Verslunarmannahelgin er kennd við frídag verslunarmanna fyrsta mánudag í ágúst. Sú dagsetning hefur haldist óbreytt frá 1934. Áður höfðu verslunarmenn í Reykjavík átt frídag á ýmsum dögum frá 1894. Tímasetningin á rót að rekja til þjóðhátíðarinnar 2. ágúst 1874. Hennar var reglulega minnst í Reykjavík kringum alda...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Er eitthvað vitað um tónlist á Íslandi um 1400-1450? Er til einhver saga um tónlist á Íslandi um 1400-1450? Hljóðfæri, dans og söngur? Hvaða upplýsingar sem er myndi ég vel þiggja.
Við rannsóknir fræðimanna á miðöldum koma sífellt í ljós meiri samskipti Íslendinga við...
Nóbelsverðlaunin eru líklega þekktustu verðlaun heims á eftir Óskarsverðlaununum. Nóbelsverðlaununum var fyrst úthlutað árið 1901. Sænska akademían sá þá um úthlutun í eðlisfræði, efnafræði, læknisfræði og bókmenntum en norska Stórþingið veitti friðarverðlaun Nóbels. Hagfræðiverðlaun hafa verið veitt frá því 1969....
Hér er einnig svarað spurningunni:Hvernig er áratog mælt og hversu langt er það? Mælieining á vegalengd, hefur með árabáta að gera.
Eitt áratog er ekki föst vegalengd heldur er orðið notað yfir „það að toga í árarnar, róa með árum“[1]. Eitt áratog er því sú vegalengd sem farin er þegar þessi aðgerð er framkvæmd...
Árið 1913 var í fyrsta sinn fjallað um takmörkuðu afstæðiskenninguna hér á landi. Það var í greininni „Ýmsar skoðanir á eðli rúmsins“ eftir Ólaf Dan Daníelsson stærðfræðing, sem birtist í tímaritinu Skírni.[1] Ólafur ræðir þar bæði um heimspekilegar undirstöður rúmfræðinnar og afstæðiskenninguna, án þess þó að mi...
Árið 2014 var birt 431 svar við spurningum á Vísindavefnum. Sú tala segir þó ekki allt um það hversu mörgum spurningum var svarað það árið.
Oft spyrja notendur Vísindavefsins spurninga sem ekki er til birt svar við á Vísindavefnum. En svarið er kannski að finna í öðru svari um skylt efni. Þá senda starfsmenn ve...
Hér er einnig svarað spurningunum:Hver er uppruni búrku, niqab og hijab og hver er munurinn á þessu þrennu? Af hverju klæða margar múslímskar konur sig í búrku, niqab og hijab?
Arabíska orðið hijab er notað um eina tiltekna tegund slæðu sem margar múslimakonur bera. Það er einnig samheiti yfir allar gerðir af s...
Rashidun er nafn sem fyrsta kalífadæminu eftir dauða Múhameðs var gefið. Fjórir kalífar stjórnuðu því frá 632-661. Orðið Rashidun mætti þýða sem hinir réttlátu eða hinir réttmætu; enska þýðingin er yfirleitt the rightly guided. Samkvæmt íslam var Múhameð síðasti spámaður guðs á jörðu. Múhameð lést árið 632 og þá v...
Með hugtakinu kolefnisbinding er einfaldlega átt við það þegar kolefni (C) í andrúmsloftinu binst til lengri tíma, til dæmis gróðri eða jarðvegi.
Líf er sú birtingarmynd kolefnis sem við höfum hvað mestan áhuga á, enda erum við lífverur. Þó er mun meira kolefni í efnasamböndum utan lífríkisins, til dæmis í kolt...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Er artemisinin eina lyfið sem læknar malaríu? hvenær var það fundið upp og hvernig virkar það? Hvað getið þið sagt mér um Artemisia annua? og Hvernig tengist það við Artemisinin og hvernig virkar Artemisinin?
Til eru fjölmörg lyf sem notuð eru til að fyrirbyggja og meðhöndla m...
Hundar þola alls ekki jafn fjölbreytta fæðu og menn. Þeir geta brugðist illa við ýmissi fæðu sem er okkur hættulaus. Þetta kemur bersýnilega í ljós þegar litið er á viðbrögð hunda gagnvart sumum ávöxtum.
Hér á eftir er listi yfir matvæli sem má alls ekki gefa hundum en listinn er þó ekki tæmandi:
Áfengi: Það g...
Orðasambandið að vera í sjöunda himni ‛vera afar glaður’ þekkist í málinu að minnsta kosti frá síðari hluta 19. aldar. Þótt hugmyndin um sjö himna sé mjög gömul virðist þetta fasta orðasamband hafa borist hingað um það leyti, sennilega frá Danmörku, það er at være i den syvende himmel. Danir hafa líklegast f...
Þegar sólarljós, sem er blanda af öllum litum, fellur á hluti á jörðinni drekka þeir yfirleitt hluta af ljósinu í sig en endurkasta hinu. Endurkastið ræður lit hlutarins.
Vatn gleypir nánast ekkert sýnilegt ljós og þess vegna er vatn oftast glært. Þetta sjáum við vel ef við látum vatn renna í glært glas. Sé vat...
Rússland er stærsta land jarðarinnar að flatarmáli og það níunda fjölmennasta en 143,4 milljónir manna eru búsettar þar í landi. Í Moskvu búa 11,5 milljónir manna eða um 8% af íbúafjölda Rússlands.
Kreml-borgarvirkið prýðir Moskvuborg.
Stærð Moskvu er 2511 km2 svo að fjöldi íbúa á hvern ferkílómetra er um 4580...
Í Landnámabók er heiti fjallsins Gunnólfsfell, það er sem sé kennt beint við Gunnólf sjálfan. Í sama riti er víkin kölluð Gunnólfsvík.
Mynd sem sýnir eyðibýlin Sóleyjarvelli og Gunnólfsvík. Gunnólfsvíkurfjall sést efst til hægri.
Á einhverjum tímapunkti hefur það gerst að menn fara að kenna svo fjallið við v...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!