Upprunalega spurningin hljóðaði svo:Er sagnorðið að sóla, eins og að sóla einhvern í fótbolta, íslenskt orð? Hvaðan kemur það? Er það tengt enska orðinu solo?
Sögnin að sóla er eitt af mörgum orðum úr erlendu tungumáli sem lagað hefur verið að íslensku. Í þessu tilviki er veitimálið enska. Enska orðið solo getu...
Orðið galgopi er notað um karl eða konu sem er fljótfær og sýnir litla aðgæslu. Það er sett saman af áhersluforliðnum gal-, sem elst dæmi eru um frá 18. öld (Ásgeir Blöndal Magnússon 1989:224), og nafnorðinu gopi sem hefur fleiri en eina merkingu. Það getur merkt ‘munnop, lítill (gráðugur) munnur; op; stutt, skjól...
Orðið erfi er gamalt í málinu og er notað um samkomu sem efnt er til í því skyni að minnast, oftast að heiðra minningu, látins manns. Annað orð um sama er erfisdrykkja. Í Laxdæla sögu er sagt frá láti Höskulds Dala-Kollssonar (ÍFV:73). Þar stendur (stafsetningu breytt):
Synir hans láta verpa haug virðulegan ...
Mest selda hljómplata allra tíma er 'Thriller' eftir Michael Jackson. Hún hefur selst í yfir 100 milljón eintökum á heimsvísu, sem er meira en tvisvar sinnum fleiri eintökum en næsta plata á eftir.
Næstu plötur í röðinni eru 'Back in Black' með AC/DC sem hefur selst í um 45 milljón eintökum, plata Pink Floyd 'T...
Upprunalega spurningin var:
Hvaðan kemur orðtakið „að heyra ekki boffs” og hvað þýðir boffs?
Orðið bofs er hljóðgervingur í merkingunni ‘gelt, gjamm’ sem og sögnin að bofsa ‘gelta, gjamma’. Sambandið ekki bofs ‘alls ekki neitt’ þekkist þegar í fornu máli en þá skrifað með p. Í Þórðar sögu hreðu stendur í 3...
Upprunalega hljómaði spurningin svona:
Getur orðið „Hæ” verið heil setning (Úr orðflokknum upphrópun)?
Hæ er upphrópun sem ein og sér er ekki heil setning. Í ritinu Handbók um málfræði skilgreinir Höskuldur Þráinsson setningu á þessa leið (1995:136):
Setning er orðasamband sem inniheldur eina aðalsögn, og o...
Það fer líklega eftir stemningunni hverju sinni hvernig fólk vill bera orðið stemning fram. Í Íslenskri orðabók frá Eddu er tvenns konar ritháttur á orðinu tilgreindur. Annars vegar stemning með einu m-i og n-i og hins vegar stemming með tveimur m-um og án n.
Stemning merkir skap, geðblær eða einhvers konar hug...
Albínismi er þekkt erfðafræðilegt ástand hjá öllum hryggdýrum. Albínóar finnast einnig meðal skordýra, til að mynda eru til hvítingjar af fiðrildategundinni Erebia epiphron silesiana.
Orsökin fyrir albínisma liggur í stökkbreytingu í geni sem tjáir ensímið týrósínasa en það leikur mikilvægt hlutverk í myndun me...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Köllum við borð þessu nafni því við borðum við það eða segjumst við “borða” því við borðum við borð? Hvort er nefnt eftir hverju?
Sögnin að borða þekkist þegar í fornu máli en þá virðist merkingin vera ‘ganga eða sitja til borðs til þess að matast’ og ‘framreiða mált...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:Hefði gaman af því að heyra um uppruna orðsins kórréttur, að vera kórréttur.
Orðið kórréttur ‘alveg réttur, fullkomlega réttur’ er ekki mjög gamalt í málinu. Elsta heimild sem fram kemur við leit á timarit.is er úr Morgunblaðinu frá 1960 og sú næsta þar á eftir úr Vísi 1963...
Orðið kæringur er ekki algengt í málinu. Ekkert dæmi fannst í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans og ekkert heldur um heilkæringur. Nokkur dæmi fundust þar um hálfkæringur, hið elsta úr þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar sem safnað var til um miðja 19. öld.Orð þessi mælti hann með hálfkæríngs hæðnissvip og málfæri, og ei...
Munurinn á dökkum og ljósum púðursykri fest í því hversu mikið hann inniheldur af efnum sem gefa honum lit.
Púðursykur er oftast nær hreinsaður sykur sem búið er að húða með melassa (e. molasses), sykursírópi eða öðrum efnum sem gefa honum brúnan lit. Hversu dökkur sykurinn er fer eftir því hversu mikið af öð...
Stutta svarið er að hundar geta lifað á kattamat, en ef hann er uppistaðan í fæðu þeirra um lengri tíma gæti það leitt af sér heilsufarsvanda.
Gæludýrafóður er þróað með næringarþörf viðkomandi dýra að leiðarljósi. Hundar eru í eðli sínu alætur en kettir eru hins vegar kjötætur frá náttúrunnar hendi. Næringarþö...
Lýsingarorðið dannaður er tökuorð úr dönsku, dannet, (sjá til dæmis Den danske ordbog á vefnum ordnet.dk) og var mest notað á 19. öld. Samkvæmt Íslenskri orðabók Eddu (2002:205) er skýringin „sem kann að haga sér á heimsvísu, hefur tamið sér siði og hætti heldra fólks (einkum embættis- og borgarastéttar í útlöndum...
Orðasambandið að komast í tæri við einhvern er kunnugt frá síðari hluta 18. aldar. Í íslensk-latnesk-danskri orðabók Björns Halldórssonar, sem unnin var undir lok 18. aldar en gefin út 1814, eru dönsku skýringarnar eftir málfræðinginn Rasmus Kristian Rask. Tæri er sagt merkja ‘Samliv’ (það er sambúð) og komast í t...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!