Öll orðasamböndin þrjú eru líkingamál. Þegar einhver rotar rjúpur situr hann venjulega uppréttur og dottar. Við það missir hann höfuðið fram og minnir sú hreyfing á snöggt högg sem rjúpum var gefið þegar þær voru rotaðar. Sú veiðiaðferð mun lítið tíðkast nú.
Sá sem dregur ýsur er líka hálfsofandi, dottar. Hann...
Svarið við þessari spurningu er nei, ýsan (Melanogrammus aeglefinus, e. haddock) er ekki hrææta heldur lifir hún aðallega á botndýrum meginhluta lífs síns.
Ýsa (Melanogrammus aeglefinus)
Þetta kom í ljós í rannsókn sem gerð var á vegum Hafrannsóknastofnunar á fyrri hluta 9. áratugar síðustu aldar. Rannsökuð var ...
Þorskur (Gadus morhua) og ýsa (Melanogrammus aeglefinus) eru náskyldar tegundir og tilheyra báðar þorskfiskaætt (Gadidae). Flokkunarfræði þeirra er því eins niður á ættkvíslarstigið, en þar greinir í sundur þar sem þorskurinn og ýsan tilheyra ólíkum ættkvíslum. Flokkun þeirra má sjá í eftirfarandi töflu:
RíkiDý...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hæ. Ég er að reyna að finna út hvað ég er í raun að draga mikla þyngd en hef ekki rétta formúlu, ég er að draga 4 metra langt rör sem er 300 kg að þyngd og er með grófa möl undir. Getið þið hjálpað mér?
Erfitt er að svara spurningunni með nákvæmu svari þar sem ýmsar nau...
Fullorðinn einstaklingur andar að meðaltali á milli 12 og 20 sinnum á hverri mínútu. Börn anda venjulega hraðar en fullorðnir, en ungbörn draga andann um 40 sinnum á mínútu.
Þetta þýðir að fullorðinn einstaklingur dregur andann um það bil 17.000 – 29.000 sinnum á sólahring. Ungbarn andar hins vegar um 60.000 ...
Í svari Þórarins Sveinssonar um harðsperrur kemur fram að þær séu afleiðing skemmda sem verða í vöðvum þegar þeir framkvæma vinnu. Það er enginn lífeðlisfræðilegur munur á vöðvum manna og annarra dýra og í grunninn virka vöðvar manna og til að mynda annarra spendýra nákvæmlega eins.
Dýr ættu að geta fengið har...
Kerberos var hundur Hadesar sem var undirheimaguð í grískum goðsögum og ríkti í Hadesarheimi. Kerberos gætti undirheima, varnaði lifandi mönnum inngöngu og hinum látnu útgöngu.
Gríska skáldið Hesíod (8. öld f. Kr.) segir að Kerberos hafi verið með 50 höfuð en gríska leikritaskáldið Sófókles (4. öld f. Kr.) lýs...
Það er hægt að gera ýmislegt til þess að draga úr eldsneytisnotkun bifreiða. Á vef Orkuseturs er til dæmis að finna ágætar ábendingar þess efnis og eru þær birtar hér með góðfúslegu leyfi.
Forðist öfgar í aksturlagi
Ef aksturslagið miðast við að taka hratt af stað og snögghemla þá getur eyðslan aukist um all...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað er að draga seiminn? Hvað þýðir seimur og hvaðan kemur það?
Seimur merkir ‘ómur, ymur’. Orðasambandið að draga seiminn ‘að tala dragandi röddu; draga síðasta atkvæðið í söng’ þekkist í báðum merkingum frá 18. og 19. öld. Elsta heimild í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er...
Upprunaleg spurning Jóns Sævars hljóðaði svo:Getur hagvöxtur verið endalaus? Það er getur þjóðar- eða landsframleiðsla haldið áfram að aukast að eilífu? Eða er þetta bóla sem springur einhvern tíma?
Verg landsframleiðsla (VLF) er skilgreind sem markaðsvirði allrar vöru og þjónustu sem framleidd er til endanlegr...
Niccolò Machiavelli er talinn vera einn helsti hugsuður endurreisnarinnar á Ítalíu. Hann fæddist í Flórens árið 1469 á þeim tíma sem borgin var að festa sig í sessi sem miðstöð menningar og viðskipta á Ítalíu. Hann starfaði sem embættismaður en þótti einnig ljómandi gott skáld og eru sum verka hans talin vera með ...
Mikið hefur verið rætt og ritað um ómega-3 og ómega-6 fitusýrur undanfarið. Stundum hefur þessi umfjöllun verið nokkuð misvísandi. Skilaboðin hafa gjarnan verið á þá leið að ómega-3 fitusýrur séu hollar og ómega-6 fitusýrur óhollar. Svo einfalt er þetta þó alls ekki. Báðar þessar fitusýrur eru líkamanum nauðsynleg...
Eins og í öðru erfðaefni er tíðni stökkbreytinga í SARS-CoV-2-veirunni lágur. Áætlað er að við eftirmyndun erfðaefnisins verði mistök í um einu af milljón skiptum, það er stökkbreytingartíðnin í hverju basaseti (e. nucleotide position) er ~10-6 fyrir hverja eftirmyndun.
Líklegt er að veiran eftirmyndist að mi...
Það kann að vera freistandi að líta á heimili sem fyrirtæki og draga rekstrarkostnaðinn frá tekjum en það er þó ekki hægt.
Skýringin er einföld: Þegar tekjuskattsstofn er reiknaður má einungis draga rekstrarkostnað frá tekjum fyrirtækja. Rekstrarkostnaður er skilgreindur sem þau gjöld sem eiga að ganga t...
Orðasambandið eitthvað dregur dilk á eftir sér 'eitthvað hefur eitthvað slæmt í för með sér' er vel þekkt í málinu allt frá því á 18. öld. Það er ávallt notað í neikvæðri merkingu og stundum að viðbættu orðinu illan, þ.e. draga illan dilk á eftir sér.
Líkingin er án efa fengin úr sveitamáli. Dilkur eða dilkla...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!