Vaxtarhraði er mismunandi eftir einstaklingum og eftir aldri. Fyrstu tvö ár ævinnar einkennist vöxtur af því að það hægir á bæði hraða lengdarvaxtar og hraða þyngdaraukningar sem eru orðin nokkuð stöðug við tveggja til þriggja ára aldur. Á fyrstu tveimur árunum er vöxturinn í samræmi við erfðabakgrunn barnsins. Tv...
Glýseríð er efnasamband í flokki lípíða og er samsett úr glýseróli og fitusýrum. Glýseríð gegnir mikilvægu hlutverki bæði í lífverum og í matvæla- og efnaiðnaði.
Glýseról er keðja af þremur kolefnisatómum með þremur hýdroxíðhópum (OH) (sjá mynd 1). Glýseról getur tengst einni, tveimur eða þremur fitusýrum og my...
Flestir sem tekið hafa utan af soðnum eggjum kannast við að miserfitt getur verið að ná skurninni af. Stundum nánast flettist skurnin af með örfáum handtökum en í öðrum tilfellum er hún nánast föst við hvítuna þannig að það þarf að kroppa hana af í litlum bitum og oft fylgir hluti af hvítunni með.
Á egginu til...
Þótt finna megi frásagnir af uppruna manns og heims í kínverskri menningu léku þær í raun algert jaðarhlutverk í kínverskri trú til forna, hvort sem um er að ræða alþýðutrú, daoisma eða konfúsisma. Þessi litla áhersla á uppruna er einmitt eitt þeirra einkenna sem einkum greina kínversk og raunar austur-asísk trúar...
Örlygsstaðabardagi var háður 21. ágúst 1238 í Skagafirði austanverðum á stað sem var kallaður Örlygsstaðir , skammt fyrir norðan Víðivelli en nokkru lengra fyrir sunnan Miklabæ. Þar var þá sauðahús, en þrátt fyrir þetta ábúðarmikla nafn staðarins er ekki vitað til að þar hafi nokkurn tímann verið byggt býli. Tildr...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Eru vísbendingar um að almenningur í Króatíu telji þjóðernishreinsanir nauðsynlegar undir vissum kringumstæðum, sbr. viðbrögð þegar Gótóvína hershöfðingja var sleppt úr fangelsi alþjóðastríðsglæpadómstólsins?
Orðið þjóðernishreinsanir er siðferðislegt hugtak en ekki lagaleg...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hverjir voru snákaolíusölumenn?
Hugakið snákaolía er notað um ýmsar vörur ætlaðar til hjálækninga. Íslenska hugtakið hjálækningar er þýðing á ensku orðunum 'complementary' eða 'alternative medicine'.
Til hjálækninga flokkast þær aðferðir til lækninga sem samrýmast e...
Orðið djús 'ávaxtasafi' á sér ekki ýkja langa sögu í íslensku. Elsta dæmið sem fundist hefur á prenti er úr Morgunblaðinu 1961 og orðið er líka í fyrstu útgáfu Íslenskrar orðabókar frá 1963 sem bendir til að það hafi þá þegar verið orðið nokkuð algengt í daglegu tali. Lengi framan af virðist það sjaldgæft í ritmál...
Alls hefur sést til að minnsta kosti 23 hvalategunda í íslensku lögsögunni. Vissulega eru þessar tegundir misalgengar, líklega er einna algengast að sjá hrefnur (Balaenoptera acutorostrata) á grunnsævinu við landið en tegundir eins og norðhvalur (Balaena mysticetus) og mjaldur (Delphinapterus leucas) eru afskapleg...
Eins og á oft við um uppfinningar getur verið snúið að segja til um hver fann upp hitt og þetta.
Sú hugmynd að nota varin farartæki nær aftur til 9. aldar f.Kr. hjá Assyríumönnum. Assyría var fornt stórveldi í Vestur-Asíu. Notkun farartækja í hernaði má svo rekja aftur til 2. aldar f.Kr. meðal Egypta og fleiri...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Er það til í dæminu að Alzheimers-sjúklingar líti í spegil og þekki ekki sjálfan sig?
Stutta svarið við spurningunni er: Já, það getur átt sér stað.
Fyrirbærinu var sennilega fyrst lýst árið 1928. Þar var um að ræða tæplega sjötugan karlmann með heilabilun. Þegar ha...
Fræðimenn fornaldar höfðu mikinn áhuga á stjörnufræði. Babýloníumenn voru fyrstir til að þróa hnitakerfi til að lýsa staðsetningu á himinhvelinu. Stjörnufræðingurinn Ptólemaíos (um 100–178) notaði þetta hnitakerfi á 2. öld e. Kr. í bók sinni Almagest sem var meginrit um stjörnufræði um margar aldir.
René Des...
Svarti nashyrningurinn (Diceros bicornis) er önnur af tveimur tegundum nashyrninga í Afríku. Hin tegundin er hvíti nashyrningurinn (Ceratotherium simum). Hvor tegund skiptist síðan í nokkrar deilitegundir.
Svarti nashyrningurinn er talsvert minni en sá hvíti. Stærðarmunur milli kynja hjá svarta nashyrningnum er...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Ég hef lesið, að Ólafur, eiginmaður Auðar djúpúðgu, hafi verið konungur eða víkingakonungur í Dublin á Írlandi. Lét hann eitthvað eftir sig þar? Markaði hann einhver spor á Írlandi? Þau Auður áttu væntanlega afkvæmi, syni og dætur, hvað varð um þau?
Laxdæla og Landnámabók segja...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Hvaðan kemur tómatsósa og hvaða snillingur fann hana upp?
Hvort er tómatsósa búin til úr tómötum eða eplum?
Tómatar eru aðalinnihaldsefni í ýmsum sósum sem eiga sér langa sögu í mörgum löndum. Í ensku er bæði talað um tomato sauce og tomato ketchup sem oftast er stytt í ketc...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!