Talið er að mesta öryggi smokka sé 98% séu þeir rétt notaðir en líkur á þungun aukast ef þeir eru ekki notaðir samkvæmt leiðbeiningum.
Smokkar, eða einhvers konar slíður til að setja á getnaðarlim og varna þungun, hafa þekkst í margar aldar eins og lesa má um í svari Sóleyjar Bendar við spurningunni Hvenær var ...
Þjóðvísan um hana Grýlu sem hér er vísað til er svona í heild sinni:
Það á að gefa börnum brauð að bíta í á jólunum, kertaljós og klæðin rauð, svo komist þau úr bólunum. Væna flís af feitum sauð, sem fjalla gekk á hólunum. Nú er hún gamla Grýla dauð, gafst hún upp á rólunum.
Það er kannski ekki nema von ...
Um árabil var það trú manna að rykmaurar, sem nú eru kallaðir rykmítlar (sjá svar við spurningunni Eru rykmaurar það sama og rykmítlar?) lifðu á húðflögum og væru algengir í rúmum og teppum innan húss, til dæmis í svefnherbergjum. Öpuðu menn þetta hver upp eftir öðrum og standa þessar fullyrðingar víða á prenti. N...
Spurningin hljóðar í heild sinni svona:
Hvernig ala kengúrur unga sína, af hverju fara þeir í poka móðurinnar, hvernig geta þær stokkið svona langt og margt fleira?
Kengúrur eru pokadýr (Marsupialia) sem er einn af þremur meginflokkum spendýra. Kengúrur tilheyra ennfremur ættinni Macropodidae en til hennar telja...
Æxlun hákarla hefur ekki verið rannsökuð mjög ýtarlega en vitað er að atferlið í kringum hana er mjög breytilegt á milli tegunda og ættkvísla. Meðal annars eru þekktir “forleikir” eins og samræmd sundtök eða létt bit. Í því samhengi er athyglisvert að skrápur kvendýranna er allt að tvöfalt þykkari en karldýranna e...
Eldgosum fylgir oft öskufall sem getur reynst skepnum hættulegt, eins og lesa má í svari við spurningunni Hvaða áhrif hafa eldgos á dýr? Sérstaklega þarf að huga að flúori sem getur bæði valdir bráðri og langvinnri eitrun. Um einkenni bráðrar flúoreitrunar er hægt að lesa um í svari við spurningunni Hver eru helst...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Ef meindýraeyðir er fenginn til að eitra fyrir flugu eða skordýrum í sumarbústað? Hefur það mikla virkni? Mundi það hafa þann árangur ég sé ekki bitin af flugu? Þá er ég að tala um eftirfarandi: Lúsmý, mýflugu, könguló?
Eitranir í sumarbústöðum koma líklegast ekki í veg fyrir ...
Sæskjaldbökur kallast allar tegundir skjaldbaka af ættunum Dermochelyidae og Cheloniidae. Ættin Cheloniidea telur 6 tegundir en Dermochelyidae aðeins eina, alls 7 tegundir. Þær lifa einungis í hlýjum sjó við miðbaug.
Leðurskjaldbaka (Dermochelys coriacea).
Leðurskjaldbakan (Dermochelys coriacea, e. leather...
Elgurinn (Alces alces) er stærsta tegund hjartarættarinnar (Cervidae). Elgir eru háfættir og hálsstuttir, um 1,5-2,0 metrar á hæð yfir herðakamb og vega oftast í kringum 850 kg. Helsta einkenni þeirra eru mikil og sérstæð horn en það eru aðeins tarfarnir sem skarta þeim. Elgir hafast við í skóglendi á norðlægum sl...
Höfundur þessa svars hefur ekki undir höndum neinar upplýsingar þess efnis að sjósundfólk hafi lent í hremmingum vegna sela. En hafi lesendur Vísindavefsins sögur af slíku væri fróðlegt að heyra þær. Kafarar hafa þó orðið fyrir lítils háttar aðkasti frá brimlum, það er karlkynsselum, en þeir hafa meðal annars nart...
Ýmis dýr nota eitur sér til varnar, til dæmis tegundir sporðdreka, köngulóa og snáka. Í þessu svari eru eitraðir snákar notaðir sem dæmi.
Eitur snáka er gert úr prótínum. Éti snákur eitraðan snák ætti honum vart að vera meint af neyslunni. Skýringin liggur í ofursúru umhverfi meltingarvegarins en súrt umhverf...
Upprunalega spurningin var á þessa leið:
Veit einhver hvaða fiskur var fyrstur í hafinu? Við í 3. ÁGB í Setlandsskóla erum að læra um hafið og mig langar að vita þetta.
Tilkoma fiska markar upphaf hryggdýra á jörðinni. Miðað við fyrirliggjandi þekkingu á þróunarsögu fiska er mjög líklegt að þeir hafi komið fra...
Útlenda orðið utopia er dregið af riti enska húmanistans Thomasar More (1477-1535) Utopia, sem skrifað var á latínu árið 1516. Það er myndað af grísku orðunum ou, sem merkir ‘ekki’, og topos sem er ‘staður’. Það þýðir þess vegna bókstaflega ‘enginn staður’ og hefur því verið þýtt með orðinu staðleysa. Það orð má þ...
Eins og fram kemur í spurningunni eru pit bull hundar bannaðir hér á landi. Pit bull er ekki eitt ræktunarafbrigði heldur samheiti yfir nokkur afbrigði vöðvastæltra hunda svo sem American pit bull terrier, Staffordshire terrier og Staffordshire bull terrier.
Pit bull-hundar teljast til svokallaðra vígahunda o...
Lengi vel áttu fræðimenn erfitt með að trúa því að flóðsvín (Hydrochoerus hydrochaeris) væru nagdýr, enda eru þau um 60 cm á herðakamb og vega um 50 kg. Fyrst í stað vildu þeir flokka þau í sömu ætt og fíla en eftir ítarlegar samanburðarrannsóknir virtust þau líkjast villinaggrísum í Suður-Ameríku og þess vegna se...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!