Heimildum ber ekki mjög vel saman þar sem hver þúfa og steinn skiptir máli í þessu tilviki. Þó eru tvö fjöll sem helst eru nefnd, Ejer Bavnehöj (um 171 m) og Yding Skovhöj (um 173 m).
Danmörk er mjög láglent land svo að varla er hægt að tala um eiginleg fjöll þegar talað er um „hæsta fjall í Danmörku". Það segi...
Árið 1891 fann Whitcomp L. Judson upp fyrstu gerðina af rennilás og var hann kallaður Clasp locker. En árið 1913 fann Gideon Sundback hins vegar upp rennilásinn eins og við þekkjum hann og fékk á honum einkaleyfi 1917. Hann var kallaður separable fastener. Seinna ákvað fyrirtækið Goodrich Co. að prófa rennilásinn...
Letidýr er talið fara hægast af spendýrum í heiminum. Hraði þess er 0,24 km á klukkustund. Þessi hraði er svo lítill að þörungar vaxa á dýrinu. Letidýr er um það bil jafn stórt og lítill hundur, 50-75 cm á lengd og tæplega 10 kg að þyngd . Stórum hluta ævinnar eyðir letidýrið í að éta, sofa, fjölga sér og hanga á ...
Að öllum líkindum fann enginn einn einstaklingur upp snjóbrettið. Margir gera tilkall til þess að hafa fundið það upp. Til eru að minnsta kosti tvær sögur af upphafi þess frá svipuðum tíma.
Sú fyrri hljómar á þá leið að árið 1964 hafi Sherman Poppen, frá Michigan, búið til leikfang fyrir dóttur sína, svonefnd...
Franski vísindamaðurinn og landkönnuðurinn Charles Marie de la Condamine flutti fyrstur náttúrulegt gúmmí til Evrópu árið 1736. Ýmis not voru fundin fyrir það og árið 1770 skrifar hinn þekkti vísindamaður Joseph Priestley að hann hafi séð efni sem væri sérstaklega gott til að þurrka út för eftir blýant. Hann nefni...
Athugasemd ritstjórnar: Þegar þetta svar var upphaflega skrifað var Plútó flokkaður sem ein af reikistjörnum sólkerfisins. 24. ágúst árið 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga aftur á móti nýja skilgreiningu á reikistjörnum. Plútó fellur ekki undir hana og telst nú til dvergreikistjarna. Reikistjörnurnar er...
Anna Frank, fædd 12. júní 1929, var þýsk stúlka af gyðingaættum sem neyddist til að fara í felur á meðan ofsóknir nasista gegn Gyðingum stóðu yfir. Þann 6. júlí 1942 flúði fjölskylda Önnu heimili sitt og kom sér fyrir í leyniherbergi á vinnustað föður hennar í Amsterdam í Hollandi. Þar höfðust þau við í 25 mánuði ...
Spurningin frá Hlín hljóðaði svona í fullri lengd:Á mínu heimili hefur myndast smá togstreita á milli mín og mannsins míns en ég nota iðulega orðið ristavél en hann tekur það ekki gott og gilt og notar orðið brauðrist. Því spyr ég: Er orðið ristavél ekki til? Margir spyrjendur hafa spurt Vísindavefinn sambærilegra...
Istanbúl er stærsta borg Tyrklands og var áður höfuðborg landsins. Nú er Ankara höfuðborgin. Borgin hét fyrst Býsans en það er hugsanlega dregið af nafni Býsas sem var leiðtogi Grikkja frá Megöru og átti samkvæmt fornum sögnum að hafa stofnað borgina um 657 f. Kr.
Frá árinu 330 e. Kr. til 1930 nefndist borgin ...
Hugtakið bandvídd (e. bandwidth) segir til um hversu miklar upplýsingar er hægt að flytja á tímaeiningu. Hugtakið bandbreidd er einnig notað um það sama.
Frá Íslandi liggja sæstrengir sem sjá um að miðla rafrænum upplýsingum til og frá landinu. Fyrirtækið Farice, sem er í eigu ríkisins, á og sér um rekstur tveg...
Sólveig Einarsdóttir spurði: Hvaða heimsálfa er stærst og hver er minnst?
Það er mjög ruglingslegt að leita að þessum svörum en það er Asía sem er stærst, hún er 43.608.000 km2, svo er Afríka 30.335.000 km2, Norður-Ameríka er 25.349.000 km2, Suður-Ameríka er 17.611.000 km2, Suðurskautið 13.340.000 km2, ...
Hér er einnig svarað spurningu Rutar Bergmann: „Hvað var Jóhann risi hár?”
Hæsti maður í heimi heitir Wang Fengjun frá Kína en hann er meira en 2,5 metrar á hæð. Fengjun er 22 ára og á að fara í aðgerð sem á að fá hann til að hætta að stækka. Aðrir spítalar hafa neitað að framkvæma þessa aðgerð af því að hún ku...
Morse-kóði er gamalt samskiptaform þar sem hver bókstafur er táknaður með ákveðnum fjölda punkta og strika. Sem dæmi er bókstafurinn A í Morse-kóðanum táknaður með punkti og bandstriki eins og hér er sýnt: A = .-
Þetta táknkerfi var notað í svokölluðum ritsíma (e. telegraph), til dæmis á skipum og í lestum til ...
Fræðimenn geta aðeins giskað á það hvaða þjóðflokkar voru fyrstir til að spila tónlist.
Elsta hljóðfæri í heimi sem vitað er um er flauta úr holu beini sem kallast Neanderdalsflautan. Hún er talin vera 45 þúsund ára gömul.
Talið er að 3400 ára gamlar leirtöflur sem fundust á Sýrlandi (þar sem nú er Ras Sham...
Arkímedes dó annað hvort árið 211 eða 212 f. Kr. Þá var hann 75 eða 76 ára gamall. Hann var drepinn í umsátrinu um borgina Sýrakúsu af rómverskum hermanni.
Til eru nokkrar frásagnir af dauða Arkímedesar. Ein er á þá leið að þegar Rómverjar réðust inn í Sýrakúsu hafi Arkímedes verið niðursokkinn í stærðfræðileg...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!