Venjulegar sameindir (e. molecules) eru óhlaðnar sem heild og þess vegna verka ekki milli þeirra neinir rafkraftar af venjulegustu gerð, það er að segja svokallaðir Coulomb-kraftar milli hlaðinna efniseinda. Hins vegar er jákvæð hleðsla í atómkjörnum sameindarinnar og jafnstór neikvæð hleðsla í rafeindum hennar sa...
Efnatengi (e. chemical bond) nefnist samtenging tveggja atóma í sameind.Sameindir eru samsafn atóma (frumeinda) sem tengd eru saman með efnatengjum. Efnatengi milli atóma geta myndast ef orka samtengingarinnar er lægri en orka ótengdra atóma, það er ef samtengingin er orkustöðugra form en orka stakra atómanna.Þega...
Öll efni geta verið í þrenns konar ham:
storkuham / fast form (e. solid)
vökvaham (e. liquid)
gasham (e. gas)
Auk þess er til svonefnt rafgas sem á ekki við um venjuleg frumefni.
Af þessu leiðir að gas getur verið nær hvaða efni sem er. Vatn er til dæmis í storkuham þegar það er frosið, í vökvaham...
Hér er einnig svarað spurningunni:Er hægt að þjappa vökva, líkt og lofti?
Loftið í kringum okkur inniheldur um 78% köfnunarefni og 21% súrefni, auk annarra lofttegunda sem eru um 1%. Það sem einkennir loft (ekki bara andrúmsloftið heldur líka hreinar lofttegundir) er að það er afar gljúpt, það er að segja rúmmá...
Matarsalt
Í matarsalti (NaCl) eru annars vegar jákvætt hlaðnar natrínjónir (Na+) og hins vegar neikvætt hlaðnar klórjónir (Cl-). Sterkir aðdráttarkraftar ríkja milli andstætt hlaðinna jóna og valda því meðal annars að þær raða sér á reglubundinn hátt og mynda kristall. Jákvætt hlöðnu jónirnar eru ætíð umkringda...
Vatnssameindirnar eru á stöðugri hreyfingu en þegar hitastigið lækkar hægja þær á sér og aðdráttarkraftar milli þeirra fara að hafa meiri áhrif. Við frostmark (0°C) fara sameindirnar svo hægt að þær ná að festast saman og mynda ískristall. Slíkt köllum við hamskipti efnis eða fasaskipti og eðlisfræðingar tala um a...
Taktu málningarpensil, dýfðu honum í vatn og dragðu hann síðan upp aftur. Þá sérðu að hárin á honum loða saman; nú fyrst má draga með honum fínar línur. Sams konar fyrirbæri sést þegar maður með úfið hár bleytir það þannig að það klessist niður.
Oft er sagt að hárin loði saman vegna þess að þau séu blaut. Ef h...
Fleiri spurningar:Er hægt að hella vatni í þyngdarleysi? Og ef sú er raunin er þá hægt að lepja það úr loftinu?
Hvað verður um vatn þegar að kemst út í geiminn? Flýtur það eða eitthvað annað?
Hvað gerist ef þú hellir úr vatnsfötu úti í geimnum?
Í geimstöðvum sem hringsóla um jörðina er nánast algjört þyngdarl...
Upprunalega spurningin var:
Af hverju verður glas blautt (rakt) að utan þegar kalt vatn er sett í það?
Andrúmsloftið er að langmestu leyti köfnunarefni og súrefni en önnur efni finnast þar líka, þar á meðal vatnssameindir. Þetta vatn ferðast um heiminn, gufar upp, myndar ský, fellur svo til jarðar sem rigni...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!