Spurningin hljóðaði upphaflega svona:
Hvað er tvípeð, frípeð og stakt peð í skák? Og hvað eru 6 mismunandi leiðir sem það getur verið jafntefli?
Jafntefli í skák getur átt sér fimm mismunandi orsakir. Spyrjandi biður um sex orsakir, en sú sjötta var fjarlægð úr reglum leiksins árið 1965 þar sem hún getur í rau...
Kræklingur (Mytilus edulis) er skeldýrategund sem tilheyrir flokki samlokna (Bivalvia). Tegundin er mjög útbreidd og finnst á kaldtempruðum svæðum, bæði á norður- og suðurhveli jarðar. Hún er algeng allt í kringum Ísland nema við suðurströndina þar sem skilyrði eru honum víðast óhagstæð. Kræklingur finnst í ...
Erfitt er að segja til um hvort ein tegund af fitu sé verri fyrir líkamann en önnur. Hert jurtaolía líkist að mörgu leyti dýrafitu sem kallast mettuð fita. Sérfræðingar hafa lengi vitað að mettaðar fitur geta haft skaðleg áhrif á æðakerfið en nú hefur komið í ljós að hættuleg fituefni geta einnig myndast þegar jur...
Nashyrningar (Rhinocerotidae) tilheyra ættbálki staktæðra hófdýra (Perissodactyla) ásamt hestum (Equidae) og tapírum (Tapiridae). Áður voru ættirnar mun fleiri og má því segja að þessi forni ættbálkur spendýra megi muna fífil sinn fegri.
Steingervingasaga nashyrninga er sæmilega vel þekkt og því hafa vísindame...
Allur hugbúnaður hefur einhvers konar viðmót. Annað forrit eða notandi getur haft samskipti við hugbúnaðinn um viðmótið. Í fyrra tilfellinu er talað um forritsviðmót en í því síðara um notendaviðmót.
Stýrikerfi gegnir því hlutverki að stjórna afli tölvunnar og veita notendaforritum aðgang að því. Stýrikerfi er ...
Hér er svarað eftirfarandi spurningum:
Hvað er og hvernig verkar dulkóðun (public-key-encryption)? (Davíð)
Hvað getið þið sagt mér um dulkóðun? (Kristjana)
Dulritun (dulkóðun, e. encryption) felst í stuttu máli í því að umrita tiltekin skilaboð þannig að óviðkomandi geti alls ekki komist að innihaldi þeirr...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Getið þið sagt mér allt um Kína? Landfræðilega, um íbúa, menningu, sögu og fjármál?Svarið við þessari spurningu er eiginlega einfalt nei. Við getum ekki sagt þér allt um Kína, en hægt er að stikla á stóru um landafræði, íbúa, menningu, sögu og efnahag Kína.
Menningarsvæ...
Samkvæmt "Ritreglum" Íslenskrar málstöðvar sem gefnar voru út í Stafsetningarorðabókinni árið 2006 er stafrófið samsett úr 32 bókstöfum og þar er ekki að finna c, q, z eða w.
Í 3. útgáfu Íslenskrar orðabókar frá 2002 eru umræddir fjórir bókstafir sagðir tilheyra íslenska stafrófinu sem viðbótarstafir:
að ...
Andarnefjur (Hyperoodon ampullatus) tilheyra undirættbálki tannhvala (odontoceti) og ætt svínhvala eða nefjuhvala (Ziphiidae). Innan þessarar ættar eru þekktar 21 tegund og er andanefjan sú þriðja stærsta, verður allt að 9 metrar á lengd. Dýrin eru nánast tannlaus nema í skolti karldýranna má finna tveggja til fjö...
Þingeyrar er býli í Austur-Húnavatnssýslu milli Hóps og Húnavatns. Þar var klaustur fram að siðaskiptum árið 1550 en fyrir stofnun þess héldu Húnvetningar þing sitt á staðnum. Engar menjar tengdar þinginu hafa varðveist og þess er jafnframt ekki getið í heimildum eftir 1133 en það ár er talið stofnár klaustursins....
Tegundamyndun er hægfara ferli sem tekur þúsundir kynslóða og því er nær ómögulegt að segja til um hvenær ein tegund hverfur og önnur tekur við.
Blendingar brúnbjarna (skógarbjarna, Ursus arctos) og hvítabjarna (Ursus maritimus) eru þekktir úr dýragörðum. Hins vegar eru þeir afar sjaldgæfir í náttúrunni og því...
Eyðimerkurrefur (Vulpes zerda), sem stundum er kallaður fennec-refur, er smávaxinn refur sem finnst á eyðimerkursvæðum norður Afríku (Sahara) og á Arabíuskaga. Hann lifir víðsvegar í Norður-Afríku og í miðri Sahara-eyðimörkinni og virðist dafna vel á þurrustu og verstu eyðimerkursvæðunum í Norður-Sahara. Útbreiðs...
Stöðugleiki lofthjúpsins hverju sinni ræður mjög lóðréttri blöndun ösku og mengunarefna.
Lofthjúpnum er skipt í hvolf, neðst er veðrahvolfið og veðrahvörfin ofan á því. Veðrahvörfin eru svo stöðug að aðeins öflugustu gos geta borið ösku upp í heiðhvolfið þar ofan við. Stöðugleiki í veðrahvolfinu skiptir því oft...
Philippus Theophrastus Aureolus Bombastus von Hohenheim, öðru nafni Paracelsus, fæddist í Einsiedeln-héraði í Sviss árið 1493. Skírnarnafn hans var Philippus Theophrastus. Nafnið Aureolus tók hann sér síðar. Faðir hans, Wilhelm Bombastus von Hohenheim, var læknir og mikill áhugamaður um efnafræði og gullgerðarlist...
Mayarnir lifðu í borgríkjum sem voru þrautskipulögð. Í miðjunni voru trúarmiðstöðvar, gjarnan píramídar með hofum á toppi, stór torg með minningarsúlum (e. stele) og þá hallir ráðastéttarinnar, allt byggt af steini. Fjær miðjunni komu síðan aðrar byggingar af steini, stjörnuskoðunarturnar, boltaleikvangar og þá hí...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!