Þegar fjárlög eru afgreidd með afgangi, það er meiri tekjum ríkisins en útgjöldum, þá þýðir það einfaldlega að stefnt er að því að fjárhagsleg staða ríkisins batni á fjárlagaárinu. Það getur skilað sér í annaðhvort lægri skuldum eða að ríkið eignast meiri peningalegar eignir eða hvoru tveggja. Allur gangur er svo ...
Valentina Giangreco M. Puletti, dósent í raunvísindadeild HÍ, stundar rannsóknir á mörkum kennilegrar eðlisfræði og stærðfræði. Sérgrein hennar er svonefnd strengjafræði og hún hefur einkum unnið að verkefnum sem tengjast heilmyndunartilgátu öreindafræðinnar (e. holographic principle), sem er tilgáta um fræðilega ...
Lágfletir eru yfirborð sem hafa minnsta mögulega flatarmál af öllum yfirborðum sem má koma fyrir innan ákveðinna marka. Mjög auðvelt er að sjá dæmi um lágfleti, því ef maður beygir vír í lokaða lykkju og dýfir henni í sápuvatn þá myndar sápuhimnan sem fæst þannig lágflöt sem afmarkast af vírnum.
Sápuhimnur mynd...
Klínik og klínískur er eitt af þessum erlendu orðum sem ekki hefur tekist að þýða á íslensku og þess vegna er erlenda orðið notað. Orðið klínik er dregið af gríska orðinu kline sem þýðir rúm og vísar þannig til rúmliggjandi sjúklinga. Þetta orð hefur margvíslegar merkingar sem vísa þó oftast til sjúklinga eða umön...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Ef að tveir menn lenda í slagsmálum og valda jafnmiklum áverkum á hvorn annan, geta báðir kært og fengið jafnþungan dóm hvor um sig eða teljast þeir kvittir?
Hér er spurt um slagsmál eða einhvers konar líkamsárás tveggja aðila og þá koma til skoðunar greinar nr. 217 og 218 í a...
Af rúmlega 3.000 tegundum snáka í heiminum er talið að um 600 tegundir séu eitraðar og rétt um 200 tegundir, eða um 7%, búi yfir svo öflugu eitri að þær geti skaðað manneskjur lífshættulega.
Til þess að meta hversu banvæn efni eru er gjarnan vísað til svokallaðs LD50-gildis (LD sendur fyrir lethal dose) en það ...
Sami spyrjandi lagði einnig fram spurninguna Af hverju er snjórinn hvítur? Þessar tvær spurningar eru skyldari en ætla mætti við fyrstu sýn, og mætti allt eins svara þeim saman í samfelldu máli. Við kjósum þó að svara þeim hvorri í sínu lagi.
Endurkast ljóss frá fleti getur verið með tvennum hætti eftir eðli f...
Mynd fengin af áhugaverðu vefsetri, Albert Einstein Online
Handa þeim sem lesa ensku er auðvitað mýgrútur af vefsetrum með gögnum um Einstein. Auk þess eru til nokkrar nýlega ævisögur sem verða nefndar hér á eftir. Það nýjasta og besta sem er að finna á íslensku um Einstein og verk hans er í þýddri bók eft...
Til er fjöldinn allur af mjög vel gerðum tölvuleikjum fyrir PC-heimilistölvur. Vinsælustu PC-leikjunum má skipta í tvo flokka, frumleiki annars vegar og hermileiki hins vegar.
Meginmarkmið frumleikja er að gaman sé að spila þá - oft er umhverfið nýstárlegt og hægt að gera hluti sem annars væru ómögulegir - til...
Tölvuleikir eru í eðli sínu ekkert frábrugðnir öðrum forritum þannig að allir tölvuleikir eiga það sameiginlegt að einhver maður eða hópur manna skrifar forrit sem síðan er keyrt á tölvum. Leikurinn bregst síðan við því sem notandinn gerir á fyrirfram ákveðinn hátt.
En auðvitað er mikill munur á tölvuleikjum. Þ...
Upphafleg spurning: Er hægt að segja að allt hafi þegar verið gert með einhverri vissu, gefið að ekki sé verið að velta fyrir sér öllum mögulegum útfærslum hverrar "aðgerðar" (með aðgerð á ég við til dæmis listsköpun, iðnað og svo framvegis)?Nei, vitaskuld er það ekki hægt.
Hver einstakur atburður er nýr. Þegar...
Frumur má kalla minnstu starfseiningar lífsins. Allar hafa þær DNA fyrir erfðaefni og efnakerfi til þess að búa til prótín en bæði DNA-smíð og prótínsmíð krefjast þátttöku fjölmargra prótína. Til viðbótar er þörf fyrir fjölda prótína til þess að hvata ýmis efnahvörf sem ómissandi eru fyrir allar frumur.
Minnst...
Besta leiðin fyrir karlmann til að komast í kynni við fullnægingar kvenna er að stunda kynlíf með konu. Þannig getur karlmaðurinn orðið vitni að fullnægingu konunnar og jafnframt aðstoðað hana við að komast í það ástand. Þetta hafa margir karlmenn gert með góðum árangri, og láta vel af.
Líklega á spyrjandi þó v...
SETI er skammstöfunin fyrir Search for Extraterrestrial Intelligence, sem þýða mætti leit að vitsmunalífi utan jarðar, eða eitthvað í þá áttina. Markmið þessa verkefnis er að kanna og útskýra uppruna, eðli, tíðni og útbreiðslu lífs í alheiminum, með öðrum orðum að rannsaka hugsanlegt líf í alheiminum.
SETI-...
Strangt til tekið er Noregur ekki skuldlaus við útlönd. Það er hins vegar rétt að Norðmenn skulda lítið í útlöndum og eiga nokkuð digra sjóði erlendis. Hér munar mest um sjóð sem þeir hafa lagt til hliðar af tekjum af olíuútflutningi en verðmæti hans er nú yfir 4.400 milljarðar íslenskra króna sem gerir tæpa millj...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!