Hugsanlegt er að leggja þann skilning í orðið "ritskoðun" að svarið við þessari spurningu verði játandi. Við lagfærum strax stafsetningu og málfar á spurningunum sjálfum og styttum líka stundum þegar í stað, ef það liggur beint við. Þegar svör berast, lagfærum við spurningarnar enn frekar til að vefurinn verði sem...
Morse-kóði er gamalt samskiptaform þar sem hver bókstafur er táknaður með ákveðnum fjölda punkta og strika. Sem dæmi er bókstafurinn A í Morse-kóðanum táknaður með punkti og bandstriki eins og hér er sýnt: A = .-
Þetta táknkerfi var notað í svokölluðum ritsíma (e. telegraph), til dæmis á skipum og í lestum til ...
Hvorki húsflugur (Musca domestica) né önnur liðdýr (Arthropoda) hafa bein. Stoðgrind flugna er kölluð ytri stoðgrind (e. exoskeleton) en stoðgrind hryggdýra (Vertebrata) nefnist innri stoðgrind (e. endoskeleton) og samanstendur hún af beinum eða brjóski.
Húsfluga (Musca domestica) gæðir sér á kleinuhring.
Stoðgr...
Samkvæmt mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, reykja jarðarbúar nú um 5,5 þúsund milljarða sígaretta á ári. Það gerir ríflega 15 milljarða sígaretta á dag eða um 750 milljónir pakka. Að meðaltali reykir hver jarðarbúi um tvær og hálfa sígarettu á dag.
Stofnunin áætlar að ríflega fjórar milljónir man...
Þota af gerðinni Boeing 747 flýgur á um 85% af hljóðhraða (0.855 Mach). Þetta eru um 912 km/klst. Þessi þota, einnig kölluð júmbóþota vegna stærðar sinnar, er mikið notuð bæði í farþegaflugi og vöruflutningum. Hún er þá helst notuð á löngum flugleiðum, svo sem milli á milli London og Singapore eða milli Los Angele...
Græneðlur (Iguanidae) eru vinsæl gæludýr víða um heim. Sú tegund ættarinnar sem nýtur mestra vinsælda meðal gæludýraeigenda á Vesturlöndum og þá sérstaklega í Bandaríkjunum er græna iguana eða græneðla (Iguana iguana) eins og hún er oftast kölluð.
Samkvæmt upplýsingum frá dýralæknum og ræktendum græneðla er r...
Skriðdýr er einn af fimm hópum hryggdýra. Hinir eru spendýr, fuglar, froskdýr og fiskar. Skriðdýr eiga margt sameiginlegt með öðrum hryggdýrum. Þróunarlega má skilgreina skriðdýr sem einhvers konar millistig milli froskdýra annars vegar og spendýra og fugla hins vegar enda þróuðust síðarnefndu hóparnir frá skriðd...
Eiffelturninn er eitt þekktasta tákn Parísarborgar og hefur verið sóttur heim af yfir 200 milljón manns.
Forsaga turnsins er að halda átti heimssýningu í París árið 1889 í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá frönsku byltingunni, en byltingin gjörbreytti á sínum tíma stjórnkerfi Frakklands. Haldin var samke...
Á heimasíðu Hagstofunnar er að finna upplýsingar um fjölda skráðra ökutækja á Íslandi. Því miður eru nýjustu upplýsingarnar frá árinu 2004 en gera má ráð fyrir að bílum hafi fjölgað á landinu síðan þá þar sem gengi krónunnar var innflytjendum afar hagstætt á tímabili.
Samkvæmt þessum upplýsingum Hagstofunnar vo...
Tímaferðalög hafa verið vinsælt umhugsunarefni að minnsta kosti síðan H.G. Wells gaf út skáldsöguna Tímavélina, undir lok 19. aldar. Þar segir frá manni sem ferðast langt fram í tímann og verður vitni að þróun mannkynsins í framtíðinni og örlögum þess, áður en hann snýr aftur til síns tíma. Bókin fangaði hugmyndaf...
Dulstirni voru eitt sinn ein helsta ráðgáta stjörnufræðinnar líkt og íslenskt heiti þeirra ber með sér (dularfull stjarna). Ráðgátan um dulstirnin tryggði fjölmörgum stjörnufræðingum andvökunætur um árabil. Dulstirnin einkennast nefnilega af því að vera órafjarri en geysilega björt og olli það stjörnufræðingum mik...
Engin þekkt tækni eða eðlisfræðileg lögmál leyfa slíkan flutning á efni milli staða þannig að svarið við spurningunni er ótvírætt nei!
Hins vegar hefur hugtakið "quantum teleportation" verið notað fyrir flutning á ástandi skammtafræðilegs kerfis. Slíkan „ástandsflutning“ má til dæmis framkvæma með því að senda ...
Þegar bergkvika kólnar dregst hún saman og getur klofnað þannig að stuðlar myndist. Myndun stuðla er lýst í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurningunni Hvernig myndast stuðlaberg? Þar kemur meðal annars fram að þeir myndast alltaf hornrétt á kólnunarflötinn þannig að þeir eru lóðréttir í hraunlögum og innskots...
Samkvæmt ÍSGEM (Íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla) þá innihalda 100 g af ýsu- eða þorskflökum um 18 g af prótínum og 82 g af vatni. Harðfiskur er þurrkaður fiskur þar sem búið er að fjarlægja megnið af vatninu úr flökunum. Með þurrkuninni hækkar hlutfallslegt gildi prótínanna eftir því sem vatnið mi...
Hér er nauðsynlegt að gera sér fyrst skýra grein fyrir hvað átt er við með því að lyftan þyngist. Þyngd hlutar er sama og þyngdarkrafturinn sem verkar á hlutinn og er í beinu hlutfalli við massa hlutarins. Þyngd lyftuklefans breytist því ekki við nein uppátæki manna inni í lyftunni, og þyngd þeirra breytist ekki h...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!