Blettatígur (Acinonyx jubatus) er rándýr af kattarætt og sprettharðastur allra dýra. Hann getur hlaupið á allt að 90 til 112 km hraða á klukkustund en þeim hraða getur hann aðeins haldið stuttar vegalengdir. Hann nýtir sér framúrskarandi hlaupagetu við veiðar en uppáhalds fæða hans eru gaseðlur og antilópur....
Eldsneytiseyðsla flugvéla er ýmsu háð. Hún fer meðal annars eftir gerð flugvélarinnar sem um ræðir, flughraða og -hæð og útihitastigi. Einnig skiptir vindhraði og vindstefna á hverri flugleið miklu máli, en háloftavindar geta verið mjög sterkir. Algengt er að vindhraði í flughæð sé um 55-65 metrar á sekúndu, sem e...
Bæði Hallormsstaðaskógur og Vaglaskógur eru enn að stækka að flatarmáli. Girðingin sem friðar Hallormsstaðaskóg er enn svolítið fyrir ofan efstu mörk skógarins og er birki enn að sá sér í átt að henni. Girðingin er í um 300 metra hæð yfir sjávarmáli og er greinilegt að það er ekki ofan þeirra skógarmarka sem veðu...
Hér er reynt að svara eftirtöldum spurningum:Hvað eru Petronas-turnarnir stórir? (Jónas Bergsteinn Þorsteinsson)
Hvað eru Petronas-turnarnir þungir? (Ísak Hilmarsson)
Hvert er rúmmál Petronas-tvíburaturnanna í Malasíu? (Ísak Már Símonarson)
Hvað eru gluggarnir stórir í Petronas-turnunum? (Sólmundur Gísli)
Í sv...
Latneska heitið á hesti er Equus caballus. Hestar eru hófdýr af ættinni Equidea en fræðimenn telja að tegundir af þeirri ætt hafi fyrst komið fram fyrir um 50 milljón árum.
Frumhesturinn var ólíkur þeim hestum sem við þekkjum í dag. Hann var mjög smávaxinn, aðeins um 30-60 cm á hæð. Hægt er að lesa meira um hes...
Almennt er talið að þyngsta risaeðla sem með vissu var uppi hafi verið finngálkn (Brachiosaurus) sem vó um 55 tonn og var um 25 m á lengd. Finngálkn var þó ekki lengsta risaeðlan þar sem trölleðla (Supersaurus) var um 42 m löng. Hún hefur líklega vegið um 50 tonn og því verið nokkru léttari en finngálknið.
Nýle...
Dvergmörgæsir (Eudyptula minor) lifa á ströndum Nýja-Sjálands og suðurhluta Ástralíu. Í Ástralíu eru þær stundum kallaðar 'fairy penguins' og á Nýja-Sjálandi eru þær kallaðar 'little blue penguins' eða bara 'blue penguins'.
Dvergmörgæsir lifa í Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Dvergmörgæsir eru minnstar allra mörgæsa ...
Brönugrös (Dactylorhiza maculata islandica) eru plöntur af brönugrasaætt (orchidacea). Þau eru algeng á láglendi víða um land. Brönugrös finnast þó ekki alls staðar, til dæmis ekki í innsveitum norðanlands, á suðurlandi milli Ölfusár og Markarfljóts, og suðausturlandi milli Mýrdalssands og Núpstaðar.
Brönugrös (...
Hér til hliðar má sjá viðvörunarmerki sem varar við brattri brekku upp á við. Sambærilegt merki er til fyrir bratta brekku niður. Á merkinu er halli brekkunnar gefinn upp sem prósenta. En hvað segir prósentutalan okkur?
Prósentan gefur til kynna hversu mikið vegurinn hækkar sem hlutfall af láréttri lengd. Þetta...
Vísindavefurinn rekur ekki njósnir og hefur því ekki beint svar á reiðum höndum um hernaðarleyndarmál eins og hér er spurt um.
Hins vegar getum við upplýst að stærsta kjarnasprengja sem sprengd hefur verið var 57 MT sovésk sprengja, Tsar Bomba, og var hún sprengd í 4 km hæð yfir Novaja Zemlja þann 30. október ...
Hér er einnig svarað spurningu Jóhanns Benjamínssonar, Er ekki hægt að finna upp leið til að framleiða óson?
Til eru leiðir til að framleiða óson. Einfaldasta aðferðin felst í því að leiða rafstraum í gegnum venjulegt loft sem inniheldur súrefni og köfnunarefni. Það veldur því að súrefnissameindir (O2) rofna í sú...
Colosseum, hringleikahúsið í Róm, var reist á árunum 70-82 e.Kr. Vinna hófst við það undir stjórn Vespasíanusar keisara en Títus keisari vígði það árið 80 með hundrað daga kappleikjum. Tveimur árum síðar lýkur Dómitíanus, þriðji keisarinn sem að byggingunni kom, við efstu hæð mannvirkisins sem þá er fullgert.
Ark...
Smellið hér til að heyra hljóðið í ísbirni.
Ísbjörninn, Ursus maritimus er að jafnaði stærri en náfrændi hans brúnbjörninn Ursus arctos. Nokkrar deilitegundir brúnbjarna geta þó orðið stærri og má þar helst nefna þær sem lifa á Kamtsjatka-skaganum í Síberíu og í Alaska.
Að jafnaði er fullorðinn ísbjörn um 4...
Já, gíraffar gefa frá sér hljóð. Þau eru hinsvegar lág, mynduð í kokinu, og heyrast varla og því hefur löngum verið haft fyrir satt að gíraffar væru hljóðlausir. Kálfarnar jarma líkt og lömb.
Gíraffar eru hæstu dýr jarðarinnar. Karldýrin geta orðið rúmlega 4 metra há (20 fet). Hæðina má þakka löngum fótum gíraf...
Eyruglur (Asio otus) lifa á norðlægum svæðum í Evrópu og Rússland og allt austur til Japan. Hún finnst einnig á tempruðum svæðum Norður-Ameríku. Í Norður og Austur-Afríku eru til staðbundnir stofnar.
Í sumar (árið 2003) var í fyrsta sinn staðfest varp eyruglu hér á landi, nánar tiltekið í Þrastaskógi í Grímsnes...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!