Í fróðlegu svari Stefáns B. Sigurðssonar við spurningunni Er húðin líffæri? kemur fram að húðin er stærsta líffæri líkamans. Í fullorðnum manni er yfirborð húðarinnar um 2 fermetrar og hún vegur um það bil 5 kg eða um 15% af líkamsmassanum.
Nánar má lesa um húðina í svarinu sem nefnt var hér í byrjun og öðrum s...
Eignarföll eintölu þriðju persónu fornafnanna hann, hún, það og eignarfall fyrstu, annarrar og þriðju persónu fleirtölu, okkar, ykkar, þeirra, eru notuð sem eignarfornöfn. Dæmi:Bíllinn minn/okkar er rauður en bíllinn þinn/ykkar er grænn.
Hjólið hans/hennar er grænt.
Línuskautarnir þeirra eru svartir.
Eignarforn...
Já, allir bein- og brjóskfiskar hafa eitthvað sem gæti kallast tunga. Rétt er þó að taka fram að þessi tunga er ólíkt tungum annarra hryggdýra. Dýrafræðingar nefna þetta einkennilega líffæri ekki tungu, heldur notast við fræðiheitið basihyal. Líkt og á við um tungu landhryggdýra er basihyal með sinafestingu aftarl...
Í rafræna ritinu Íslensk réttritun eftir Jóhannes B. Sigtryggsson er fjallað um tölur og tölustafi í 11. kafla. Þar kemur ýmislegt fram sem ætti að gagnast spyrjanda og öðrum sem vilja kynna sér reglur um meðferð talna sem eru skrifaðar með bókstöfum. Má þar til dæmis nefna almennu regluna um að rita tölur lægri e...
Orðið banani er talið hafa borist til Evrópu með Portúgölum sem fluttu það með sér frá Gíneu á 16. öld. Þar mun það hafa verið notað í einni af mállýskum heimamanna. Sama er að segja um orðið ananas að það munu Portúgalar einnig hafa flutt með sér til Evrópu á 16. öld. Það er talið fengið úr indjánamálunum tupí og...
Ef gengið er út frá því í nafninu að liðurinn Bakki sé sérnafn má rita Efri-Bakki en ef bakki er þarna venjulegt samnafn er ritað Efribakki. Þetta þarfnast nánari útskýringar sem fylgir hér á eftir.
Rithátturinn Efribakki samræmist reglu sem var sett fram í auglýsingu menntamálaráðuneytis um stafsetningu árið 1...
Þegar þetta er skrifað á fyrstu dögum júlímánaðar árið 2012 er gengi Bandaríkjadals um 125 kr., það er fyrir 125 kr. fæst 1 Bandaríkjadalur, samkvæmt vef Seðlabanka Íslands.
Áður hefur verið fjallað um hverju munurinn á kaup- og sölugengi gjaldmiðla sætir en þann 4. júlí árið 2012 var kaupgengi Bandaríkjadals 1...
Einn hektari (ha) er 10.000 fermetrar (m2).
Stundum þarf að breyta á milli mælieininga, úr hektara í fermetra eða öfugt og er það einfaldur útreikningur. Ef upphaflega stærðin er í hekturum en áhugi á að vita hversu margir fermetrar það eru þá er einfaldlega margfaldað með 10.000 en deilt með sömu tölu ef brey...
Forsetar Bandaríkjanna hafa alls verið 45 að sitjandi forseta, Donald Trump, meðtöldum.
Forsetar Bandaríkjanna hingað til:
George Washington 1789—1797 (Stjórnarskrá tekur gildi 1789.)
John Adams 1797—1801
Thomas Jefferson 1801—1809 (Vesturhlutinn sem tilheyrði Frakklandi innlimaður í Bandaríkin 1803.)
Jame...
Tiktaalik roseae, héðan í frá kallað tiktaalik, var forn hryggdýrategund sem fannst í jarðlögum frá seinni hluta devontímabilsins (fyrir 410-360 milljón árum). Tiktaalik var merkilegt dýr, eins konar millistig milli fiska með holduga ugga (kallaðir holduggar) og frumstæðra ferfættra dýra, sem sagt bæði fiskur og l...
Til þess að svara því geri ég ráð fyrir að lesandinn þekki hvað tvinntala (e. complex number) er, hvernig grunnaðgerðirnar samlagning, frádráttur, margföldun og deiling eru framkvæmdar á þeim, hvað samfellt fall (e. continuous function) er og að mengi tvinntalnanna myndi sléttu (e. plane) sem er táknuð með \(C\), ...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hvað er læsi? Hér er átt við læsi í sinni víðustu mynd ekki orðabókarskilgreiningu.
Orðið læsi í íslensku er notað bæði sem almennt orð og íðorð.
Læsi sem almennt orð
Sem almennt orð er læsi notað bæði í bókstaflegri merkinu og í yfirfærðri merkingu:
Í bóks...
James Clerk Maxwell fæddist í Edinborg árið 1831 en fjölskylda hans flutti skömmu síðar í sveitasetur á landareign sem faðir hans hafði erft. Frá því að James lærði að tala sýndi hann óslökkvandi áhuga á öllu sem hreyfðist, heyrðist í eða glampaði á og krafðist skýringa á því hvers vegna hlutir hegðuðu sér eins og...
Áður hefur verið fjallað um þetta efni í svari sama höfundar við spurningunni Hvernig vitum við að 1 + 1 = 2 og 2 + 2 = 4? Þar var stuðst við eftirfarandi skilgreiningu á náttúrulegu tölunum $1$, $2$, $3$, og svo framvegis:
Segjum að við höfum tvö söfn af hlutum og að við getum parað hlutina úr fyrra safninu sa...
Svonefnd kvikustrókavirkni er afleiðing afgösunar sem eykur seigju kvikunnar, og öflugt kvikuútstreymi viðheldur miklum rennslishraða. Hvort tveggja vinnur gegn myndun samfelldrar hraunskorpu og stuðlar þannig að myndun apalhrauns.[1] Virkni af þessu tagi myndar oft rauðglóandi kvikustrókahraun sem geta flætt mjög...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!