Hér er einnig svarað spurningunum: Hvað er glúten? Getið þið bent mér á greinargóðar heimildir um glútenóþol (celiac sprue)?
Glúten er prótín (eggjahvítuefni) sem finna má í korntegundum eins og hveiti, byggi og rúg. Víða um heim er algengt að matvæli séu merkt sem glútensnauð og margir veitingastaðir bjóða upp...
Mjög ólíklegt verður að teljast að til sé eitthvert sérstakt mataræði sem höfðar til hvers blóðflokks fyrir sig. Ef svo væri þá er næringarfræðin sem vísindagrein langt frá því að finna nákvæmlega út hvernig slíkt mataræði eigi að vera. Hugmyndir næringarfræðinnar í dag eru þær að fólk neyti fjölbreyttrar fæðu úr ...
Hér er einnig svarað spurningunni: Eru drekar skordýr?
Drekar eru ekki skordýr, heldur áttfætlur (Arachnida) líkt og köngulær, langfætlur og sporðdrekar. Drekar líkjast helst sporðdrekum að því leyti að þreifararnir hafa ummyndast í öflugar griptangir. Það er líklega ástæða þess að á ensku eru þeir nefndir ge...
Þorskurinn (Gadus morhua morhua) hefur alla tíð verið okkar verðmætasti nytjafiskur og er svo enn í dag. Undanfarna áratugi hafa Íslendingar árlega veitt á bilinu 200-400 þúsund tonn af þorski og hefur útflutningsverðmæti hans numið tugum milljarða króna.
Fyrir utan svæðið umhverfis Ísland finnast nokkrir s...
Óhætt er að segja að æxlunarhættir froska séu þeir „upprunalegustu“ meðal landhryggdýra, sérstaklega þegar haft er í huga að frjóvgun eggja verður fyrir utan líkama kvendýrsins en ekki innvortis eins og tíðkast meðal annarra landhryggdýra (fugla, skriðdýra og spendýra). Að því leyti líkjast æxlunarhættir froskdýra...
Hér er einnig svar við spurningunni:Eru líkurnar á að eignast tvíbura meiri ef það eru margir tvíburar í ætt föðurins eða veltur það eingöngu á ætt móðurinnar?
Tvíburar geta verið eineggja eða tvíeggja, sem er mun algengara. Eineggja tvíburar verða til úr nákvæmlega sama erfðaefninu, einu eggi og einni sæðisfrumu...
Véfréttin í Delfí var staður þar sem Forngrikkir gátu fengið goðsvar frá hofgyðju Apollons.
Delfí var forngrísk borg í suðurhlíðum Parnassosfjalls í Fókishéraði. Eldra nafn borgarinnar var Pýþó, dregið af nafni Pýþonsslöngu sem Apollon átti að hafa drepið. Ekki er ljóst af hverju borgin var síðan nefnd Delfí, s...
Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók er orðið páskar tökuorð úr miðlágþýsku. Þaðan kemur það úr miðaldalatínu sem sækir orðið til grísku. Upprunalega er orðið komið úr arameísku og hebresku.
Í hebresku er orðið pesach meðal annars notað yfir páskalamb en það merkir einnig yfirhlaup. Samkvæmt Almanaksskýringum Þorste...
Tardigrade eða bessadýr eins og þessi lítt þekkti hópur dýra heitir á íslensku tilheyrir fylkingu hryggleysingja. Fræðiheiti þeirra er Tardigrada. Bessadýrum var fyrst lýst á vísindalegan hátt af þýska dýrafræðingnum Johann August Ephraim Goeze (1731-1793) árið 1773 og hefur nú rúmlega 400 tegundum verið lýst.
...
Hrafninn (Corvus corax) hefur mikla útbreiðslu og varptími hans er mjög breytilegur eftir því hvar varpsvæðið er. Á heittempruðum svæðum verpir hann venjulega í febrúar en í apríl á kaldari svæðum svo sem á Íslandi og Grænlandi.
Hrafninn liggur á eggjum í um þrjár vikur.
Hér á landi er hrafninn meðal fyrstu ...
Svartþröstur (Turdus merula) er nýlegur landnemi á Íslandi en fyrsta staðfesta varp hans hér á landi var árið 1969. Til að byrja með var varpið nokkuð óreglulegt en um 1991 voru svartþrestir farnir að verpa reglulega á höfuðborgarsvæðinu. Stór hópur kom hingað vorið 2000 og eftir það tók varpstofninn að eflast og ...
Otrar tilheyra ætt marðardýra (Mustelidea) en það er ein stærsta ætt rándýraættbálksins. Dæmi um önnur marðardýr eru hreysikettir, minkar, greifingjar og skúnkar. Otrar eru í reynd 13 tegundir sem skipt er í fjórar ættkvíslir. Sú tegund sem Evrópumenn kannast helst við er evrópski oturinn eða hinn eiginlegi otur (...
Galapagoseyjar eru nefndar eftir hinum sérstöku risaskjaldbökum sem lifa við eyjarnar. Galápago er spænskt orð sem þýðir einmitt skjaldbaka.
Galapagoseyjar eru eyjaklasi í Austur-Kyrrahafi um 1000 kílómetra undan strönd Ekvador. Um 13 stórar eyjar eru í klasanum og margar minni. Um 15.000 manns búa á eyjunum o...
Langflest skordýr fjölga sér með kynæxlun, það er að segja samruna kynfrumna sem koma hvor frá sínu foreldri. Hjá langflestum skordýrum heimsins og þar á meðal hjá flugum frjóvgast eggin inni í kvendýrinu líkt og gerist meðal allra landhryggdýra.
Kynkirtlarnir eru í afturbolnum og þar safnast þroskuð og ófrjóv...
Armfætlur, fylking Brachiopoda, eru frumstæðir hryggleysingjar, skyldar til að mynda mosadýrum. Þær minna á samlokur (bivalvia) í útliti en eru hins vegar aðeins fjarskyldar þeim. Á ensku kallast armfætlur „lamp shells“ eða lampaskeljar þar sem útlit þeirra minnir mjög á olíulampa Rómverja til forna.
Armfæt...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!