Lati-Geir á lækjarbakka
lá þar til hann dó.
Vildi ekki vatnið smakka
var hann þyrstur þó.Frá því löngu áður en Lati-Geir lá á sínum lækjarbakka hafa menn gert gys að letingjum. Jafnframt velta menn fyrir sér hvað valdi því að þessi eða hinn sé latur, hvers vegna unga fólkið sé svona latt og svo fram eftir götun...
Ekki er við hæfi að gefa spyrjanda sem spyr slíkrar spurningar langt nef.
Ritstjórn Vísindavefsins fór á stúfana og rak fyrst inn nefið hjá lögfræðisviði Vísindavefsins -- enda um háalvarlegt lögfræðilegt álitamál að ræða. Þar stungu lögfróðir saman nefjum og við fyrstu sýn leit út fyrir að menn vissu lengra sí...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hver, ef einhver, er helsti munurinn á atómljóðum annars vegar og prósaljóðum hins vegar?
Í stuttu máli er helsti munurinn sá að prósaljóð er alþjóðlegt hugtak en atómljóð séríslenskt.
Hugtakið prósaljóð er alþjóðlegt hugtak um skáldlegan texta sem ekki er á bundnu ...
Þetta er erfið og margslungin spurning sem varðar margar fræðigreinar. Þess er ekki að vænta að við henni finnist endanlegt aða einhlítt svar en hins vegar geta tilraunir til svars væntanlega vakið lesendur til umhugsunar og varpað ljósi á tilteknar hliðar málsins. Við birtum hér á eftir eina slíka tilraun til sva...
Póstmódernismi er hugtak. Það er ekki aðeins eitt af stærri hugtökum í vestrænni hugmynda- og menningarsögu, heldur varðar það nútímann og lifandi fólk. Nú kann það sem er risavaxið og í seilingarfjarlægð að virðast auðgreinanlegt og svarið við spurningunni: Hvað er póstmódernismi? að liggja í augum uppi. En því m...
Spyrjandi segir í skeyti til svarshöfundar:Ég var að lesa svar þitt við spurningunni: Hvað er rafmagn? á Vísindavefnum. Ég þakka svarið en fannst þú ekki komast að kjarnanum í spurningunni vegna þess að í svarinu gerir þú ráð fyrir að rafhleðslur séu staðall. Spurningin var hins vegar um hvað þetta fyrirbæri sé. Þ...
Það er ekki hægt að gefa skýrt svar við spurningunni hvenær verða tré að skógi. Ástæðan fyrir því er sú að mörkin á milli skógar og trjáa eru óljós og geta oltið á ýmsu, til dæmis stærð og umfangi trjánna.
Tökum nokkur dæmi til að skýra þetta. Ímyndum okkur að við plöntum 100 litlum plöntum. Þær eru svo smávaxn...
Eins og kemur fram í svari við spurningunni hvort tilraunir Evrópsku rannsóknamiðstöðvarinnar í öreindafræði (CERN) með stóra sterkeindahraðlinum (e. Large Hadron Collider) ógni tilvist heimsins þá setti fjöldi fólks fram tilgátur um mögulegar hamfarir í kjölfar tilraunanna. Má fræðast um tilgang þeirra í merkri b...
Þótt orðið karaoke sé ekki alveg nýtt í málinu hefur ekkert eitt íslenskt orð fest sem nýyrði yfir þetta hugtak. Í nýyrðabanka Íslenskrar málstöðvar eru fjögur orð sem þangað hafa borist. Þau eru:
lagvísir, sem sennilega er þannig hugsað að það vísar á lagið, hjálpar til við að halda lagi
tónhjarl, karlky...
Hugtakið fornbókmenntir er notað um tvennt, annars vegar fornar bókmenntir og hins vegar íslenskar bókmenntir fyrir siðaskipti, aðallega fyrir 14. öld. Hugtakið fornar bókmenntir er síðan aðallega notað um klassískar bókmenntir Grikkja og Rómverja en einnig mætti nota það um bókmenntir annarra þjóða.
Af sama to...
Bæði orðin hafa lengi verið í notkun um fé í sjóði eða á reikningi. Í Íslenskri orðabók (2007) eru innstæða og innistæða sögð notuð um hið sama í hagfræði og í viðskiptum. Það sýna einnig dæmi í textasafni Orðabókar Háskólans en þau um innstæðu eru talsvert fleiri. Í eldra máli var orðið innstæða einnig haft um hö...
Svarið við þessari spurningu er einfalt: Já, það er vel hægt! Skilgreiningin á tvíræðni er þegar orð eða hugtak sem viðkomandi notar má skilja á tvo vegu en margræðni þegar það má skilja á fleiri vegu.
Í táknmálum eru til tákn sem má skilja á marga vegu og eins er hægt að segja eitt en meina annað.
Þessi or...
Í Tómasarguðspjalli eru varðveitt á annað hundrað munnmæla sem eignuð eru Jesú. Munnmælin minna um margt á spakmæli eins og Orðskviði Gamla testamentisins.
Tómasarguðspjall tilheyrir svonefndum apókrýfum ritum Nýja testamentisins en það hugtak er meðal annars notað um ákveðin rit sem urðu útundan þegar safnað v...
Með mag. jur. og ML í lögfræði er átt við meistarapróf í lögfræði, en bæði hugtökin koma úr latínu. Mag. jur. stendur fyrir magister juris, en magister þýðir meistari og juris er eignarfall eintölu orðsins ius, sem merkir réttur eða lög. Á Íslandi er mag. jur. notað um nemendur sem brautskrást með meistarapróf í ...
Hugtakið kynlíf (e. sexuality) hefur mjög víðtæka merkingu. Íslenska orðið er samsett úr tveimur orðum, kyn og líf, og er ljóst af því að það höfðar til þess hvaða lífi við lifum sem kynverur. Í því felst hvaða augum við lítum á okkur sjálf sem kona eða karl, afstöðu okkar til kynlífsmála, hvernig við hegðum okkur...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!