Það er rétt að langflestir steinar í umhverfi okkar eru gráir og skýrist það af þeirri berggerð sem algengust er hér á landi. Steinar finnast samt sem áður einnig í öðrum litum og er slíkt nokkuð algengt sums staðar erlendis.
Orðið steinn getur bæði átt við berg/bergtegund (grjót) og steindir (steintegundir). ...
Rafleiðni efna, það er að segja hæfni þeirra til að leiða rafstraum, er geysilega mismunandi. Tökum sem dæmi 20 m langan koparvír sem er 3,3 mm í þvermál. Viðnám hans er 0,04 ohm. Ef við setjum á hann spennuna 1 volt verður straumurinn í honum 25 amper, sem er mikill straumur, til dæmis meiri en öryggin leyfa okku...
Hor er samheiti yfir það slím er frá nefinu kemur. Þannig getur horið verið mjög misjafnt að gerð og magni. Þurrt hor eða hor sem er fast í sér fæst einungis fram þegar við borum í nefið eða snýtum okkur hressilega og er sú gerð hors ef til vill sú þekktasta. Við sjúklegar uppákomur, þá sérstaklega sýkingar breyti...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:Hvenær kom fram hvítur kynstofn tegundarinnar Homo sapiens og hvernig vildi það til?Einfalt og stutt svar við þessari spurningu er að erfðafræðilegur munur á hópum innan tegundarinnar Homo sapiens er óverulegur og því er enginn líffræðilegur grundvöllur fyrir skiptingu tegundar...
Upphafsmaður erfðafræðinnar, Gregor Mendel (1822-1884), rannsakaði erfðir vissra einkenna hjá baunaplöntum (Pisum sativum). Hann skýrði niðurstöður tilrauna sinna með því að einkennin væru ákvörðuð af eindum sem erfðust með reglubundnum hætti. Mendel skrifaði á þýsku og nefndi þessar eindir einfaldlega Elemente. N...
Á Vísindavefnum hefur áður verið fjallað sérstaklega um andlitsgrímur og COVID-19 og bendum við lesendum á að lesa fyrst svar við spurningunni Hafa rannsóknir sýnt að andlitsgrímur komi í veg fyrir að fólk smitist af COVID-19?
Í kjölfarið vaknar auðvitað spurningin: hvað með taugrímur? Í stuttu máli vitum við a...
Algengustu rafhlöður í farsímum og í fjölmörgum handhægum rafknúnum tækjum, eins og myndavélum, vasahljómflutningstækjum og rakvélum, eru núna litínjónarafhlöðurnar (e. lithium-ion batteries). Um þær er hægt að lesa meira í svari við spurningunni Hvernig verka litínjónarafhlöður og hvernig er hægt að hlaða þær aft...
Sólkerfið okkar byrjaði að myndast fyrir tæpum fimm milljörðum ára, þegar geysistórt gas- og rykský tók að falla saman. Er þrýstingur jókst í skýinu myndaðist frumsól í miðju þess og í efnisdisk umhverfis hana mynduðust reikistjörnur sólkerfisins.
Fjallað er í rækilegra máli um uppruna sólkerfisins og reikistja...
Bæði orðin sulta og marmelaði eru tökuorð úr dönsku, sylte(tøj) og marmelade, og merkingin með.
Sultu er oftast þannig lýst að hún sé gerð úr berjum eða ávöxtum sem soðnir eru í sykurvatni. Sulta er þynnri en marmelaði sem aftur er hlaupkenndara.
Mynd: Jam-gemeente Neede
...
Á vefnum mun ekki vera til skrá eins og þú leitar að. En þar má þó finna grein eftir Eirík Rögnvaldsson prófessor frá 1986 með titlinum ,,Nokkur viðskeyti og tíðni þeirra”.
Fjallað er um viðskeyti í bók Eiríks Íslensk orðhlutafræði og allrækilega er gerð grein fyrir viðskeytum og notkun þeirra í ritverkinu Ísl...
Hér er einnig svarað spurningunni: Hvað er þekjuvefur?
Dýravefir eru yfirleitt flokkaðir í stoðvefi, þekjuvefi, blóð, taugavefi og vöðvavefi. Í þessu svari er athyglinni fyrst og fremst beint að stoðvefjum og þekjuvefjum en þegar hefur verið fjallað um vöðvavefi í svari sama höfundar við spurningunni Hvað getið...
Sykrur eru lífræn efni sem einnig kallast kolvetni. Efnafræðilega eru sykrur hýdröt kolefnis (hýdrat er efnasamband orðið til við samruna tiltekins efnis og vatns) með almennu formúluna (CH2O)n þar sem \(n\geq 3\). Ef sykrusameind er gerð úr einni slíkri einingu telst sykran til einsykra, ef hún er gerð úr tveimur...
Skriflegar heimildir um notkun þungunarprófa á Íslandi á síðustu öld eru af mjög skornum skammti. Það sem hér fer á eftir er að miklu leyti byggt á munnlegum upplýsingum sem íslenskir læknar, meinatæknar, lyfjafræðingar og leikmenn hafa gefið eftir minni.
Þungunarhormónið hCG (e. human chorionic gonadotropin) h...
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvað er fuglaflensa? er fuglaflensa einfaldlega inflúensa í fuglum sem orsakast af mörgum mismunandi tegundum inflúensuveiru A.
Þegar þetta svar er skrifað hefur faraldur fuglaflensu verið í gangi í Evrópu síðustu mánuði. Ítarlegar upplýsingar um faraldurinn liggja fy...
Geiger-nemi er geislanemi af ákveðinni gerð. Um geislun má lesa meira í svarinu við spurningunni: Hvað er geislun og hvað eru til margar gerðir af henni?
Geiger-nemi flokkast undir geislamælitæki sem byggja á notkun jónunarhylkja, en jónunarhylki er lokað hylki með rafskautum sem fyllt er með gasi. Þegar geis...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!