Að fá sér einn gráan merkir að ‘fá sér snafs, fá sér neðan í því’. Jón G. Friðjónsson nefnir orðasambandið í bók sinni Mergur málsins (2006:270) en gefur enga skýringu.
Ég tel líklegast að upphaflega hafi verið átt við brennivínsstaup, landa eða vodka, það er gráleitan eða litlausan drykk. Ég hygg að fáir eða ...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hver er uppruni orðsins “að gubba”? Hvaðan kemur orðið gubb og hver er merking orðsins?
Í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:285) er sögnin gubba ‘æla, selja upp’ og nafnorðið gubb ‘uppköst, spýja’ tengd nýnorsku sögninni gubba ‘gufa upp, mynda þoku’. Teng...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Hvers vegna eru sum sýklalyf kölluð fúkkalyf... eða eru kannski öll sýklalyf fúkkalyf?
Orðið fúki eða fúkki merkir ‘ódaunn, mygla’ en orðið er einnig haft um myglað hey og rotið þang.
Fúkkalyf, fúkalyf eru framleidd með ræktun myglusveppa eða gerla. Algengara er í dag ...
Laupur hefur fleiri en eina merkingu: ‘meis; hrafnshreiður; gamall og slitinn hlutur; óáreiðanlegur maður; viðarstafli’. Í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar (1989:548–549) er upphafleg merking talin karfa (úr trjáberki) og hinar merkingarnar leiddar af henni. Í fornu máli er merkingin ‘karfa’ nær ...
Orðið kind hefur fleiri en eina merkingu. Það er í almennu máli notað um sauðkindina en það er einnig notað um kyn og ætt og er þá í fleirtölu kindir. Forskeytið ó- er einkum notað til að tákna andstæðu og snúa við merkingu síðari liðar eins og til dæmis ánægður – óánægður, frelsi – ófrelsi. Það er einnig notað ti...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Getur einstaklingur vitað hvort hann er Gyðingur með því að taka próf? Og þá hvar.
Spurningin fjallar um uppruna einstaklings. Ímyndum okkur Jón Strand, sem rekur á fjörur en man ekkert um sitt fyrra líf. „Hver er ég og hvaðan kom ég“, væru eðlilegar fyrstu spurningar Jóns. Ha...
Sú skoðun hefur mestan hljómgrunn að synd sé gamalt tökuorð sem unnið hafi sér sess í norður-germönskum málum fyrir kristin áhrif. Veitimálið sem orðið kom úr er fornsaxneska þar sem til var orðið sundia í merkingunni ‘yfirsjón, brot á réttri hegðun’. Orðið var einnig til í öðrum vestur-germönskum málum, í fornháþ...
Norræna orðið yfir fílinn hefur sennilega borist með víkingum norður á bóginn. Vitað er að þeir ferðuðust langt suður í álfur meðal annars í því skyni að stunda verslun. Þá hafa þeir án efa kynnst fílabeini og arabíska heitinu fil á dýrinu. Í fornsænsku og gamalli dönsku var notað orðið fil en fíll í forníslensku ...
Fyrstu sögurnar sem fjalla um gralinn eru frá 12. og 13. öld. Samkvæmt sumum þeirra er gralinn sá bikar sem Jesús drakk úr við síðustu kvöldmáltíðina. Þessi bikar var svo sagður hafa verið notaður til að safna því blóði Krists sem draup af honum á krossinum. Gralnum er oft eignaðir yfirnáttúrulegir eiginleikar og ...
Orðið prettur merkir ‘bragð, svikabrella’ og þekkist þegar í elsta íslensku máli. Sögnin að pretta er einnig gömul í málinu í merkingunni ‘svíkja, leika á einhvern’.Sá sem er prettinn eða prettóttur er ‘bragðvís, brellinn’. Prettari virðist ekki mikið notað en þá um þann sem hefur gaman að því að leika á aðra, sví...
Orðasambandið að vera með böggum hildar merkir að ‘vera kvíðinn, áhyggjufullur’, til dæmis „Jón var með böggum hildar í nokkra daga áður en hann fór í bílprófið.“ Elstu dæmi um það í seðlasafni Orðabókar Háskólans eru frá upphafi 19. aldar úr riti Guðmundar Jónssonar, Safn af íslenzkum orðskviðum (1830). Þetta er ...
Að hafa í fullu tré við einhvern merkir að 'standa einhverjum á sporði, vera jafnoki einhvers' og að hafa í fullu tré við eitthvað merkir að 'eiga fullt í fangi með eitthvað.
Halldór Halldórsson fjallaði um sambandið að hafa í fullu tré við einhvern í doktorsritgerð sinni Íslensk orðtök (1954: 376). Hann nefni...
Sögnin að formyrkva ‛myrkva, gera dimman’ kemur fyrst fyrir í málinu 1558 svo vitað sé í þýðingu Gísla Jónssonar á Margarita Theologica … samkvæmt riti Christians Westergaards Nielsens Låneordene i det 16. århundredes trykte islandske litteratur frá 1946.
Að baki liggur danska orðið formørke í sömu m...
Orðið simsalabim er sennilega upprunnið í þýsku. Fleiri en ein skýring er á tilurð þess. Sumir álíta það eiga rætur að rekja allt aftur til síðmiðalda. Kristnir menn hafi talið múslima eins konar töframenn. Upphafsorð við ýmiss konar athafnir „bismi allah rahman i rahim“ (‛í nafni guðs hins algóða’) hafi afb...
Orðið kokkteill, kokteill er fengið að láni úr ensku cocktail. Það merkir orðrétt 'stél á hana', (cock 'hani', tail 'stél'). Samkvæmt Oxford English Dictionary var farið að nota orðið yfir blandaða áfenga drykki þegar í upphafi 19. aldar en skýringin á því hvers vegna þetta orð var notað virðist týnd.
Elstu dæm...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!