Smaragður (e. emerald) er gimsteinn eða eðalsteinn en svo kallast skrautsteinar sem hafa næga hörku til þess að rispast ekki við daglega notkun. Hann hefur hörkuna 7,5-8 á Mohs-kvarðanum sem notaður er til að mæla hörku steina.
Smaragður er eitt afbrigði af beryl en það er steind gerð úr berylálsilíkati Be3Al2...
Eðalsteinar eða gimsteinar eru skrautsteinar sem hafa næga hörku til þess að rispast ekki við daglega notkun. Skrautsteinar eru náttúrulegar steindir eða bergtegundir sem notaðar eru í skrautmuni.
Harka steinda er gefin upp samkvæmt svonefndum Mohs-kvarða sem nær frá einum og upp í tíu. Mjúkar steindir, til dæ...
Orðasambandið harkan sex þekkist vel í málinu í yfirfærðri merkingu. Oft er sagt sem svo: ,,Ekki þýðir annað en sýna núna hörkuna sex ef ná á árangri.“ Þá er átt við að sýna þurfi mikinn dugnað og harðfylgi.
Orðasambandið er sótt til jarðfræði. Steintegundir eru flokkaðar eftir því hvert viðnám þeirra er gegn ...
Því miður er svarið við báðum spurningum neitandi – hér á landi finnast hvorki gimsteinar né dýrir málmar. Eiginlegir gimsteinar (eðalsteinar), sem eru svo harðir að þeir rispast ekki við daglega notkun, skera sig með hörkunni frá hversdagslegri skrautsteinum eins og til dæmis kvarsi, jaspis eða hrafntinnu. Deman...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svo:Hvaða frumefni inniheldur demantur og af hverju er hann svona harðgerður og verðmætur?
Demantur er hreint kolefni en kolefni er frumefni sem hefur efnatáknið C og er númer 6 í lotukerfinu. Kolefni telst til málmleysingja og getur bundist saman á nokkra mismunandi vegu og my...
Eiginleikar efna eru notaðir til að bera kennsl á efnin og lýsa þeim. Þessum eiginleikum má skipta í eðlisfræðilega eiginleika (e. physical properties) og efnafræðilega eiginleika (e. chemical properties).
Eðlisfræðilegir eiginleikar efna lýsa ástandi þeirra. Mælingar á eðlisfræðilegum eiginleikum breyta ekki ...
Zeólítar eru holufyllingar; þeir falla út úr volgu eða heitu grunnvatni (80-230°C) í blöðrum og sprungum í berginu. Ásamt silfurbergi (kalkspati) eru zeólítar frægustu skrautsteinar Íslands, en fyrstir til að lýsa þeim hér á landi voru Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson í Ferðabók sinni (568. grein).
Zeólítar my...
Það er rétt að langflestir steinar í umhverfi okkar eru gráir og skýrist það af þeirri berggerð sem algengust er hér á landi. Steinar finnast samt sem áður einnig í öðrum litum og er slíkt nokkuð algengt sums staðar erlendis.
Orðið steinn getur bæði átt við berg/bergtegund (grjót) og steindir (steintegundir). ...
Öll samfélög Mayanna byggðu á akuryrkju þar sem maísræktun var undirstaðan og maís meginfæða íbúanna. En þeir ræktuðu ótrúlegan fjölda nytjajurta, svo sem fjölda afbrigða af sílípipar og baunum, sætar kartöflur, tómata, lárperur, grasker, kakó, vanillu, tóbak, baðmull og henekvín (e. henequin). Reyndar ræktuðu May...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!