Ástæða þess að fólk má ekki borða fyrir svæfingu er sú að við innleiðslu svæfingar slaknar á öllum vöðvum, þar með talið vöðvum sem stjórna kyngingu og annarri starfsemi í koki.
Sjúklingur getur kastað upp eftir innleiðslu svæfingar og ef maginn er fullur getur innihaldið gubbast upp í kok og farið þaðan niður...
Sigmund Freud sagði: Án ástar, ekkert líf − án átaka, enginn þroski. Þessi tvö öfl, meðbyr-mótbyr, sem svo oft takast á, eru líklega forsendur lífsins. Ástin er í upprunalegu merkingunni afl lífsins, „já-ið“, lífs- og kynhvötin, afl gleðinnar, hins góða, jákvæða, frjóa, uppbyggilega − líbídó. Hið gagns...
Kynlíf er heilsusamlegt svo framarlega sem það byggist á eðlilegum samskiptum, er tilfinningalega gefandi, er innan þeirra marka sem einstaklingurinn setur sér og skaðar hann ekki á nokkurn hátt andlega né líkamlega. Að lifa heilbrigðu kynlífi felur í sér að einstaklingurinn finnur fyrir andlegri og líkamlegri vel...
Ljósið sem berst til okkar frá himninum er upphaflega hvítt sólarljós sem hefur síðan dreifst frá sameindum lofthjúpsins. Bláa ljósið, sem er hluti hvíta ljóssins, dreifist miklu meira en annað og því er himinninn blár.
Samkvæmt nútíma eðlisfræði má líta á ljósgeisla sem straum ljóseinda. Hver þeirra hefur sína...
Sögur þær sem Íslendingar rituðu á 13. og 14. öld, og fjalla um íslenska menn og málefni svonefndrar sögualdar (um 930-1030), hafa verið nefndar Íslendingasögur. Hátt í 40 sögur falla undir þessa skilgreiningu, og eiga þær – auk þess ofangreinda – ýmis sameiginleg einkenni.
Talsverður tími leið frá því að atbur...
Málmar og örbylgjur geta farið ágætlega saman. Þannig eru bylgjurnar í örbylgjuofninum leiddar frá bylgjugjafanum í málmstokki sem kallaður er bylgjuleiðari og sjálft bylgjuhólfið sem maturinn er hitaður í er málmkassi. Bylgjurnar speglast af málmfletinum og fara aðra umferð um hólfið. Speglunin gerist á þann hátt...
Spurningin í fullri lengd hljómar svona:
Er hægt að keppa í fegurð og eru fegurðarsamkeppnir og módelfitness íþróttagreinar? - Myndband
Þessari spurningu væri hægt að svara á einfaldan hátt: Hvorki fegurðarsamkeppni né módelfitness eru í raun keppnisíþróttir á Íslandi. Þær eru ekki skilgreindar af Íþrótta- ...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað er átt við með orðinu ku? Til dæmis það ku vera. Hvaðan kemur þetta?
Ku er samandregin mynd af sögninni að kveða og þekkist allt frá 18. öld. Um er að ræða 3. persónu eintölu og fleirtölu í þátíð: Hann ku vera farinn, hún ku vera lasin, þeir ku vera lagðir af stað, þær ku...
Hér fer á eftir tafla um fimm stærstu eyðimerkur heimsins samkvæmt upplýsingum af vefsíðunni Evergreen Project Adventures.
Eyðimörk
Staðsetning
Stærð í ferkílómetrum
Sahara
Norður Afríka
9.065.000
Gobi
Mongólía-Kína
1.295.000
Kalahari
Sunnarlega í Afríku
582.000
Stóra Viktoría
Ást...
Þegar fólk talar um hálsbólgu er það í raun oft með kvef sem er sýking sem byrjar sem smásærindi í koki. Þessi særindi eru mest áberandi að morgni þegar slím hefur safnast í öndunarveginn og nef er meira og minna stíflað en ekki er til staðar bólga í hálseitlum. Slíkar sýkingar fær fólk að sjálfsögðu einnig þótt b...
Með "glervatni" er væntanlega átt við það sama og kallað hefur verið "Wasserglas" á þýsku. Engin ein efnaformúla er til fyrir glervatn, en um er að ræða vatnsleysanleg natríum- og/eða kalíumsiliköt eða megnar vatnslausnir þeirra. Framleiðslan fer fram með því að bræða saman SiO2, til dæmis kvartssand, og natríumka...
Ataxia kallast á íslensku óregluhreyfing. Þetta orð er notað yfir ósamhæfðar og klaufalegar hreyfingar. Ataxia er ekki sjúkdómur, heldur einkenni, og getur hún verið einkenni fjölmargra taugasjúkdóma, meðal annars hrörnunarsjúkdóma. Það þarf þó ekki sjúkdóm til, því sá sem innbyrðir áfengi eða önnur efni sem bæla ...
Gjaldmiðill Indlands er kallaður á ensku Rupee og það hefur verið þýtt á íslensku rúpía eða rúpíi. Fleiri lönd nota reyndar gjaldmiðla með svipuðum nöfnum, til dæmis Indónesía, en hér verður gert ráð fyrir að átt sé við gjaldmiðil Indlands.
Mahatma Gandhi prýðir rúpíuseðlana.
Opinbert gengi indversku rúpíunn...
Í grein sinni „Nagdýr á Íslandi“ í ritinu Villt íslensk spendýr, segir Karl Skírnisson líffræðingur að búklengd brúnrottunnar (Rattus norvegicus) sé 18-26 cm og halinn 15-22 cm langur. Þyngdin er á bilinu 140-400 g.
Brúnrotta (Rattus norvegicus)
Í erlendum rannsóknum kemur fram að afar sjaldgæft sé að rottur ver...
Á fána Evrópusambandsins eru tólf gull-litaðar stjörnur sem mynda hring á bláum fleti. Það er almennur misskilningur að stjörnurnar tákni aðildarlönd sambandsins en það er ekki rétt enda eru löndin nú 28 talsins.
***
Fáninn á að tákna sameiningu Evrópu en ekki aðeins aðildarlandanna. Hringurinn er tákn eini...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!