Stór trukkur er á leið yfir brú. Brúin ber einungis 7000 kg og engu máli skiptir hvar bíllinn er staðsettur, brúin mun alltaf þola sömu þyngd. Trukkurinn er hins vegar nákvæmlega 7000 kg og getur þannig keyrt út á brúna vandræðalaust. Brúin er heldur löng, um 50 km. Enginn annar bíll né nokkuð annað er á ferð um b...
Sagan um Lagarfljótsorminn er rúmlega 650 ára gömul en ormsins er fyrst getið í annálum árið 1345. Þannig má gera ráð fyrir því að ormurinn væri enn eldri hefði hann verið til.
Lagarfljótsormsins er fyrst getið í annálum árið 1345.
Allar lífverur á jörðinni deyja á endanum en ekkert dýr hefur náð hærri aldri ...
Á 20 öld, og væntanlega á fyrstu öldum Íslandsbyggðar, voru hjarnmörk við sunnanvert Ísland í um 1100 m hæð yfir sjó, en mörg ár lifðu þó skaflar af sumur í Esjunni þótt hún nái aðeins 914 m y.s. Það gæti einnig oft hafa gerst næstu 2000 ár fyrir landnám, en fram að því hefur Esjan væntanlega verið snjólaus hver h...
Nafn árinnar Korpu í Mosfellssveit er hugsanlega dregið af orðinu korpa 'hrukka', samanber kyrpingur. Bæjarnafnið Korpúlfsstaðir var reyndar stundum skrifað Kortólfsstaðir í eldri heimildum (Ísl. fornbréfasafn I:507) eða Kortúlfsstaðir (Jarðabók ÁM og PV III:450), en Korpúlfsstaðir er væntanlega eldra. Við bæinn e...
Á vef Hagstofunnar má sjá að árið 2009 fæddust 5.026 lifandi börn á Íslandi og er það fjölmennasti árgangur Íslandssögunnar, að minnsta kosti til þessa. Næstflest fæddust árið 1960 eða 4.916.
Nýfætt barn.
Talsverðar sveiflur eru í barnsfæðingum en þeim hefur heldur fækkað undanfarin ár. Árin 2008-2010 fæddu...
Klukkan 13:22 er sól í hádegisstað í Hveragerði frá 24. til 31. maí.
Svona reiknuðum við það út:
Almanak Háskólans segir okkur að hádegi sé nú í Reykjavík kl. 13:25. En Hveragerði er austan við Reykjavík og þar eð sólin gengur frá austri til vesturs er hún fyrr í hádegisstað þar.
Sólin gengur 360° um jör...
Örðugt er að segja hvaða fiskar eru hættulegastir enda er hætta ávallt afar aðstæðubundin.
Eitruðustu fiskar heims eru hins vegar af ættkvísl steinfiska. Tvær tegundir, sem er að finna í Indlands- og Kyrrahafi, og nefnast hryllisteinn (Synanceja horrida) og vörtusteinn (Synanceja verrucosa), hafa stærsta ei...
Það getur verið álitamál hvað ber að telja til fyrirtækja í þessu samhengi, til dæmis hefur Rauði herinn í Kína sennilega fleiri menn á launum en nokkur önnur stofnun í heimi. Það er þó vart hægt að líta á heri sem fyrirtæki og því virðist Indverska járnbrautafélagið hafa vinninginn en þar störfuðu rétt ríflega ei...
Árfætlur (copepoda) eru algeng krabbadýr sem lifa víða. Þær finnast jafnt í sjó sem ferskvatni, í stöðuvötnum, straumvatni og jafnvel í rökum jarðvegi og mosa. Í vistkerfi sjávar gegna þær mikilvægu hlutverki, meðal annars eru þær fæða fiskilirfa.
Algengasta tegund árfætlu í hafinu umhverfis Ísland er rauðátan...
Framlegð og álagning eru náskyld fyrirbrigði og einfalt að skýra með dæmi. Gerum ráð fyrir að verslun kaupi vöru á 100 krónur og selji á 125 og sleppum virðisaukaskatti til að einfalda málið (við svíkjumst þó auðvitað ekki undan því að greiða virðisaukaskatt!). Þá eru bæði álagning á vöruna og framlegð af henni 25...
Fernan var fundin upp af sænsku fyrirtæki sem heitir Tetra Pak. Fyrirtækið kynnti vél til fjöldaframleiðslu fernunnar á blaðamannafundi þann 18. maí 1951. Stofnendur Tetra Pak voru Ruben Rausing og Erik Wallenberg sem kalla má uppfinningamenn fernunnar.
Í fyrstu var fernan þríhyrningslaga, það er fjórflötungur ...
Með innláns- eða innstæðutryggingum er átt við að sá sem á fé á reikningi í banka eða sparisjóði getur fengið féð að hluta eða í heild greitt úr tryggingasjóði ef bankinn eða sparisjóðurinn getur ekki greitt það. Á Íslandi annast Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta þetta hlutverk.
Tryggingarsjóður inn...
Í svari Sævars Helga Bragasonar og Tryggva Þorgeirssonar við spurningunni Hvað eru margar stjörnur í geimnum? kemur fram að almennt er talið að í Vetrarbrautinni okkar séu um 100-400 milljarðar stjarna.
Ef við gefum okkur að vetrarbrautir séu alls 100 milljarðar og að meðaltali séu um 200 milljarðar stjarna í ...
Virðisaukaskattur leggst ofan á verð vöru og þjónustu. Skattþrepin eru tvö, 24,5% og 14%.
Ef við tökum sem dæmi vöru í hærra skattþrepinu sem seljandi vill fá 1.000 krónur fyrir þá verður útsöluverð hennar, með 24,5% virðisaukaskatti, 1.245 krónur. Þetta má til dæmis reikna með því að margfalda 1.000 með 1+24,5...
Bræðslumark er það hitastig þar sem jafnvægi ríkir milli storkuhams (fastefnisfasa) og vökvafasa viðkomandi efnis. Bræðslumark er háð þrýstingi sem umleikur efnið.
Storka eða fast efni einkennist af reglubundinni niðurröðun efniseinda (sameinda eða frumeinda) í kristallsgrind. Slík kristallögun helst vegna te...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!