Ef skoðaður er tegundalisti yfir skordýr sem lifa að jafnaði á Suðurskautslandinu er ekki að sjá að fiðrildi (Lepidoptera) tilheyri tegundafánu þessa kalda meginlands.
Örfáar fiðrildategundir finnast hins vegar á suðlægum eyjum í grennd við álfuna til að mynda Pringleophaga kerguelensis sem lifir á hinni afsk...
Kría (Sterna paradisaea) er fugl af þernuætt. Svonefndur öglir (Archaeopteryx) er best þekkti frumfuglinn og við getum þess vegna sagt að öglir sé forfaðir kríunnar.
Öglir eins og listamaður ímyndar sér að hann hafi litið út. Öglir var um 25 cm hár þegar hann stóð uppréttur.
Öglir var fiðraður en hann gat að öll...
Lífið á jörðinni hófst í hafinu en fyrir tæpum 400 milljónum ára hófst landnám hryggdýra. Áframhaldandi þróun varð og á endanum urðu til að mynda fuglar til. Eins og við vitum lifa fiskar í sjónum og öðrum vötnum en fuglarnir fljúga um himininn. Fiskar eru þannig ekki útbúnir fyrir líf á þurru landi. Þegar hryggdý...
Kolviður er sjóður sem Skógræktarfélag Íslands og Landvernd stofnuðu. Hægt er að borga í sjóðinn og greiðslan er notuð til að gróðursetja tré. Þannig er kolefni bundið úr koltvíildi (CO2) andrúmsloftsins og með skógræktinni verður til súrefni.
Á heimasíðu sjóðsins er reiknivél sem reiknar út hversu mörg tré þa...
Þetta er góð og umhugsunarverð spurning sem varðar ýmsar greinar vísinda, til dæmis bæði eðlisfræði og líffræði. Hér verður reynt eftir föngum að fjalla um nokkrar hliðar hennar.
Fleygir fuglar hafa vængi og fiður úr sérstöku efni sem er mjög létt í sér, hrindir frá sér vatni og veldur litlum núningi við loftið...
Heildarþrýstingur (e. pressure) sem verkar á flugvél á flugi samanstendur af stöðuþrýstingi (e. static pressure) og hreyfiþrýstingi (e. dynamic pressure). Stöðuþrýstingur er sá þrýstingur sem stafar af loftþrýstingi loftmassans sem flugvélin er í. Hreyfiþrýstingur er sá þrýstingur sem verkar til dæmis á frambrún v...
Við höfum gert grein fyrir ýmsum grundvallaratriðum loftbelgja í svari okkar við spurningunni Hvaða gas var notað í loftskip? Hyggilegt kann að vera að lesa það svar áður en lengra er haldið hér.
Loftbelgir eru belgir með léttu gasi, nógu léttu til að belgurinn í heild, með umbúðum, farmi og farþegum, geti lyfs...
Orðið sýndarveruleiki er gjarnan notað sem þýðing á enska orðasambandinu „virtual reality“, en það er einkum haft um tölvulíkön sem líkja eftir afmörkuðum sviðum veruleikans. Elstu dæmin um sýndarveruleika, í þessum skilningi, eru flughermar sem notaðir hafa verið til að þjálfa flugmenn frá því á 7. áratug 20. ald...
Það er rétt að kríuvarp er algengt nærri mannabyggðum og er þau að finna nærri bæjum og þorpum víða um land. Krían þrífst til dæmis vel á nokkrum stöðum á Höfuðborgarsvæðinu, svo sem á Seltjarnarnesi og Reykjavíkurtjörn. Stærstu kríuvörpin undanfarna áratugi hafa verið í Flatey á Breiðafirði og á Arnarstapa á Snæf...
Það er auðvitað rétt að kappakstursbílar takast ekki á loft á sléttri braut eins og venjulegar flugvélar. Þetta er aðallega vegna þess að kappakstursbílar eru ekki flugvélar og ekki hannaðir til þess að fljúga!
Flugvélar takast á loft þegar þær hafa náð ákveðnum hraða miðað við loftið í kring. Þá hefur myndast ...
Svarið er nei og þetta má skýra með eftirfarandi athugun.
Lítum fyrst á segulræmuna. Á henni er runa eða safn af örsmáum seglum. Oftast eru þetta staflaga maghemít-seglar, en maghemít (γ-Fe2O3) er segull sem hefur góða eiginleika hvað varðar segulstyrk og stöðugleika. Lega seglanna myndar mynstur sem ræðst...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Sæl. Hvernig teljið þið að ferðamannastraumurinn á Íslandi muni þróast á næstu árum? Mun vera aukning á honum eða jafnvel minnkun? Von um góð svör, Kristján Magnússon.
Allt frá 2010 hefur ferðafólki á Íslandi fjölgað í kringum 30% milli ára. Í því ljósi og þegar horft er til þ...
Keflavíkurflugvöllurinn var byggður af hernámsliði Bandaríkjamanna í seinni heimsstyrjöld. Hann var tekinn í notkun árið 1943.
Til er upplýsingasíða um flugvöllinn bæði á íslensku og ensku og þar er saga vallarins rakin stuttlega. Þar kemur meðal annars fram að á sinni tíð var flugvöllurinn einn af þeim stærri...
Vísindavefnum hafa borist margar spurningar um býflugur og hunangsflugur. Þær eru meðal annars:Hvað éta býflugur?Hvað geta býflugur lifað lengi?Leggjast býflugur í dvala? Ef svo er, hversu lengi? Af hverju suða býflugur?Hvernig gera býflugur bú sín?
Hvar gera hunangsflugur oftast búin?
Hvernig fjölga býflugnadro...
Hér er einnig svarað spurningunni “Af hverju hefur ekki verið lent á Júpíter?”
Nokkur geimför hafa heimsótt Júpíter. Ekkert þeirra hefur þó lent þar því Júpíter er gasrisi og hefur þess vegna ekkert fast yfirborð.
Fyrsta geimfarið sem flaug framhjá Júpíter var Pioneer 10 árið 1973. Það var fyrsta geimfarið ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!