Ýmislegt einkennir spendýrin. Þar mætti nefna loðinn feld sem veitir skjól en þó hafa margar tegundir misst hann í gegnum þróunarsöguna. Auk þess tengist neðri kjálkinn beint við höfuðkúpuna, þau hafa bein í miðeyra, það er hamar, steðja og ístað. En það sem flestum dettur í hug þegar talað er um spendýr er að þau...
Eitt helsta einkennið sem skilur að spendýr og önnur hryggdýr er sá hæfileiki að geta alið ungviði sitt á næringarríkri mjólk sem framleidd er í spenum (e. mammary glands). Það er hins vegar afar erfitt að svara nákvæmlega spurningunni um hvernig spenarnir komu til í þróun þessa hóps dýra.
Ýmsar kenningar haf...
Þróunarfræði gerir greinarmun á tvennskonar spurningum: Nálægum (proximate) sem oftast eru „hvernig” spurningar (hvernig flyst blóðið um æðarnar) og fjarlægum eða endanlegum spurningum (ultimate) sem oftast eru spurningar „af hverju” eða „til hvers” eins og hér er spurt.
Almennt svar byggist á tilgangshyggju (t...
Eina spendýrið sem staðfest er að framleiði eitur er breiðnefurinn (Ornithorhynchus anatinus) sem er afar sérstætt spendýr og sker sig mjög frá öðrum spendýrum jarðarinnar. Eins og önnur spendýr hefur breiðnefurinn jafnheitt blóð en hitastig þess er lægra en hjá öðrum ættum spendýra eða 25-30 °C. Það er að jafnaði...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Hvers vegna hafa mjónefir og breiðnefir bæði einkenni spendýra og skriðdýra? Hvernig eru þeir flokkaðir?Hér er einnig að finna svar við spurningunni:Hvaða tvö spendýr verpa eggjum?
Spendýr skiptast í þrjá undirflokka: legkökuspendýr, pokadýr og spendýr sem verpa eggjum. Aðei...
Hvalir eru svokölluð legkökuspendýr. Spendýrum er skipt í þrjá hópa: monotremata (breiðnefur og mjónefur), marsupials (pokadýr eins og kengúrur) og placentals (legkökuspendýr eins og prímatar, hestar og hvalir).
Dýr í þessum hópum eru líffræðilega áþekk hvað varðar uppbyggingu kynkerfa, æxlun og þroska ungviða...
Það fer eftir heimildum í hversu margar tegundir lífríki jarðar er flokkað. Fræðimenn nota mismunandi aðferðir eða forsendur við flokkunina, það sem sumir telja undirtegund telja aðrir vera sérstaka tegund og svo framvegi.
Þetta svar er byggt á upplýsingum frá alþjóðlegum náttúruverndarsamtökum sem kallast Inte...
Í stað þess að tala um ‘heitt’ eða ‘kalt blóð’ nota líffræðingar hugtökin jafnheitt blóð (e. endothermic) og misheitt (e. exothermic). Um dýr sem hafa jafnheitt blóð gildir að mjög litlar sveiflur verða á líkamshita þeirra. Þetta á til að mynda við um menn. Hitasveiflur hjá dýrum með misheitt blóð eru hins vegar...
Vísindamenn telja að aðskilnaður á milli legkökuspendýra og pokadýra hafi orðið á meðan risaeðlur ríktu enn á jörðinni. Ennfremur sýna nýlegar rannsóknir að þriðji hópur spendýra, nefdýr (Monotremata), en til hans heyra breiðnefur og mjónefur, hafi skilist frá fyrrnefndu tveimur flokkunum nokkuð fyrr. Hvenær þetta...
Breiðnefurinn (Ornithorhynchus anatinus) er spendýr, þótt enga hafi hann spenana. Hann nærir ungviði sitt á mjólk sem smitast út um húðina líkt og hjá mjónefnum (Tachyglossus aculeatus). Breiðnefurinn telst til ættbálks nefdýra (Monotremata) rétt eins og mjónefurinn, en nefdýr eru ein þriggja greina spendýra (Mamm...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!