Sextándakerfi (einnig nefnt sextánundakerfi) er sætistalnakerfi með grunntölunni sextán. Sextándakerfi notar sextán tákn: 0, 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, A, B, C, D, E, F. Þá er Ahex = 10 í tugakerfi, Bhex = 11dec, Chex = 12dec, Dhex = 13dec, Ehex = 14dec og Fhex = 15dec.
Táknið „dec“ merkir að talan er rituð í t...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hverjir voru helstu ávarpstitlar kvenna á 19. öld? Hver var munurinn á frú, maddömu, fröken, jómfrú o.s.frv.?
Orðið maddama sem ávarpsorð er fyrst farið að nota í byrjun 18. aldar. Var það notað til að tala um eða ávarpa biskupsfrú, prestsfrú, kaupmannsfrú eða aðrar konur sem s...
Allt vatn sem við drekkum er „upphaflega“ regnvatn. Megnið af regnvatninu hefur gufað upp úr sjónum á suðlægari breiddargráðum, borist inn yfir landið með lægðum, þést og fallið til jarðar. Þaðan streymir það aftur til sjávar eftir ýmsum leiðum og hin eilífa hringrás lokast.
Hve gamalt vatnið er í kalda krananu...
Leikhúsbyggingar voru ekki til á Norðurlöndum á miðöldum. Það sama á reyndar við um um flest önnur Evrópulönd á sama tíma (um miðaldaleikhúsið annars staðar, sjá til dæmis Axton 1974; Tydeman 1978; og Wickham 1987). Elstu varðveittu leikrit Norðurlanda eru flest frá síðari hluta 16. aldar (Tobie Comedia (gefið út ...
Spurningin er hluti af lengri spurningu sem hljóðar svona:
Hvernig virkar kosningakerfið á Íslandi, hvað þurfa flokkar mikla kosningu til að koma manni á þing o.s.frv.?
Við bendum lesendum á að lesa svar sama höfundar við spurningunni Hvernig virkar kosningakerfið á Íslandi? en sérstaklega þó svarið við ...
Lyfið sem hér um ræðir heitir ivermectin og er flókið sýkingarlyf með margþætta gagnsemi. Það var uppgötvað 1975 og er notað um heim allan gegn margvíslegum ormasýkingum en einnig gegn öðrum sníkjudýrum á borð við kláðamaur. Notkunin einskorðast ekki við menn heldur er lyfið einnig gefið öðrum dýrum, til að mynda ...
Áður hefur verið fjallað um ævi Maurice Wilkins í svari sama höfundar við spurningunni: Hver var Maurice Wilkins?
Maurice Wilkins (1916-2004).Um það leyti er seinni heimsstyrjöldinni lauk var búið að skrásetja mikinn fjölda gena eða erfðvísa, sem stýra arfgengum einkennum í útliti og samsetningu lífvera ‒...
Í byrjun árs 1944 var orðið ljóst að Þjóðverjar væru að tapa heimsstyrjöldinni. Þeir höfðu borið lægri hlut í baráttunni um Atlantshafið og Sovétmenn höfðu snúið vörn í sókn á austurvígstöðvunum. Við Miðjarðarhaf höfðu bandamenn náð að hrekja Þjóðverja úr Afríku og ráðast inn í bæði Sikiley og Ítalíu. Þjóðverjar h...
Margar spurningar hafa borist Vísindavefnum um kalda stríðið og vígbúnaðarkapphlaupið sem því fylgdi. Hér er reynt að svara þeim Kristborgu Ágústsdóttur, Davíð Sigurðarsyni, Thelmu Hrönn Sigurdórsdóttur, Einari Hafliðasyni, Ernu Valdísi Jónsdóttur, Söndru Guðmundsdóttur, Berglindi Þorsteinsdóttur, Jarþrúði Hólmdís...
Upprunalega spurningin tók til nokkurra þátta og hluta hennar er svarað í öðru svari eftir sama höfund. Öll spurningin hljóðaði svona:
Sæl verið þið. Við strákurinn minn vorum að lesa að á Íslandi eru 80 tegundir af kóngulóm! En hvernig komust þær til Íslands? Og eru þær kannski margar séríslenskar tegundir, þ...
Stutta svarið
Möttullinn undir Reykjanesskaga er grein af Íslands-möttulstróknum (2. mynd). Nákvæm skoðun á 30 tímasettum sýnum úr 2021-hrauninu við Fagradalsfjall (3. mynd) sýnir að jarðmöttullinn undir Reykjanesskaga, sem hraunbráðin hefur bráðnað úr, er misleitur, að minnsta kosti á smáum skala, og sama á þ...
Margaret Mead sem með sanni má kalla eina af mæðrum mannfræðinnar, fæddist 16. desember 1901 í Fíladelfíu í Bandaríkjunum, elst fjögurra systkina. Móðirin var félagsfræðingur að mennt og faðirinn prófessor í hagfræði við háskólann í Pennsylvaníu. Mead lauk meistaraprófi í sálfræði frá Barnard College og stundaði d...
Harún al-Rashid (Hārūn al-Rashīd ibn Muḥammad al-Mahdī ibn al-Manṣūr al-ʿAbbāsī), var fimmti kalífi veldis Abbasída og ríkti frá 786-809. Hann er þekktastur á Vesturlöndum sem kalífinn sem kemur fyrir í verkinu Þúsund og ein nótt. Verkið er safn af sögum sem eiga...
Fyrirbærafræði (e. phenomenology, þ. Phänomenologie) er heimspekistefna sem kom fram á 20. öld og hefur haft ómæld áhrif á iðkun heimspekinnar. Kjarni fyrirbærafræðinnar er rannsókn á gerð mannlegrar vitundar eins og hún birtist frá sjónarhorni fyrstu persónu. Grundvallarformgerð vitundarinnar er í því fólgin að h...
Margir lesendur Vísindavefsins hafa spurt um kviðvöðvann, sem oft er vísað til með ensku orðunum „six pack“ en kallast á íslensku kviðbeinn. Hér er öllum þessum spurningum svarað lið fyrir lið.
Félagi minn er ekki með six pack, hann er með eight pack. Er það eðlilegt?
Já, það er eðlilegt. Enska orðið „six pa...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!