Bókin The Clay Marble er skrifuð af taílenska rithöfundinum Minfong Ho. Bókin segir sögu tveggja stúlkna, Döru og Jantu, og gerist í Kambódíustríðinu sem geisaði 1979-1989. The Clay Marble nálgast því skilgreiningu sögulegrar skáldsögu, þar sem hún segir frá afdrifum persóna sinna í sögulegu umhverfi, raunverulegu...
Skipta ber Víetnamstríðinu í tvö aðskilin skeið. Hið fyrra var stríð Frakka til að halda nýlendu sinni Víetnam og hindra að þjóðernisssinnaðir kommúnistar næðu henni á vald sitt. Þetta nýlendustríð hófst 1945 og stóð til 1954. Hitt Víetnamstríðið hófst smám saman á árunum um og eftir 1960, var komið í fullan gang ...
Reglan sem vanalega gildir um röðun tákna í efnaformúlum er sú að frumefnið sem er rafjákvæðara (e. more electropositive), það er að segja með minni rafdrægni, kemur fyrst. Þannig skrifum við HCl fyrir vetnisklóríð en ekki ClH, NaCl fyrir matarsalt en ekki ClNa og NO2 fyrir köfnunarefnistvíoxíð en ekki O2N. Samkvæ...
Upprunalega spurningin var:
Hver er áhrifamesta ljósmynd sem tekin hefur verið? Er einhver leið til að meta það?
Í raun er engri vísindalegri aðferð beitt til að meta áhrif ljósmynda á einstaklinga, almenningsálitið, stjórnmálamenn eða aðra sem völd hafa í samfélaginu, en nokkrar myndir hafa náð það mikill...
Á 14. öld var töluð í Bretlandi svokölluð 'miðenska', sem var töluvert frábrugðin þeirri ensku sem við þekkjum nú. Hún hafði breyst mikið frá engilsaxnesku eða fornensku, sem töluð var í Englandi fram eftir 12. öld, en fornenska var mun líkari íslensku en nútímaenska. Miðenska var rík af mállýskum, bæði rituðum og...
Luminol (C8H7O3N3) er hvítt eða gulleitt, kristallað efni sem leysist auðveldlega upp í vökva. Þegar það oxast, það er bætir við sig súrefnisfrumeindum (O), gefur það frá sér einkennandi bláa ljómun. Þetta er eitt af því sem hægt hefur verið að nýta við rannsóknir á sakamálum.
Þeir sem rannsaka vettvang glæpa v...
Upprunalega var einnig spurt um hvenær ár tígrisdýrsins var seinast og hve mörg dýr eru í kínverska almanakinu. Þeim spurningum er svarað í lok þessa svars.
Asíubúar eiga aragrúa þjóðsagna um tígrisdýr. All frá Indlandi og austur til Ussuri í Rússlandi, þar sem hið svokallaða síberíska tígrisdýr lifir, finnast ...
Jesús kenndi lærisveinunum bænina Faðir vor, oft kölluð faðirvorið, þegar þeir báðu hann um að kenna sér að biðja. Flestir þekkja bænina á okkar ástkæra ylhýra tungumáli:
Faðir vor, þú sem ert á himnum,
helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort dagle...
Spurningin í fullri lengd hljómaði svona:
Eru vínber raunverulega ber? Á íslensku inniheldur orðið vínber augljóslega ber en yfirleitt er það ekki þannig í erlendum tungumálum. Síðan er mjög mismunandi eftir því hvar maður leitar hvert svarið við þessari spurningu er. Auk þess hef ég tekið eftir því að það er mi...
Helluhraun (e. pahoehoe) er algengasta tegund basalthrauna á landi. Helluhraunbreiður myndast að jafnaði í mörgum hraunflóðum, þar sem hvert þeirra er mótað úr fjölda hraunsepa (sjá skýringarmynd). Slíkar hraunbreiður myndast í hraungosum, hvort heldur frá sprungum eða hringlaga gosrás, þar sem framleiðnin er hl...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!