Spurningin hljóðaði upphaflega svona:
Í Njálu stendur að Kári Sölmundarson væri með skjöld sem á væri mynd af ljóni. Hvernig átti Kári Sölmundarson að vita hvernig ljón liti út?
Spurt er um eftirfarandi stað í Njálu:
Skarphéðinn var fremstur. Hann var í blám stakki og hafði törguskjöld og öxi sína reidda ...
Hér er einnig svarað spurningu Önnu Andrésdóttur og Axels Fannars: Hvað er algengt að kóngulær lifi lengi?Á Íslandi lifa kóngulær að jafnaði í eitt til tvö ár. Í hitabeltislöndum verða kóngulær mun eldri; tarantúlur geta til að mynda orðið 15 ára.
Kóngulær verða kynþroska eftir að síðustu hamskiptum er lokið....
Í svari á Vísindavefnum við spurningunni Hvaða skemmtanir fóru fram í hringleikahúsum Rómverja? segir meðal annars:Á stórum uppákomum var allt að 11.000 dýrum slátrað í hringleikahúsi – ljónum, björnum, nautgripum, flóðhestum, tígrum og krókódílum. Rómverjar voru sendir vítt og breitt um heiminn í leit að dýrum ti...
Fyrir utan manninn eru háhyrningar einu náttúrulegu afræningjar reyðarhvala. Nokkur tilvik eru skráð þar sem háhyrningar hafa drepið unga steypireyði. Meðal annars urðu ljósmyndarar tímaritsins National Geographic vitni að því þegar hópur háhyrninga réðst á steypireyðarkálf sem var í fylgd með móður sinni og særðu...
Tardigrade eða bessadýr eins og þessi lítt þekkti hópur dýra heitir á íslensku tilheyrir fylkingu hryggleysingja. Fræðiheiti þeirra er Tardigrada. Bessadýrum var fyrst lýst á vísindalegan hátt af þýska dýrafræðingnum Johann August Ephraim Goeze (1731-1793) árið 1773 og hefur nú rúmlega 400 tegundum verið lýst.
...
Válistar eru skrár yfir lífverutegundir sem eiga undir högg að sækja eða eru taldar vera í útrýmingarhættu í tilteknu landi eða á tilteknu svæði. Á slíkum válistum er verndarstaða tegundanna skráð í nokkra mismunandi hættuflokka eftir því hve alvarleg ógnin er sem tegundin stendur frammi fyrir. Hættuflokkarnir get...
Einfalda svarið við þessari spurningu er nei. Það er þó vert að skoða aðeins nánar af hverju. Fíll og svín eru í fyrsta lagi ólíkar tegundir. Þrátt fyrir að teljast báðar til spendýra eru þetta afar fjarskyldar tegundir með ólíka líkamsbyggingu og innri starfsemi. Tegundir eru meðal annars skilgreindar sem hópur e...
Hér er einnig að finna svör við eftirfarandi spurningum: Spurning Brynjars Arnar Reynissonar Hvað voru risaeðlutegundirnar margar og hvernig voru fyrstu risaeðlurnar? og spurning Dags Ebenezerssonar Hvað er búið að finna margar risaeðlutegundir?
Risaeðlur (Dinosauria) teljast til skriðdýra (Reptilia) og eru flokk...
Hér er einnig svarað skyldum spurningum frá ýmsum spyrjendum.
Gin- og klaufaveiki hefur valdið gífurlegu tjóni víða um heim öldum saman og nú geisar hún um Bretlandseyjar og víðar. Í sumum löndum er veikin staðbundin.
Þaðan getur hún borist öðru hverju og hleypt af stað nýjum faraldri en takist að he...
Margir muna eftir sögu og kvikmynd um Júragarðinn þar sem risaeðlur, sem höfðu verið útdauðar í 65 milljón ár eða lengur, voru vaktar til lífsins. Í sögunni fundu menn erfðaefni þessara risaeðla í skordýrum sem höfðu sogið blóð úr risaeðlu skömmu áður en þau festust í trjákvoðu sem varð að rafi. Staðreyndin er...
Á síðustu 1,6 milljón árum hafa gengið yfir jörðina fjögur meiriháttar jökulskeið. Það síðasta, sem nefnist Wurm-jökulskeiðið, stóð í um 60 þúsund ár og endaði fyrir rúmum 10 þúsund árum. Ómögulegt er að gera tæmandi grein fyrir allri dýrafánu þessara jökulskeiða og verður þess í stað fjallað lauslega um þau dýr s...
Til forna höfðu Kínverjar tunglmiðað tímatal sem byggði á 60 eininga hringrás. Slíkt dagatal er ævagamalt, eða allt frá þeim tíma sem kenndur er við Shang-ríkið frá um 1600 til 1040 f.Kr.
Nú er ár galtarins samkvæmt kínversku tímatali (þegar þetta er skrifað í maí 2007).
Ekki er með fullu ljóst hvernig daga...
Hæsti aldur sem greinst hefur meðal dýra er hjá kúskelinni (Arctica islandica), sem lifir meðal annars innan íslensku efnahagslögsögunnar. Auðvelt er að aldursgreina þessar samlokur með því að telja vaxtarhringi á skel þeirra, en þeim svipar mjög til árhringja í trjám. Elsti skráði einstaklingur kúskeljarinnar, og...
Meðgöngutími hjá þeim spendýrum sem spurt er um er mislangur. Tölurnar sem hér eru gefnar upp eru meðaltal:
DýrDagar
Kettir63
Hundar56-58
Hestar330-340
Kýr279-290
Svín114
Þrátt fyrir að til séu mörg ræktunarafbrigði hunda þá er meðgöngutími þeirra sá sami. Hinn risavaxni stórdani gengur jafn len...
Hér er svarað eftirtöldum spurningum:
Hvar lifa svampdýr? Hvað éta þau? (Jóna Lind)Hvað eru svampdýr, hver er tilgangur þeirra, hvaða þætti í vistkerfinu sinna þau, hvar lifa þau? (Elín Pálmadóttir)
Fyrstu náttúrufræðingarnir sem skoðuðu svampdýr álitu að hér væri um plöntur að ræða vegna þess hversu greinóttir ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!