Ástæðan fyrir því að röddin breytist þegar maður andar að sér helíngasi er sú að það er miklu léttara en andrúmsloftið og hljóðbylgjurnar fara mikið hraðar í gegnum það. Þegar bylgjuhraðinn eykst vex einnig tíðnin og röddin verður skrækari. Um þetta er fjallað nánar í svari við spurningunni Hvers vegna breytist rö...
Vindgangur stafar af því að bakteríur í ristlinum sundra ómeltanlegum kolvetnum og mynda um leið vetni og koltvíildi. Gastegundirnar berast síðan út um endaþarmsopið sem prump. Í um þriðjungi manna myndast einnig metan en ekki er vitað af hverju það myndast í sumum en öðrum ekki.
Lyktin sem fylgir oft vindgangi...
Eins og nafnið bendir til, mætti ætla að Jökulsárlón sé „lón“ fremur en „stöðuvatn“. Annað orðið útilokar þó ekki hitt því samkvæmt íslenskum jarðfræðibókum er þarna um jökullón að ræða sem er ein gerð stöðuvatna.
Á ensku er talað um lake annars vegar og lagoon hins vegar. Skilgreiningar á þessu tvennu eru gja...
Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör og ber að taka öllu því sem kemur hér á eftir með ákveðnum fyrirvara enda þetta svar einungis gert til gamans.
Mjög viðamikla rannsókn þyrfti til að skera úr um óyggjandi svar við ofangreindri spurningu. Spurningin þrengir þó töluvert það sem þyrfti að skoða. Hér þarf ek...
Ein elsta og frægasta viðvörun við tóbaksnoktun á Íslandi er kvæði séra Hallgríms Péturssonar (1614-1674) „Tóbak róm ræmir …“1 og umvandanir séra Stefáns Ólafssonar í Vallarnesi (um 1619 – 29. ágúst 1688) sem segir í upphafi Tóbaksádeilu sinnar um 1640 „Læðst hefur inn í landið hrak, lýðir kalla það tóbak.“
Fá...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Ég er með fyrirspurn frá erlendu ferðafyrirtæki. Það spyr hvort að Íslendingar veiði hákarla í útrýmingarhættu. Vitið þið hver staðan á veiðum hér við land er?
Í svonefndum Washingtonsáttmála (CITES, Convention on International Trade in Endangered Species of Wild Fauna an...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Hver er þýðingin á "bioengineering" á íslensku? Er þessi fræðigrein iðkuð hér á landi?
Lífverkfræði (e. bioengineering) er fræðigrein sem samþættir líffræði og verkfræði við lausn ýmissa vandamála sem við stöndum frammi fyrir í dag. Hefðbundnu verkfræðigreinarnar byggja ...
Kaktusar eru svonefndar safaplöntur af kaktusætt (Cactaceae). Orðið kaktus kemur upprunalega úr forngrísku. Þeófrastos (um 371-287 f. Kr.), sem var fyrsti grasafræðingurinn, notaði það um þyrnótta plöntu sem ekki er vitað hver er.
Það má grilla kaktusblöð en nauðsynlegt er að fjarlægja þyrnana fyrst.
Til eru...
Yfirleitt er talið að breski verkfræðingurinn og uppfinningamaðurinn John Peake Knight (1828-1886) hafi fundið upp umferðarljósin. Knight var frá borginni Nottingham á Englandi. Hann fór ungur að starfa við járnbrautir og vann mikið að því að bæta öryggi og gæði járnbrautasamgangna. Hans er þó helst minnst sem upp...
Selena var mánagyðja Grikkja til forna og nafnið þýðir einfaldlega tungl á grísku. Samkvæmt goðsögum Grikkja átti hún tvö systkini, bróðurinn Helíos sem var sólguðinn og systurina Eos, gyðju morgunroðans. Foreldrar þeirra voru Þeia og Hýpeiron en Selena hefur þó einnig verið eignuð öðrum, til að mynda hinum ástlei...
Í grófum dráttum er plötum hljómsveita skipt í þrjá flokka eftir lengd: smáskífur, stuttskífur eða EP-plötur (extended play) og breiðskífur (LP; long playing).
Smáskífa (e. single) var upphaflega plata með allt að þrem lögum. Þær voru mikilvægari fyrir nokkrum áratugum en í dag, þegar fólk keypti oftar stakar ...
Margt er á huldu um heimsmynd norrænna manna en þó bendir ýmislegt til þess að þeir hafi talið jörðina vera hnöttótta.
Samkvæmt norrænu goðafræðinni var jörðin sköpuð af goðunum Óðni, Víla og Vé úr líkama jötunsins Ýmis. Í upphafi var ekkert nema Ginnungagap en um það segir í Völuspá:
Ár var alda,
það er ekk...
"Pish for thee, Iceland Dog! thou prick-eared cur of Iceland!"
("Svei þér! þú, Íslands eyrnasperrti hundur!")
(úr leikritinu Hinrik V. eftir William Shakespeare)
Íslenski fjárhundurinn nýtur mikillar sérstöðu í heimi hundaræktenda enda hefur þetta afbrigði verið einangrað frá öðrum afbrigðum hunda í...
Árið 1918 voru nöfnin Jón og Guðrún algengustu eiginnöfn á Íslandi, rétt eins og verið hafði öldum saman. Þessi nöfn báru höfuð og herðar yfir önnur nöfn í fyrsta manntalinu sem gert var á Íslandi árið 1703. Enn í dag eru þetta algengustu nöfn Íslendinga þótt yfirburðir þeirra séu ekki eins afgerandi og fyrr á tím...
Hér er gengið út frá því að átt sé við hvenær Homo, ættkvísl manna, hafi komið fram.
Í svari við spurningunni: Hvar í heiminum er talið að mannkynið sé upprunnið? eftir Haraldur Ólafsson kemur meðal annars fram að talið sé að fyrir fimm til sex milljónum ára hafi verið komin fram í Afríku tegund sem þróaðist t...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!