Í íslenskri þjóðtrú er að nokkru minnst á steindepilinn. Jón Guðmundsson lærði (1574-1658) kann að vísu ekkert frá honum að segja (í ritinu um Íslands aðskiljanlegar náttúrur) annað en að flokka hann sem ,,meingaðan" fugl. Eggert Ólafsson nefnir í Ferðabók sinni (1772) að það sé algeng trú að ef ær eða kýr stíga n...
Orðið áfengi á sér gamlar rætur og er sýnilega tengt sögninni fá og forsetningunni á. Sagnarsambandið kemur enda fram í fornu máli í merkingu sem greinilega býr að baki nafnorðinu. Í orðabók Fritzners um fornmálið er tilgreint sambandið drykkr fær á e-n og vísað til þriggja heimilda því til staðfestingar.
Sagn...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Tengdamóðir mín sagði um sjóinn við Sæbrautina þegar við keyrðum þar framhjá í dag, "Það er helvítis garður í honum." Ég finn hvergi neitt á netinu um þetta. Sjórinn var með mikið af hvítum öldutoppum. Tengdamóðir mín, fædd 1925, bjó öll sín ár í Álftafirði við Dj...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvernig er hérað skilgreint samkvæmt íslenskri venju? Frá landnámi hefur verið talað um að eitthvað sé í héraði og mun síðar komu héraðsdómar en mér hefur ávallt þótt það óljóst hvað átt sé nákvæmlega við með héraði á Íslandi. Ömt, sýslur, hreppar og sveitarfélög þekkjum við en hé...
Laugahraun er eitt af meira en 10 hrafntinnu- og líparíthraunum sem runnið hafa eftir ísöld á Torfajökulssvæðinu. Þorvaldur Thoroddsen „fann“ þrjú þeirra seint á 19. öld og lýsti í ferðabók sinni og víðar — það voru Laugahraun, Námshraun og Dómadalshraun — en síðan hafa margir skrifað um þessi hraun og almennt um ...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað merkið orðið „sýling“ í heiti á Sýlingarfelli fyrir ofan Grindavík?
Sýlingarfell, sem stundum er kallað Svartsengisfell, er um 200 m hátt fell á Reykjanesskaga, rétt austan við Svartsengi. Í örnefnalýsingu fyrir Hóp í Grindavíkurhreppi er heiti fellsins skýrt svo:...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hversu mikið vissu Íslendingar um eldgos og eldfjöll á árum áður? Höfðu þeir skilning á því hvað væri að eiga sér stað? Þá á ég til dæmis um næstu árhundruð eftir landnám.
Í Landnámabók, sem tekin var saman af fróðum mönnum upp úr 1100, má finna 14 atriði sem fjalla u...
Hugmyndir fólks um eðli og orsök norðurljósa hafa verið með ýmsu móti í gegnum aldirnar. Víðast hvar voru þau hinum ómenntaða meirihluta fólks innblástur sagna og hugmynda um hulda heima, en á hinn bóginn hafa menn lengi reynt að útskýra eðli þeirra með lögmálum náttúrunnar. Elstu hugmyndir norrænna manna í þessa ...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Þar sem nytjahænur hafa latínuheitið Gallus Domesticus, hefur þá „gamla“ íslenska hænan eitthvert annað nafn, til dæmis Gallus Domesticus Islandicus?
Nytjahænsni nútímans eru komin af svonefndum bankívahænsnum (Gallus gallus) en það er ein fjögurra tegunda innan ættkvíslar ...
Tertíertímabilið hófst fyrir 65 milljón árum, um það bil sem Norður-Atlantshaf tók að opnast. Frá þeim tíma, þegar Ameríku- og Evrópuflekarnir voru að gliðna sundur, eru eldgosamyndanir á Norður-Írlandi, Skotlandi, Færeyjum og Austur-Grænlandi. Neðansjávarhryggur frá Grænlandi um Ísland til Færeyja „yngist“ úr báð...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Hver er ætt og latneskt heiti yfir aloe vera plöntuna?
Hvað er svona merkilegt við aloe vera?
Hvað er Aloe barbadensis miller? Hefur hún lækningarmátt?
Plantan aloe vera sem nefnd hefur verið alvera eða alóvera[1] á íslensku, hefur þykk blöð og þyrna og líkist því óneitan...
Þjóðsögur af hröfnum í íslenskum þjóðsagnasöfnum og ritum um þjóðlegan fróðleik eru flestar tengdar spásagnargáfu hrafnsins og fjalla um hann sem feigðarboða. Mikil hjátrú er bundin við fuglinn og víðast hvar í heiminum er hann talinn illur fyrirboði, en það er þó ekki algilt.
Mörg grundvallarminni í íslenskum...
Landnámsmenn Íslands hafa flestir verið ókunnugir jarðhita, svo að hverir og laugar Íslands hljóta að hafa komið þeim á óvart. Örnefni sýna að þeim hefur hætt til að finnast hveragufan vera reykur; margir jarðhitastaðir eru kenndir við reyk, en gufuörnefni eru fá og líklega ekkert sérstaklega á jarðhitastöðum, end...
Kartöflur eru upprunnar í Suður-Ameríku. Þær bárust til Evrópu um miðja 16. öld en kartöflurækt fór hægt af stað í Evrópu. Í þeim efnum voru Norðurlandabúar engin undantekning. Garðyrkja átti ekki upp á pallborðið hjá Íslendingum sem byggðu afkomu sína á bústofni. Einhverjir kálgarðar voru í rækt á Íslandi á 17. ö...
Zeólítar eru holufyllingar; þeir falla út úr volgu eða heitu grunnvatni (80-230°C) í blöðrum og sprungum í berginu. Ásamt silfurbergi (kalkspati) eru zeólítar frægustu skrautsteinar Íslands, en fyrstir til að lýsa þeim hér á landi voru Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson í Ferðabók sinni (568. grein).
Zeólítar my...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!