Það sem hér verður sagt á við bandorminn Echinococcus granulosus, tegundina sem olli á sínum tíma sullaveiki í mönnum á Íslandi en var útrýmt á síðustu öld. Í nágrannalöndunum hefur skyld tegund (E. multilocularis) breiðst út á undanförnum árum og áratugum. Sú lifir ekki á Íslandi og mun vonandi aldrei ná hér fótf...
Einkenni þunglyndis geta verið mörg og eitt af þeim getur verið minni löngun í kynlíf. Ef árangur næst með inntöku þunglyndislyfja getur það eitt og sér aukið áhuga á kynlífi á nýjan leik. Þunglyndislyf eru ekki einungis notuð til þess að lækna þunglyndi heldur eru þau einnig notuð sem meðferð við kvíða, áráttu/þr...
Klumpahraun (e. rubbly pahoehoe lava) eru mjög algeng hrauntegund á Íslandi og öðrum flæðibasaltsvæðum.[1] Þau myndast þegar efri skorpa helluhrauna brotnar upp og myndar yfirborðsbreksíu[2] við skyndilega aukinn straumþunga hraunsins eða þegar það flæðir upp að fyrirstöðu sem aftrar framrás þess um tíma.
Athug...
Spyrjandi benti ennfremur á að Danir nota ks í staðinn fyrir x.
Fyrsta tilraun til að gera Íslendingum stafróf var gerð um miðja 12. öld. Hún birtist í ritgerð sem nefnist Fyrsta málfræðiritgerðin, er eftir nafnlausan höfund og er varðveitt í einu handriti Snorra-Eddu. Höfundurinn setti sér það markmið að koma ...
Eðlismassi ferskvatns við 4 °C og einnar loftþyngdar þrýsting er 1,00 kg/l eða 1,00 g/ml. Þetta þýðir til dæmis að einn lítri af vatni við þessar aðstæður hefur massann 1 kg.
Vatn þenst lítillega út þegar það er kælt úr 4 °C niður í frostmark. Rúmmálsbreytingin er um 0,15 af þúsundi og eðlismassinn minnkar sem ...
Laukur er ríkur af B-, C- og G-vítamínum, próteinum, sterkju og lífsnauðsynlegum frumefnum. Efnasamböndin í lauknum innihalda efni sem vernda magann og ristilinn og koma í veg fyrir húðkrabbamein. Laukurinn verkar einnig gegn bólgu, astma og sykursýki og kemur í veg fyrir blóðtappa, of háan blóðþrýsting, blóðsykur...
Í húsagerð notuðu víkingar þann efnivið sem var í boði á hverjum stað. Á Íslandi voru hús byggð úr mold, torfi, grjóti og rekaviði. Sá viður sem þurfti í burðargrind húsa var innfluttur. Annars staðar þar sem skógar voru miklir, eins og í Noregi, voru húsin úr timbri en einnig voru byggð steinhús.
Elstu híbýli ...
Orðið húfur merkir ‘síða eða bógur skips’, en í orðtakinu að vera heill á húfi er upprunalega merkingin ‘skip’, það er 'að vera heill á skipinu' (hluti fyrir heild). Sjálft orðasambandið merkir að ‘vera óskaddaður’ og er oftast notað um þann sem hefur verið í hættu staddur. Þá er gjarnan sagt: ,,Þeir komu í leitir...
Það er kalt á Plútó. Talið er að meðalhiti við yfirborð sé -230°C, hæsti hiti sé um -220°C og lægsti um -240°C. Hitatigið á Plútó er því ekki langt frá alkuli. Ástæðan fyrir þessu er sú að braut Plútó er yfrleitt langt frá sólu og einnig er yfirborðið bjart og sólargeislarnir endurkastast því vel af Plútó.
Í ...
Orðasambandið að velgja einhverjum undir uggum er notað í merkingunni ‛þjarma að einhverjum, láta einhvern finna fyrir valdi sínu’. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans um orðtakið er úr Skírni frá 1839:Áli jarl hafði í hyggju að velgja Tirkjum undir uggum.
Halldór Halldórsson getur sér þess til í ...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvað eru „fórur“ manna, er þetta hugtak til í eintölu og eru til einhver dæmi um raunverulega notkun í einhverju öðru falli en þágufalli?
Orðið fóra, einnig herfóra, merkir ‘vörslur, föggur’, í fornu máli einnig ‘hertygi, herbúnaður’. Í ritmálssafni Orðabókar Háskólans koma aðe...
Leggja einhvern að velli: Merkingin er að 'fella einhvern, sigra einhvern'. Að baki liggur nafnorðið völlur og á orðasambandið rætur að rekja til þess er menn féllu til jarðar í bardaga. Þeir féllu þá til jarðar, að vellinum. Þess vegna er forsetningin að sú sem nota á.
Að gefnu tilefni: Í þessu fasta orðasamba...
Oft er um margar leiðir að velja til að sanna mikilvægar niðurstöður í stærðfræði, og svo er einnig hér. Við veljum eftirfarandi aðferð:
Skiptum hring með geisla (radía) r í geira út frá miðju á sama hátt og þegar hringlaga terta er skorin í tertuboði, utan hvað við höfum geirana mjög litla; látum stærð þeirra ...
Það kallast fósturlát þegar fóstur deyr áður en það hefur náð nægilegum þroska til þess að geta lifað sjálfstætt. Venjulega er talað um fóstur þegar meðgangan hefur ekki náð 22 vikum eða ef fóstrið er léttara en 500 g.
Algengast er að fósturlát verði á fyrstu 12 vikum meðgöngunnar og er það venjulega kallað sn...
Ástæðan fyrir þessu liggur í að eina slétta frumtalan er 2. Við munum að frumtölurnar eru þær heilu tölur sem eru stærri en 1, og má aðeins skrifa sem margfeldi af 1 og sjálfri sér. Þannig er 2 frumtala, og 3 líka, en ekki 4 af því hún er jöfn 2∙2. Allar sléttar tölur má skrifa á forminu 2∙n, þar sem n...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!