Ársreikningur er árlegt reikningsuppgjör fyrirtækis eða stofnunar. Um ársreikninga hér á landi gilda lög nr. 3/2006 og þar er hugtakið glögg mynd útskýrt á eftirfarandi hátt:
Glögg mynd felst í áreiðanlegri framsetningu á áhrifum viðskipta, öðrum atburðum og skilyrðum í samræmi við skilgreiningar og reglur um ...
Við getum byrjað á að skipta spurningunni svolítið upp:
1. Getur hraustur maður sem hvergi finnur til verið með dulið krabbamein og er unnt að finna það?
Svarið við þessu er að þetta getur vissulega komið fyrir og krabbameinsleit eins og hún hefur tíðkast í mörg ár hérlendis hjá Leitarstöð Krabbameinsféla...
Einfalt og fljótlegt svar við þessari spurningu er nei.
En við skulum líta örlítið nánar á þetta og þá blasir strax við að mikill munur er milli mismunandi tegunda krabbameina. Langt er síðan farið var að líta svo á að þær tegundir krabbameina sem helst leggjast á börn og ungt fólk séu læknanlegar. Þetta á til...
Lögmál Newtons eru kennd við enska eðlis- og stærðfræðinginn Sir Isaac Newton (1642-1727). Þessi lögmál eru þrjú og öll aflfræði Newtons eða hefðbundin aflfræði er reist á þeim ásamt þyngdarlögmálinu. Fjallað er um hin lögmálin í öðrum svörum hér á Vísindavefnum.
Þriðja lögmál Newtons er stundum kallað lögmálið...
Spurninguna má skilja á tvo vegu:A. Hvernig er hægt að sýna fram á að ekki sé til einhver pláneta utan jarðarinnar, þar sem líf er að finna?
B. Ef við horfum á einhverja tiltekna reikistjörnu, hvernig er þá hægt að sýna fram á að ekki sé líf á henni?Vert er að taka eftir að við kjósum heldur að nota orðalagið "...
Það má líta á BIOS (Basic Input/Output System) eða grunnstýringarkerfi sem mjög einfalt stýrikerfi sem er á öllum PC-tölvum. Það er brennt inn í minni tölvunnar og því er yfirleitt ekki breytt.
Helsta hlutverk BIOS forritsins er að keyra tölvuna upp þegar kveikt er á henni. Þegar örgjörvi fær straum eftir að þa...
Sú fullyrðing að eitthvað sé öldungis ólýsanlegt er bæði algeng og hversdagsleg. Stundum segjum við að eitthvað sé ólýsanlegt vegna þess hversu stórfenglegt, einstakt, flókið eða óviðjafnanlegt það er. Stundum notum við líka þetta orðalag um fyrirbæri sem viðmælandinn hefur aldrei upplifað sjálfur. Ef einhver reyn...
Spurningin var svona í heild:
Eru til tölur um það hvort menn komi út sem betri einstaklingar þegar þeir koma út af t.d. Kvíabryggju en t.d. Hrauninu?
Ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar um það hvort að brotamenn hér á landi komi frekar út sem betri einstaklingar eftir að hafa setið í tilteknum fangelsum. Málið ...
Skammstöfunin XML stendur fyrir ‘eXtensible Markup Language’ sem er sveigjanlegur staðall til að lýsa gögnum. Staðallinn samanstendur af örfáum reglum varðandi uppbyggingu skjala með aðstoð merkja (til dæmis <þetta_er_merki>), og er sveigjanlegur þar sem notandinn getur á einfaldan hátt búið til sínar eigin ...
Þessari spurningu er auðsvarað frá mínu sjónarmiði sem sagnfræðings: Nei, hvorugt.
Einhverjum kann að finnast ósmekklegt að börn systkina gangi í hjónaband og líklega er það fátítt nú orðið, en ætti samt ekki að stangast á við siðferðiskennd nokkurs manns. Á miðöldum máttu ekki fjórmenningar giftast eða eignast...
Hröðun (e. acceleration) hluta er skilgreind sem hraðaaukning háð tíma. Þannig er til dæmis hægt að tilgreina hröðun kappakstursbifreiðar með því að tiltaka hve mikilli hraðaaukningu, til dæmis í km/klst, viðkomandi bifreið nái á sekúndu. Hröðunin væri þá gefin upp í einingunni km/(klst∙sek). Samkvæmt alþjó...
Til þess að svara þessari spurning þarf fyrst að gera grein fyrir því hvaða forsendur eru lagðar til grundvallar, eða hvaða skilning er valið að leggja í orðin.
Hugtakið þjóð er til dæmis langt frá því að vera einfalt eins og Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur fjallar um í pistli á Pressan.is. Þar segir meðal...
Áður en þessari spurningu er svarað þarf fyrst að átta sig á því hvað á að kenna og til hvers. Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla er markmið íslenskukennslu meðal annars að „fræða um mál og bókmenntir og ... efla færni í málnotkun“ og svipað á við um framhaldsskólann. Spurningin er þá hvernig málfræðikennsla tengist ...
Þessari spurningu er einfalt að svara. Ástæðan fyrir því að veggir almenningsklósetta ná hvorki alveg upp í loft né alla leið niður á gólf er sú að þannig henta þau einstaklega vel sem sögusvið spennuatriða í Hollywood-kvikmyndum!
Hangandi veggir eru algengir á almenningsklóettum sem og mafíósar.
Þegar arkit...
Í stuttu máli má segja að vísindalegar kenningar séu staðhæfingar sem eru settar fram af vísindamönnum til að lýsa eða skýra eitthvert fyrirbæri í veröldinni. Slíkar kenningar eru síðan prófaðar, til dæmis með því að gera tilraunir eða athuganir á því sem um er að ræða. Mjög einfalt dæmi um vísindalega kenningu er...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!