Samkvæmt vefmælingu Modernus voru tíu vinsælustu svör júlímánaðar á Vísindavefnum árið 2012 þessi hér:
Hver er meginuppistaðan í kenningum Vísindakirkjunnar?
Hvers vegna kreista sumir tannkremstúpurnar að framan en ekki aftan frá eins og eðlilegt er?
Gáta: Hvað er strætóbílstjórinn gamall?
Gáta: Hvernig er h...
Hér er einnig að finna svar við spurningu Þórólfs Sveinssonar og Gríms Garðarssonar: Hvers konar starf fer fram innan Vísindakirkjunnar?Á íslensku virðist orðið vísindakirkja notað sitt á hvað um tvær óskyldar trúarhreyfingar. Önnur kallast á ensku Church of Scientology og verða henni gerð skil í þessu svari. Hin ...
Thomas Moore var víðfrægt ljóðskáld og rithöfundur og var uppi frá 1779 til 1852. Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur þýtt ljóð eftir Moore sem heitir Huldumál.
Valdir titlar á verkum sem hafa ekki verið þýdd á íslensku:
THE POETICAL WORKS OF THOMAS LITTLE, 1801
EPISTLES, ODES AND OTHER POEMS, 1806
CORRUPTION ...
Sjávartengd ferðaþjónusta er ferðamennska á eða við sjó. Þessi tegund ferðamennsku er einkar mikilvæg eylöndum þar sem þau eru umlukin sjó og hafið hefur alltaf skipt miklu máli fyrir afkomu, samgöngur og menningu.
Maðurinn hefur frá fornu fari leitað til hafs og strandar, ekki bara sér til lífsviðurværis, hel...
Um þetta hefur verið fjallað á almennan hátt í svari við spurningunni Af hverju er latína sem er að deyja út notuð í líffræði? og bendum við lesendum á að lesa það svar fyrst. Sömu ástæður og koma fram í því svari gilda um líffærafræðina. Þar er latína notuð í fyrsta lagi vegna þess að hún hefur verið notuð lengi ...
Um gerð arkarinnar segir í fyrstu bók Móse að hún skuli gerð úr góferviði, brædd biki utan og innan og enn fremur segir þar: Glugga skalt þú gjöra á örkinni og búa hann til á henni ofanverðri, allt að alin á hæð, og dyr arkarinnar skalt þú setja á hlið hennar og búa til þrjú loft í henni: neðst, í miðju og efs...
Að öllum líkindum fann enginn einn einstaklingur upp snjóbrettið. Margir gera tilkall til þess að hafa fundið það upp. Til eru að minnsta kosti tvær sögur af upphafi þess frá svipuðum tíma.
Sú fyrri hljómar á þá leið að árið 1964 hafi Sherman Poppen, frá Michigan, búið til leikfang fyrir dóttur sína, svonefnd...
Hér er einnig svarað spurningu Bjarkar Bjarnadóttur Hver fann upp penisilínið, hvernig var það uppgötvað og hvenær var það fyrst notað?Sir Alexander Fleming (1881-1955) var breskur vísindamaður sem frægastur er fyrir uppgötvun sína á fyrsta sýklalyfinu, penisilíni.
Hann fæddist nálægt bænum Darvel í Skotlandi á...
Svarið við þessu er auðvitað já eða: já, auðvitað!
Það að einhver verður engill jafngildir því að hann/hún/það fái vængi. Formúlan fyrir þessu er sem hér segir:x verður engill <=> x -> x + vængirMeð því að setja x = fugl í þessari almennu formúlu fáum viðfugl verður engill <=> fugl -> fugl + vængiro...
Það er hægt að gera ýmislegt til þess að draga úr eldsneytisnotkun bifreiða. Á vef Orkuseturs er til dæmis að finna ágætar ábendingar þess efnis og eru þær birtar hér með góðfúslegu leyfi.
Forðist öfgar í aksturlagi
Ef aksturslagið miðast við að taka hratt af stað og snögghemla þá getur eyðslan aukist um all...
Þessi spurning virðist tvíþætt. Annars vegar er spurt: Af hverju hefur mannkynið einhvern eiginleika sem það hefur – nefnilega þann að vera svona forvitið. Þeirri spurningu er helst svarað með vísun í þróunarkenninguna: Þessi eiginleiki hefur reynst þessu dýri (manninum) vel til að komast af.
Höfum í huga að ví...
Málmleysingjar eru frumefni sem teljast ekki til málma. Þeir geta hvorki leitt rafmagn né hita mjög vel og eru mjög brothættir ólíkt málmunum. Meðal málmleysingja eru eðalgastegundir, halógenar, vetni, súrefni, kolefni og kísill. Við stofuhita eru allir málmleysingjarnir annað hvort í gasham eða storkuham, fyrir u...
Stærðfræðin á tvennar rætur. Annars vegar í þörfinni fyrir að telja, halda reiður á hlutunum í kringum sig og eigin eigum. Hins vegar í formunum í umhverfinu.
Þörfin fyrir að telja og talning urðu grundvöllurinn að reikningi. Þegar búið var að telja hóp hér og hóp þar, til dæmis með fimm og sjö, lá næst við að...
Vísindavefurinn hefur fengið nokkrar spurningar um sveppasýkingar, þeirra á meðal:Hvað er vitað um offjölgun Candida albicans í líkama (gersveppasýking)?
Hver er orsök og meðferð við sveppasýkingar í munni?
Hvað er gersveppasýking?
Svarið hér á eftir er um sveppasýkingar almennt en ekki um einkenni og meðferð v...
Forrest Gump er persóna sem leikarinn Tom Hanks lék í frægri kvikmynd frá árinu 1994. Myndin byggir á samnefndri bók eftir rithöfundinn Winston Groom. Þar sem Forrest Gump var ekki til í raun og veru er ekki hægt að sjúkdómsgreina hann.
Hins vegar er vel hægt að velta því fyrir sér hvernig hann væri greindur e...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!