Þessi nöfn koma ekki fram í miðaldaritum, en talið er að fjall sem nefnt er Kolssonafjall í Landnámabók geti átt við þetta fjall (Íslenzk fornrit I:120-121).
Elstu tiltækar heimildir um nöfnin eru sóknalýsingar Hins íslenska bókmenntafélags um Setbergssókn, önnur frá 1840 eftir sr. Einar Sæmundsson, hin frá 18...
Örnefni með forliðnum þingmenn eiga yfirleitt við leið þingmanna til þings og frá þingi og þar með einnig oft alfaraveg. Hér verða nefnd nokkur þessara örnefna.
Aðeins eitt örnefni er á Suðurlandi, Þingmannagata í Villingaholtshreppi í Flóa en í Hróarsholti í Flóa var um skeið þriggja hreppa þing. Á Vesturlandi...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hvaðan kemur bæjarnafnið Gottorp í Húnaþingi? Getur verið að það þýði gott varp?
Gottorp er bær í Vesturhópi í Vestur-Húnavatnssýslu. Bæjarnafnið var gefið af Lauritz Christiansson Gottrup (1648-1721) lögmanni á Þingeyrum 1694 eða 1695 þegar hann byggði upp eyðibýlið...
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:Óskundi er sérkennilegt en áhugavert orð og kann að hafa fleiri merkingar en grikkur og skaði. Gaman væri að vita hvaðan orðið kemur inn í málið og hvaða fleiri merkingar það getur haft. Eins væri skemmtilegt að fá upplýsingar um hvort til sé orðið skundi, í ljósi þess hve alge...
Spurningin hljóðaði upphaflega svona:
Mig langar að heyra hvort það geti passað á ég sé i blóðflokki A en foreldrar minir báðir i O?
Já, það er mögulegt, en afar sjaldgæft. Blóðflokkarnir eru fjórir talsins; A, AB, B og O. Fólk í A-blóðflokki hefur A-mótefnisvaka á rauðum blóðkornum sínum, fólk í B-blóðflokki ...
Orðið bolla er tökuorð úr dönsku bolle frá 18. öld í merkingunni ‛kringlótt kaka’. Danir tóku orðið upp úr þýsku bol(l)e ‛kringlótt hveitibrauð’. Elsta heimild í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans er úr ritinu Stuttur Sida-Lærdómur fyrir gódra Manna Børn eftir I. H. Campe en hún kom út í Leirárgörðum 1799...
Upprunalega spurningin kom til Vísindavefsins í löngu máli og hljóðar svona:
Góðan dag. Hvers vegna er lítill stafur á eftir punkti hér í upptalningu á gömlu, íslensku mánuðunum? Mánuðirnir eru taldir upp, 1., 2., 3. og svo framvegis. Á eftir raðtölu kemur stór stafur í íslensku, ekki lítill. Ég er steinhis...
Sigurður Fáfnisbani var ein af sögufrægustu hetjunum á germönsku málsvæði. Í eddukvæðunum er hann sagður fyrri eiginmaður Guðrúnar Gjúkadóttur sem síðan gekk að eiga Atla Húnakonung. Ekki aðeins er fjallað um hann í norrænum eddukvæðum, Völsungasögu og Þiðreks sögu varðveittum í íslenskum handritum 13. og 14. alda...
Elsta kunna heimildin um prentun á íslensku er í „Rechnungsbuch der Sunte Annen Broderschop der Islandsfahrer in Hamburg“ fyrir árið 1530. Ekki er upphæðin há og Björn Þorsteinsson sagnfræðingur, sem rak augun í klausuna sagði: Af því að ekkert er getið um efni textans, þykir mér sennilegast, að hér sé um að ræða ...
Bob Marley eða Robert Nesta Marley eins og hann hét fullu nafni, fæddist 6. febrúar 1945 á eyjunni Jamaíku í Karabíska hafinu. Þekktastur er hann fyrir framlag sitt til reggítónlistar, en hann gerði lög eins og 'No woman no cry' og 'I shot the sheriff' ódauðleg.
Faðir Marleys var hvítur plantekrustjóri að nafni...
Örnefnið Goðafoss er að minnsta kosti til í 6 ám á landinu:Fyrst er að nefna Goðafoss í Hallardalsá í landi Klúku í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu.
Í Goðdalsá í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu. Í örnefnaskrá er talað um að Goði sem fossinn sé kenndur við sé heygður í Goða í túninu í Goðdal.
Í Hofsá í Svarfaða...
Orðasambandið að vera í essinu sínu, 'vera mjög vel fyrir kallaður, vera upprifinn' er fengið að láni úr dönsku, at være i sit es. Sama orðasamband er einnig til í þýsku, in seinem Esse sein.
Hvorugkynsorðið ess er þekkt í málinu allt frá því á 17. öld í merkingunni 'gott ástand'. Es í dönsku er talið eiga ræt...
Reistará er nafn á á og bæ í Eyjafirði og kemur fram í Landnámabók (Íslenzk fornrit I:255-256). Í jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns 1713 er nafnið Ristará (X:118) en í sóknarlýsingu frá um 1840 er nafnið Reistará (Eyfirzk fræði II:110) og svo hefur verið í jarðabókum síðan.
Merking árnafnsins er ef ...
Orðið fílapensill er tökuorð úr dönsku filipens. Það orð er aftur talið ummyndun úr lágþýsku fleirtölunni finnepins (et. finnepin) sem samsett er úr finne 'nabbi í húð' og pin 'pinni'. Orðið finne var einnig tekið upp í sænsku í þeirri merkingu. Bæði í þýsku og sænsku er Finne/finne nafn á þjóðinni sem byggir Finn...
Vogurinn heitir Elliðaárvogur að réttu lagi. Í Landnámabók er nefndur Elliðaárós fyrir neðan heiði (það er Mosfellsheiði) (Íslenzk fornrit I, bls. 384). Í sóknarlýsingu frá 1855 eftir sr. Stefán Þorvaldsson er ýmist nefndur Elliðaárvogur eða Elliðaárvogar (Gullbringu- og Kjósarsýsla. Sýslu- og sóknalýsingar. Rvk....
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!