Ekki er að finna ákvæði í almennum lögum þess efnis að húðgötun sé bönnuð. Einungis er að finna ákvæði um að húðgötun sé starfsleyfisskyld starfsemi samanber 12. tl. 4. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr.7/1998.
Spurningunni um það hvaða húðgatanir séu löglegar og hverjar ekki verður því ekki svarað...
Fyrir nokkrum áratugum var leikjagerð tiltölulega einföld. Oft sá einn aðili um alla þætti framleiðslunnar: Hönnun, forritun, grafík og hljóð. Nú til dags er framleiðsluferli tölvuleikja töluvert frábrugðið. Á bak við hvern útkominn leik liggur oft á tíðum vinna hundruða, ef ekki þúsunda, manna og algengt er að ko...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvers vegna segjum við að við séum á fimmtugsaldri þegar við verðum fertug, en ekki á fertugsaldri, eins og er til dæmis sagt á dönsku og ensku?
Í íslensku er það málvenja að sá sé tvítugur, þrítugur, fertugur, fimmtugur og svo framvegis sem er tuttugu, þrjátíu, fjörutíu eða fim...
Ég á sjálfskiptan bíl. Ég hefði getað keypt mér beinskiptan bíl fyrir minni pening en ég kaus að gera það ekki. Á sjálfskiptum bíl þarf ég ekkert að pæla í því að kúpla eða passa að renna ekki óvart aftur á bak þegar ég tek af stað í brekku. Ég læt vélbúnaðinn algjörlega um að skipta um gír þegar við á og get í st...
Upphaflega spurningin hljóðaði svona:
Ágætu viðtakendur. Nú er það í lögum þegar verið er að þinglýsa samningum að það þurfi að hafa þá á löggiltum pappír. Vitið þið hver var upphaflega hugsunin á bak við það að allir samningar þurfi að fara á þennan löggilta pappír? Er búin að spyrja þó nokkra að þessu, löglærða...
Meginástæðan fyrir þessu er sú að kosningarnar eru óbeinar. Heildarmagn atkvæða ræður ekki úrslitum eins og við eigum að venjast, heldur kjósa ríkin hvert um sig kjörmenn sem koma síðan saman og velja forsetann. Þar við bætist að kjörmönnum hvers ríkis er ekki úthlutað í hlutfalli við atkvæðatölur í ríkinu heldur ...
Íslenski hesturinn er fremur smár reiðhestur, að meðaltali um 140 cm á herðakamb og 350 kg. Til samanburðar eru mörg önnur reiðhestakyn gjarnan um 160 cm á herðakamb og um og yfir 500 kg. Þess vegna lítur fullorðið fólk oft út fyrir að vera stórir knapar á íslenskum hestum og hlutfall þunga knapa af þyngd hestsins...
Spurning Jóns Björns hljómaði svona: Mig langar til þess að forvitnast um allt er tengist íslenska þjóðsöngnum. Getið þið komið því á framfæri t.d. undir leitarorðunum, þjóðsöngur og íslenski þjóðsöngurinn?
Þjóðsöngur er kvæði með lagi, flutt við hátíðleg tækifæri sem eins konar tákn um þjóðarvitund. Þjóðsöngv...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:Hver er uppruni jóladagatalanna (þessara hefðbundnu með 24 gluggum sem opnaðir frá 1. - 24. desember) og hvenær bárust þau fyrst til Íslands?
Eins og svo margir aðrir jólasiðir á jóladagatalið uppruna sinn í Þýskalandi en hefur væntanlega borist til Íslands frá Danmörku. Ef...
Þessari spurningu getur spyrjandinn reynt að svara sjálfur með því að fara afturábak í tímann og skoða atburðarásina í huganum.
Hvernig varð hænan til?
Tiltekin hæna, sem við getum kallað litlu gulu hænuna, varð þannig til að sæðisfruma úr föður hennar og egg úr móður hennar runnu saman og mynduðu svokallað...
Svarið er já; við getum vel hugsað okkur aðra heima fyrir utan þann heim sem við lifum í og jafnvel fullkomlega ótengda honum. Vísindamenn ræða þessa möguleika af fullri alvöru ekki síður en aðra. Ef hins vegar engin tengsl reynast vera við hina heimana verða menn að sætta sig við að um þá verði ekkert sagt og til...
Svarið við þessu er auðvitað já eða: já, auðvitað!
Það að einhver verður engill jafngildir því að hann/hún/það fái vængi. Formúlan fyrir þessu er sem hér segir:x verður engill <=> x -> x + vængirMeð því að setja x = fugl í þessari almennu formúlu fáum viðfugl verður engill <=> fugl -> fugl + vængiro...
Miðeyrnabólga, sem í daglegu tali kallast eyrnabólga, er bólga í slímhimnu miðeyrans af völdum bakteríusýkingar og er hún mun algengari hjá börnum en fullorðnum.
Miðeyrað er loftfyllt holrúm á milli hljóðhimnunnar og innra eyrans. Kokhlustin er loftrás sem liggur á milli miðeyrans og nefkoksins og sér til þe...
"Úllen dúllen doff" er ein vinsælasta úrtalningarromsan sem íslensk börn nota og hefur verið það lengi. Flest börn hafa hana svona:
Úllen dúllen doff
kikke lane koff
koffe lane bikke bane
úllen dúllen doff.
Ljóst er að þessi romsa kemur snemma til Íslands. Í handriti eftir fræðimanninn Brynjólf Jónsson frá Mi...
Þessari spurningu er alls ekki hægt að svara með neinni vissu. Fyrir því eru margar ástæður.
Fyrir það fyrsta er alls ekki ljóst hvað við eigum við með hugtakinu orð. Í orðabókum er orð skilgreint eitthvað á þessa leið: 'eining sem sett er saman úr málhljóðum (bókstöfum) og hefur ákveðna merkingu'. Hvað eigum v...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!