Öll spurningin hljóðaði svona:
Er til efni um það hvort örbylgjur geri veirur óvirkar, t.d ef veirur berast í fatnað svo sem hanska er þá eitthvað gagn í því að setja slíkan mengaðan fatnað í örbylgjuofn?
Örbylgjur eru rafsegulbylgjur rétt eins og sýnilegt ljós, röntgengeislar, innrautt ljós og útfjólublátt...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Er það ólöglegt að neita fólki um vatn að drekka? Ég hef heyrt að það sé ólöglegt samkvæmt Grágás eða Jónsbók og að þau lög séu ennþá í gildi.
Grágás er lagasafn frá þjóðveldistímanum og Jónsbók var önnur tveggja lögbóka sem Magnús lagabætir lét gera fyrir Ísland og var hú...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:Er rangt mál verndað af málfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar? Væri t.d. hægt að refsa mér fyrir að segja að reykingar séu hollar, smokkar séu gagnslausir, mamma mín sé 150 ára, og Kringlan sé lokuð á miðvikudögum? Eða myndi það brjóta gegn stjórnarskránni?
Skoðana- og tjánin...
Jón Thoroddsen er þekktastur fyrir skáldsögur sínar Pilt og stúlku og Mann og konu, auk þess sem mörg ljóða hans eru vel þekkt, ekki síst þau sem sonarsonur hans Emil Thoroddsen gerði lög við, svo sem „Búðarvísur“, „Vögguvísu“ (Litfríð og ljóshærð) og „Til skýsins“, að ógleymdum ættjarðarljóðum á borð við „Ísland“...
Upprunalega spurningin frá Erni hljóðaði svona:
Hvaðan kemur þessi rótgróna hugmynd um að ávöxtur skilningstrésins hafi verið epli?
Það er ekki með nokkru móti hægt að vita hvers lags ávöxtur óx á skilningstré góðs og ills vegna þess að hinn hebreski frumtexti Biblíunnar í 1. Mósebók 3.6 talar aðeins um „áv...
Á 14. öld framleiddu Íslendingar handrit til útflutnings á Noregsmarkað og einhver þeirra kunna að vera varðveitt enn í bútum og brotum, en varla heil eintök. Undir lok 16. aldar fengu danskir og sænskir fræðimenn áhuga á íslenskum fornritum og handrit tóku að slæðast úr landi. Enn jókst straumurinn um miðja 17. ö...
Persónuleika Grettis Ásmundssonar á Bjargi hefði trúlega mátt lýsa þannig að Grettir hafi verið önuglyndari eða uppstökkari en gerist og gengur. Með því er átt við að hann hafi sýnt af sér önuglyndi eða að hann hafi stokkið upp á nef sér bæði oftar og víðar en aðrir. Einnig væri með lýsingunni gert ráð fyrir því a...
Inngangur
Öll matvæli skemmast fyrr eða síðar og fyrir flesta takmarka skemmdir endingartíma matvæla. Við skemmdir breytast ákveðnir eiginleikar matvæla þannig að þau eru ekki lengur boðleg til neyslu. Mjög oft stafa skemmdir af völdum örvera en einnig geta matvæli orðið óhæf til neyslu vegna ýmissa óæskilegra...
Billi barnungi er líklega þekktastur hér á landi sem persóna í Lukku-Lákabókunum Billi barnungi og Heiðursvörður Billa barnunga. Eins og margar aðrar persónur í bókunum á Billi sér raunverulega fyrirmynd sem er „byssubófinn“ Billy the Kid. Til er ein mynd sem örugglega er af Billa og önnur er líklega af honum.
...
Í eftirfarandi svari er gengið út frá því að átt sé við að börnin fæðist með galla sem hafi í för með sér líkamlega eða andlega fötlun, það er fæðingargalla.
Fæðingargalli er skilgreindur sem óeðlileg gerð, starfsemi eða efnaskipti sem eru fyrir hendi við fæðingu barns og leiða til andlegrar eða líkamlegrar fö...
Einn mikilvægasti þátturinn í lýðræðislegu samfélagi er réttur fólks til að mótmæla og gagnrýna. Þetta á sérstaklega við um stjórnvöld og aðgerðir þeirra. Rétturinn til þess að koma saman og mótmæla eða láta skoðun sína í ljós með öðrum hætti er varinn í stjórnarskránni og af ýmsum mannréttindasáttmálum sem Ísland...
Almennt er hægt að höfða mál gegn miðlum, eins og öðrum og það sama gildir um slíka málsókn og aðrar málsóknir, að ef sannanir eru fyrir hendi þá er líklegt að málsóknin beri árangur.
Þó verður að gera greinarmun á tvennu varðandi starfsemi miðla. Annars vegar getur komið til að þær forsendur sem viðskiptavinur...
Í almennri umræðu er ekki alltaf gerður sami greinarmunur á hugtökunum varðhaldi og gæsluvarðhaldi og í lögfræðilegri umfjöllun. Þar má nefna að stundum er talað um að menn séu í varðhaldi þegar þeir eru í haldi lögreglu eftir handtöku og þá er varðhald oft notað jöfnum höndum yfir hugtakið gæsluvarðhald.
Hugt...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Hvað getið þið sagt mér um Jón þumlung og píslarsögu hans?
Jón „þumlungur“ sem svo var oft nefndur hét Jón Magnússon og var um miðbik 17. aldar sóknarprestur að Eyri í Skutulsfirði, þar sem nú er Ísafjarðarbær.
Séra Jón Magnússon er þekktastur fyrir að hafa orðið til þe...
Spurningin hljóðaði upphaflega svona:
Hvað orsakaði Kóreustríðið? (Hvers vegna braust stríðið út?)
Ekki eru allir á einu máli um hvað réð mestu um upphaf Kóreustríðsins en hægt er að rekja það til samspils fjögurra meginþátta:Yfirráða Japana í Kóreu á árunum 1910-1945;Hugmyndafræðilegs ágreinings Sovétríkjanna...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!