Orðin aldurstakmark og aldurslágmark eru notuð á misjafna vegu. Aldurstakmark er það mark sem aldurinn setur, bæði hámark og lágmark. Þegar talað er um aldurslágmark er átt við lægsta aldur, sem til greina kemur í einhverju tilviki, en aldurshámark þann hæsta. Þegar auglýst er að aldurslágmark á dansleik sé við 16...
Í gjaldskrá STEF er tekið fram hver gjöld fyrir flutning tónlistar á árinu 2009 séu. Í A-lið gjaldskrárinnar kemur fram að af aðgangseyri að einstökum dansleikjum, tónleikum, samkvæmum og öðrum samkomum, þar sem tónlist er flutt, skuli greiða 4% en þó aldrei yfir ákveðinni fjárhæð sem fer eftir fjölda gesta. Sjá n...
Hin svokallaða Jörfagleði var vikivakadansleikur sem haldinn var árlega á jólum í Haukadal í Dalasýslu seint á 17. öld og snemma á 18. öld. (Um vikivakadansleiki þar sem fólk söng og dansaði og skemmti sér við ýmiss konar dulbúningsleiki eins og hestleik, Háa-Þóruleik og Þingálpnsleik sjá Jón Samsonarson, Kvæði og...
Sögnin að djamma og nafnorðið djamm eru ung tökuorð úr ensku jam. Bæði orðin hafa verið aðlöguð íslenskum rithætti og framburði. Elstu dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru frá miðri 20. öld og er ekki ólíklegt að orðin hafi komist inn í íslenskt talmál á stríðsárunum. Í Íslenskri orðabók (2002:217) eru bæði...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:Fjögurra ára sonur minn spyr hvað orðið „kreik“ þýðir, sbr. „mig langar svo að lyfta mér á kreik“. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt orðið öðruvísi en í samhenginu „á kreik“ og hef skilið það sem „af stað“. Hvernig er þetta orð í nefnifalli, hver er merking þess og uppruni...
Ekki er til neitt einfalt og öruggt svar við þessari spurningu en það er einmitt það sem gerir jólaköttinn svo dularfullan og áhugaverðan. Aftur á móti eru til ýmsar heimildir sem gefa okkur vísbendingar um hvaðan þessi skepna gæti verið komin.
Jólakötturinn er einn af mörgum svipuðum jólavættum sem þekkst hafa...
Hér er svarað eftirtöldum spurningum:Af hverju er nafnið Jónsmessa dregið? (Pálína Kristín Guðlaugsdóttir)Hvenær var farið að halda Jónsmessu hátíðlega? (Hálfdan Helgason)
Árni Björnsson fjallar ítarlega um sögu Jónsmessunar, hér á landi sem erlendis, í bók sinni Saga daganna. Fróðleiksfúsum er bent á að kynna sé...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvers vegna eru sungnar vögguvísur? Er eitthvað vitað um uppruna vögguvísna og hvort þær virki raunverulega við svæfingu?
Vögguvísur hafa verið sungnar frá því í fornöld. Ein elsta vögguvísa sem varðveist hefur er rist á 4000 ára gamla leirtöflu frá Babýlon sem geymd e...
Konungsríkið Sádí-Arabía gekk í gegnum miklar samfélagsbreytingar á síðustu öld og segja má að það hafi þróast frá því að vera vanþróað ríki þar sem meirihluti íbúanna lifðu hirðingjalífi, í það að vera eitt ríkasta land í heimi með tilheyrandi borgarlífi og neyslu. Kúvendingin varð þegar olía fannst í austurhlut...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!