óljósasta merki Dýrahringsins. Merkið táknar krabbann sem Júnó, drottning á Ólympsfjalli, sendi til að bjarga marghöfða vatnaskrímslinu (Hýdrunni), sem átti í baráttu við hetjuna Herkúles. Það kemur ef til vill ekki á óvart en Herkúles steig einfaldlega á krabbann og kramdi hann – en sem viður...
Fóstur í móðurkviði þroskast innan í líknarbelgnum sem er fullur af legvökva og er staðsettur inni í legi móðurinnar. Fóstrið þroskast því inni í vökvafylltu rými þar sem loft kemst ekki að. Loftskipti fóstursins fara fram í gegnum blóðrás móður, en þaðan fær það einnig næringu sína.
Raddböndin byrja að þroskas...
Lungnakrabbamein er mörg ár að þróast og því miður veldur það litlum einkennum lengi vel. Í langflestum tilfellum greinist það því seint.
Skipta má lungnakrabbameini í fjögur stig eftir stærð æxlisins og dreifingu til aðlægra eða fjarlægra líffæra. Á I stigi er æxlið aðeins eitt, minna en 3 cm að stærð og eng...
Stýrivextir seðlabanka eru þeir vextir sem bankinn notar til að hafa áhrif á markaðsvexti.
Seðlabanki Íslands, líkt og seðlabankar annarra landa, á í ýmiss konar viðskiptum við önnur innlend fjármálafyrirtæki, sérstaklega innlánsstofnanir. Með innlánsstofnunum er átt við banka og sparisjóði sem hafa heimild til...
Já, árásum hákarla á menn við strendur Ástralíu hefur fjölgað marktækt hin seinni ár. Á tímabilinu 1991 til 2000 voru að meðaltali 4,7 hákarlaárásir á ári við Ástralíu en á árunum 2001 til 2008 var meðaltalið komið upp í 8,9 árásir á ári. Samhliða hefur dauðsföllum af völdum hákarla fjölgað, en þó ekki í sama hlut...
Undanfarin ár hefur perúansjósan (Engraulis ringens) sem veiðist í Suður-Kyrrahafi undan ströndum Suður-Ameríku verið mest veidda fisktegund í heimi. Frá síðustu aldamótum hefur heildarafli tegundarinnar verið á bilinu 6 til 11 milljónir tonna. Sú tegund sem næst kemur henni er alaskaufsinn (Theragra chalcogramma)...
Nafnorðið kosning er af sömu rót og sögnin kjósa og haft um þá athöfn sem í sögninni felst. Fleirtölumynd nafnorðsins, kosningar, hefur fengið þá merkingarlegu sérstöðu að vísa til þeirrar venju í lýðræðisþjóðfélagi að almenningur ákveði með atkvæði sínu hverjir eiga sæti á löggjafarsamkundu þjóðarinnar og í svei...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!