Orðið rogastans merkir ‘mikil undrun’ og er nær eingöngu notað í orðasambandinu að einhvern reki í rogastans ‘einhver verður mjög hissa’. Orðið er samsett úr roga- og nafnorðinu stans ‘dvöl, töf’.
Það er sagt að menn reki í rogastans þegar þeir verða mjög hissa.
Roga- er svokallaður ‘herðandi forliður’ sem notað...
Oftast berast nokkrir tugir spurninga til Vísindavefsins á degi hverjum. Þegar mest lætur fáum við stundum rúmlega 60 spurningar á dag og því miður getum við ekki svarað þeim öllum strax.
Stundum fáum við spurningar um eitthvað efni sem við eigum svör við, þó að spurningarnar hljómi ekki alveg eins. Ef það er r...
Líklega er helsti tilgangur augabrúna að koma í veg fyrir að vökvi á borð við regnvatn eða svita berist í augun. Lögun augabrúnanna gerir að verkum að vatn lekur fremur framhjá augunum en inn í þau.
Einnig er mjög líklegt að augabrúnir auðveldi mönnum að sýna tilfinningar sínar. Þegar fólk er reitt hleypir það...
Sennilegasta skýringin á því að hundar halla oft undir flatt þegar fólk talar við þá er að þeir séu að reyna að heyra betur. Eyrun eru staðsett á hliðum höfuðsins og bylgjurnar berast ekki beint í þau. Með því að halla undir flatt þá breyta þeir afstöðu eyrnanna gagnvart hljóðinu og geta numið það betur.
Yngri ...
Við þessari spurningu er til einfalt svar: Þú ert þú. En þó svo að svarið sé vissulega rétt og enginn geti með góðu móti efast um sannleiksgildi þess, þá er ekki þar með sagt að það sé fullnægjandi. Við erum nefnilega litlu nær.
Svipuðu máli gegnir um spurninguna: Hvað er til? Henni má svara: Allt er til. Þett...
Varmageislun frá sólinni hitar jörðina en ræður alls ekki öllu um yfirborðshitann. Jörðin geislar líka frá sér varma, rétt eins og sólin. Við sjáum vel geislunina frá sólinni, því mest af henni er sýnilegt ljós. Varmageislunin frá jörðinni liggur hins vegar langt utan sýnilega sviðsins.
Eðlisfræðingar hafa leng...
Þetta er föstudagssvar. Eins og venjulegt er um slík svör ber ekki að taka hvert orð í því bókstaflega, þó að það geti kannski vakið til umhugsunar. Ritstjórn hefur þann sem samdi frumdrög svarsins sterklega grunaðan um að hafa brugðið á leik með mál og stíl undir lok vinnuvikunnar enda hafi endorfín verið farið a...
Athugasemd ritstjórnar: Þetta svar fjallar sérstaklega um kynferðisafbrot sem beinast gegn börnum geranda.
Fræðimenn sem rannsakað hafa kynferðislega misnotkun á börnum hafa meðal annars flokkað kynferðisafbrotamenn á þennan hátt:
Gerandinn sem leitar eftir ástúð og hlýju
Gerandinn þar sem allt snýst um kyn...
Hitabeltisregnskógum er aðallega eytt af tveimur ólíkum ástæðum. Í fyrsta lagi á fátækt fólk sem býr í jaðri regnskóga oft ekki um annað að velja en að höggva skóginn og rækta landið til að lifa af. Þegar frjósemi jarðvegsins á þessum landskikum minnkar stundar fólk svonefnda sviðuræktun (e. slash and burn farming...
Upprunaleg spurning Ragnars hljómaði svona: Sæl verið þið. Ég hef velt einu fyrir mér í lengri tíma en ég þori að hugsa um en er reyndar líka hissa á því að ekki skuli vera meira fjallað um þetta. Slíkt tel ég mikilvægi þess vera. En spurningin er: Hvers vegna er Wales skrifað með W á íslensku og hvers vegna er þa...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!