Það varð landrekskenningu Alfreds Wegener (1915) að falli að hann gat ekki bent á krafta sem væru þess megnugir að flytja meginlöndin. Arthur Holmes (1933) stakk upp á því að iðustraumar í jarðmöttlinum væru þarna að verki, en þó var það ekki fyrr en með ritgerð Harry Hess (1962) að fram kom heildstæð mynd af glið...
Upphaflegar spurningar voru:
Hvað er marijúana? (Eðvarð)
Hver er munurinn á hassi og "grasi"? (Sólveig)
Er einhver munur á hassi og marijúana? (Sólveig)
Tetrahýdrókannabínól (skammstafað THC) finnst í kannabisplöntunni, Cannabis sativa. Hún óx upphaflega í Mið-Asíu og er stundum nefnd hampjurt þar sem vinn...
Þrýstingur (e. pressure) er skilgreindur sem kraftur á flatareiningu, það er newton á fermetra, og er hann táknaður með bókstafnum p. Auðvelt er að reikna þrýsting á ákveðnu dýpi h í vökva eða gasi með tiltekinn eðlismassa ρ (ρ er gríski bókstafurinn "hró" eða "ró" og SI-einingin fyrir eðlismassa er kg/m...
Stutta svarið er einfaldlega já, en þó ekki í upphafi Þrælastríðsins.
Tildrög borgarastríðs Bandaríkjanna, eða Þrælastríðsins, voru meðal annars ósætti landbúnaðarríkja sunnanmegin í landinu við skattlagningu ríkisins á ýmsar vörur sem iðnvæddu ríkin norðar í landinu gátu framleitt sjálf en Suðurríkin ekki. Að ...
James Clerk Maxwell fæddist í Edinborg árið 1831 en fjölskylda hans flutti skömmu síðar í sveitasetur á landareign sem faðir hans hafði erft. Frá því að James lærði að tala sýndi hann óslökkvandi áhuga á öllu sem hreyfðist, heyrðist í eða glampaði á og krafðist skýringa á því hvers vegna hlutir hegðuðu sér eins og...
Eiturefni eru afar fjölbreytileg að gerð og uppruna. Paracelsus (1493-1541), sem hefur verið nefndur faðir nútíma lyfja- og eiturefnafræði, setti fram þá kenningu að öll efni væru í raun eitruð og það væri einungis spurning um skammta hvort þau yllu eitrunum eða ekki. Þó að langt sé um liðið síðan þessi kenning va...
Eitraðar stofuplöntur
Varasamasta stofuplanta hér á landi er líklega nería (Nerium oleander). Hún getur verið banvæn og eru nánast allir hlutar plöntunnar eitraðir. Skyld henni er vinka (Vinca rosea eða Catharanthus roseus). Hún er líka eitruð en er jafnframt mikilvæg lækningaplanta: Úr henni eru unnin lyf sem ...
Stutta svarið
Möttullinn undir Reykjanesskaga er grein af Íslands-möttulstróknum (2. mynd). Nákvæm skoðun á 30 tímasettum sýnum úr 2021-hrauninu við Fagradalsfjall (3. mynd) sýnir að jarðmöttullinn undir Reykjanesskaga, sem hraunbráðin hefur bráðnað úr, er misleitur, að minnsta kosti á smáum skala, og sama á þ...
Í janúarmánuði 2018 voru birt 57 ný svör á Vísindavefnum. Að auki var fjölmörgum fyrirspurnum svarað með því að vísa lesendum á efni sem til er og sumum spurningum var svarað með tölvupósti og símtölum.
Mest lesna svar janúarmánaðar tilheyrir nýjum flokki á Vísindavefnum sem helgaður er ártalinu 1918. Í þessum ...
Á Rósettusteininn er letraður sami texti á þremur mismunandi ritmálum: híeróglýfum (e. hieroglyphic) eða helgrúnum sem notaðar voru fyrir trúarleg efni, alþýðuletri (e. demotic) og loks grísku sem yfirstéttin talaði. Textinn er ritaður af prestum frá Memfis (e. Memphis) í Egyptalandi árið 196 f. Kr. og er Ptólemaí...
Upprunalega spurningin var:
Hvernig mæla COVID-heimapróf smit?
Algengustu heimaprófin sem mæla kórónuveirusmit byggja á svokallaðri mótefnaskiljun (e. immunochromatography), en nafnið er dregið af því að mótefni gegn prótínum SARS-CoV-2-veirunnar eru notuð til að mæla hvort veiran sé til staðar í sýni eða e...
Helstu eiturefni sem finnast í ávöxtum og grænmeti hér á landi eru svonefnd varnarefni. Þeim er oftast skipt í fjóra flokka, það er skordýraeitur, illgresiseyðar, sveppalyf og stýriefni, en það eru efni sem stjórna vexti plantna.
Til eru að minnsta kosti 1.300 virk efni sem falla undir skilgreininguna varnarefn...
Penisilín (e. penicillin) er fúkkalyf sem notað er til að vinna á bakteríusýkingum. Í daglegu tali er orðið penisilín ekki notað um eitt ákveðið lyf heldur nær það yfir mismunandi tegundir af penisilíni og hóp sýklalyfja sem eru búin til úr penisilíni. Penisilín-sýklalyf eru mest notuðu sýklalyf hér á landi enda e...
Áburðarsprengju mætti frekar kalla ammoníumnítratsprengju, því hægt er að gera sprengju úr ammoníumnítratáburði en ekki öðrum tegundum áburðar.
Snemma á 19. öld var farið að nota Chile saltpétur eða natríumnítrat (NaNO3) sem áburð og vitað var að það var köfnunarefnið (efnatákn N) sem jók mjög vöxt plantna. Þe...
Nú á dögum er David Ricardo (1772-1823) almennt eignað að hafa mótað hina almennu tækni hagfræðinnar. Sá höfundur sem þeir Ricardo og Thomas Malthus vinur hans1 lásu einna mest um hagfræðileg efni var Adam Smith. Smith hafði mjög víðfeðma sýn en Ricardo þrengdi sjónarhornið. „Markmið mitt er að skýra lögmál og til...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!