Gosið sem hófst í Geldingadölum í Fagradalsfjalli á Reykjanesskaga er gott dæmi um það að vísindamenn geta stundum sagt fyrir um eldgos að sumu leyti en ekki öllu. Fimmtán mánuðum fyrir upphaf gossins byrjaði mikil skjálftavirkni á vestanverðum Reykjanesskaga og einnig sáust merki um kvikuinnskot, meðal annars með...
Upprunalega spurningin var:
Vitið þið hvar er hægt að finna landsnigla með skel eins og garðabobba?
Nokkrar tegundir landsnigla með skel eða kuðung finnast á Íslandi, en sniglafánan hérlendis er ekki mjög fjölbreytt. Líklega eru ástæðurnar fyrir því að landið er einangrað, kalkskortur í jarðvegi og svalt lo...
Tunglmyrkvi á sér stað þegar tunglið gengur inn í skugga jarðar á sama tíma og jörðin er stödd á milli sólar og tungls. Þessi niðurröðun þýðir að tunglmyrkvi getur aðeins orðið þegar tunglið er fullt. Tunglmyrkvi á sér þó ekki stað í hverjum mánuði því brautarplan tunglsins og brautarplan jarðar eru ekki samsíða. ...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hver er lengsta á Norður Ameríku? Reyndi að gúggla þetta en fékk mjög mismunandi svör. Er eitthvert óumdeilt svar við þessari spurningu?
Ekki er eins einfalt að mæla nákvæma lengd vatnsfalla og það kann að virðast í fyrstu. Þar skiptir máli hvar upptök vatnsfallsins eru skilgre...
Hefð er fyrir því að skipta börnum þjóðsagnaverunnar Grýlu í tvo flokka. Í öðrum þeirra eru jólasveinarnir en í hinum öll önnur börn Grýlu. Grýlubörn eru nefnd í ýmsum þulum og kvæðum frá fyrri tíð og vitað er um minnsta kosti 72 þeirra. Þekkt jólasveinanöfn eru aðeins fleiri eða 78. Heildarfjöldi barna Grýla er þ...
Tengsl tónlistar við önnur svið
Hér er að líkindum átt við áhrif tónlistarnáms á námsgetu í öðrum greinum en tónlist. Í hnotskurn er svarið við spurningunni þetta: Á grundvelli þeirra vísindarannsókna sem fram hafa farið til þessa er hvorki hægt að staðfesta né alfarið hafna þeim möguleika að tónlistarnám geti...
Heimsókn vitringanna þriggja til Betlehem, sem er að finna í 2. kafla Matteusarguðspjalls, er í hópi allra þekktustu sagna Biblíunnar.
Nýja testamentið er upphaflega ritað á grísku og þar er orðið magoi notað um þessa ferðalanga. Í eintölu er það magos. Allt varðandi þessa menn er dálítið þokukennt, en orðið s...
Hvað er lystarstol?
Lystarstol einkennist af ýktum áhyggjum af offitu og áráttukenndri megrun sem verður að sjálfsvelti. Lystarstolssjúklingar eru haldnir stöðugum ótta um að verða feitir og reyna í sífellu að grenna sig, þrátt fyrir það að vera orðnir lífshættulega grannir. Þeir borða einungis hitaeiningasnauð...
Leonhard Euler (1707-1783) var afkastamesti stærðfræðingur sögunnar. Að jafnaði námu rannsóknir hans yfir 800 blaðsíðum á ári og útgefin verk hans urðu alls 866. Nýlega hefur þessum verkum verið safnað saman á vefsetrið Euler Archive, þar sem hægt er að skoða þau í upphaflegu formi. Euler stuðlaði að framþróun á ...
Kertalogi er til kominn við það að vaxið í kertinu brennur. Bruni efnis felst í því að viðkomandi efni gengur í efnasamband við súrefni andrúmsloftsins. Við það rofna súrefnissameindir sem eru táknaðar með O2(g), þar sem bókstafurinn g táknar að efnið er í gasham.Sameindirnar í vaxinu má rita sem CnHm þar sem...
Athugasemd ritstjórnar: Þegar þetta svar var upphaflega skrifað var Plútó flokkaður sem ein af reikistjörnum sólkerfisins. 24. ágúst árið 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga aftur á móti nýja skilgreiningu á reikistjörnum. Plútó fellur ekki undir hana og telst nú til dvergreikistjarna. Reikistjörnurnar er...
Nokkuð hefur verið ritað um Einstein og framlag hans til vísindanna hér á Vísindavefnum, enda ástæða til þar sem hann var einn fremsti eðlisfræðingur allra tíma.
Hingað til hefur hins vegar ekki verið fjallað hér um kynhneigð Einsteins og er ástæðan einfaldlega að hún skiptir harla litlu máli í samanburði við k...
Í dag eru íbúar Ástralíu um 22 milljónir. Ástralía er sjötta stærsta land í heimi, um það bil 75 sinnum stærra en Ísland. Stærsti hluti landsins er eyðimörk. Flestir íbúanna, eða rúmlega 85%, búa við ströndina í suðaustur- og austurhluta landsins. Þar eru borgirnar Sydney, Melbourne, Adelaide, Brisbane og höfuðb...
Samkvæmt skýringum í greinargerð, sem fylgdi með frumvarpi sem síðar varð að lögum nr. 91/1991 um meðferð einkamála (héreftir nefnd EML) er gjafsókn samheiti fyrir „aðstoð sem aðili getur leitað til að sækja hagsmuni sína eða verja þá í dómsmáli“.
Um gjafsókn og gjafvörn er fjallað í XX. kafla EML og þar, eins ...
Svarið fer eftir því hvað átt er við með „undantekningar“.
Þegar stærðfræði er sett fram á kórréttan hátt á alltaf að vera sagt skýrt, fyrir hvaða verkefni aðferð dugar, og aðferðin á að duga án undantekninga í öllum tilvikum sem sagt er að hún dugi. Þannig séð verkar aðferðin án „undantekningar“.
Ef við h...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!