Stutt og laggott svar er já. Það er ekkert sem segir til um að ekki geti rignt samtímis úr tveimur skýjum sem eru mishátt á lofti.
Aftur á móti vaknar spurningin hve auðvelt er að greina eitt ský frá öðru, það er hvar endar eitt ský eða skýjalag og annað tekur við? Skýjaþekjan er oft lagskipt, það er eitt skýj...
Örnefnið Nollur er þekkt sem nafn á þremur stöðum í Þingeyjarsýslu:
Bæjarnafn í Grýtubakkahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu. Nafnið er ritað Gnollur („af gnoll“) í Auðunarmáldögum 1318 (Íslenskt fornbréfasafn II:447).
Eyðikot við Mývatn, einnig Nollsel (Þorvaldur Thoroddsen, Ferðabók I:288). Hvorttveggja segir hann ...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Bróðir minn sagðist hafa séð könguló með vængi um daginn, við vorum úti í garði og hann segist vera 100% viss um að þetta hafi verið könguló með vængi, eru til köngulær með vængi á Íslandi?
Nei, köngulær hafa ekki vængi og geta því ekki flogið líkt og skordýr (Insecta). ...
Í raun eru það margir samverkandi þættir sem skipta máli um hvernig mannvirki reiðir af í tilteknum jarðskjálfta. Hér má nefna gerð undirstöðu byggingar, form, efni, frágang, hönnun og viðhald. Miklu skiptir að hús virki eins og ein heild, sé vel tengt og fest við undirstöðurnar. Mörg dæmi eru um að bygging rífi s...
Flæðigos, oft einfaldlega kölluð hraungos, eru einkum af tvennu tagi. Annars vegar gos á sprungum sem eru frá nokkrum upp í tugi kílómetra á lengd, og hins vegar dyngjugos þar sem kvikan kemur að miklu leyti upp um eitt gosop. Strókar af glóandi kvikuflikkjum rísa tugi eða hundruð metra upp af gosopunum, en gosmök...
Fellibyljir eru skæðastir og algengastir á Kyrrahafi vestanverðu, norðan miðbaugs, frá dægurlínunni vestur til Filippseyja og Suður-Kína og norður til Japans. Á þessu svæði myndast að meðaltali um 20 fellibyljir á ári. Heldur færri, eða 10-12, myndast austan til á Kyrrahafi undan ströndum Mexíkó. Fellibyljir eru e...
Lengi vel var kirkjan Ægisif (Hagia Sophia) í Istanbúl (Konstanínópel, Miklagarði) stærsta kirkja heims. Keisari Rómaveldis, Konstantínus, lét byggja hana árið 325 og í 916 ár var hún notuð sem kirkja en sem moska í 481 ár eftir það. Kirkjan var gerð að safni árið 1934. Á sínum tíma var Ægisif ein stærsta bygging ...
Líkamsmassastuðull (e. body mass index, BMI) er algengasta tækið til að meta holdafar einstaklinga. Stuðullinn er reiknaður með því að deila í líkamsmassa ("þyngd") í kg með hæð í metrum í öðru veldi. Samkvæmt viðmiðunarmörkum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) teljast þeir vera í kjörþyngd sem hafa líkam...
Dagana 15.-18. janúar 2018 gefst landsmönnum einstakt tækifæri til að skoða gervitungl á Háskólatorgi en um er að ræða hátæknitungl sem notað er til að mynda jörðina úr mikilli hæð.
Margir ætla að gervitungl séu gríðarstór, sem þau hafa auðvitað verið og sum um tíu tonn að þyngd, en með aukinni þróun, og ekki s...
Snæfellsjökull nær upp í 1446 m hæð og er áttundi hæsti jökull landsins. Hæstur er vitaskuld Vatnajökull með Hvannadalshjúk, hæsta tind landsins sem rís 2110 (nákvæmlega 2110,6) metra yfir sjávarmál. Þar á eftir kemur Hofsjökull sem nær upp í 1800 metra hæð. Drangajökull er hins vegar lægstur af helstu jöklum la...
Loðfílar kallast hópur útdauðra fíla af ættkvísl sem nefnist Mammuthus. Leifar þessara stórvöxnu spendýra hafa fundist í jarðlögum allra meginlandanna nema í Ástralíu og Suður-Ameríku. Leifarnar hafa einungis fundist í jarðlögum frá Pleistósen-tímabilinu sem nær yfir tímann frá því fyrir 1,6 miljónum ára fram að l...
Ekki er alveg ljóst hvort átt er við hæð eða rúmmál þegar spurt er um stærsta eldfjall í heimi, eða jafnvel hvaða eldfjöll gjósa mest, en hér er gengið út frá því að átt sé við hæðina.
Hæstu eldfjöll í heimi eru öll í Andesfjallgarðinum í Suður-Ameríku. Andesfjöllin eru dæmi um fellingafjöll sem myndast hafa ...
Ummál hrings, $U$, er í beinu hlutfalli við geisla (radía) hringsins, $r$, samkvæmt jöfnunn$$U=2\cdot\pi\cdot r$$
Gríski bókstafurinn $\pi$ (pí) táknar hér óræða tölu sem er nálægt 3,14 eða 22/7.
Í jöfnunni felst að hringur með geislann 1 m hefur ummál sem er því sem næst 6,29 m. Einnig leiðir af þessu að umm...
Hæsta bunga Drangajökuls kallast Jökulbunga, 925 metra yfir sjávarmáli. Hægt er að velja um nokkrar leiðir upp á jökulinn og að Jökulbungu eins og lesa má um í ferðalýsingum Gísla Hjartarsonar leiðsögumanns á Ísafirði sem finna má á fréttavefnum bb.is.
Einn möguleiki er að hefja gönguna í Kaldalóni við Ísafj...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!