Í svari við spurningunni Hvernig lítur sólkerfið okkar út á smækkaðri mynd í réttum stærðarhlutföllum? eftir Sævar Helga Bragason má sjá þvermál fyrir Merkúríus og jörðina. Af tölunum að dæma sjáum við að jörðin er stærri en Merkúríus þó að við getum ekki ályktað strax hve miklu stærri hún er. Áður en við lítum be...
Þrátt fyrir að eldgos geti verið ógnvænleg og valdi oft tjóni á mannvirkjum og stundum dauðsföllum eru þau skýrustu merki þess að plánetan okkar er við góða heilsu. Þetta kann að hljóma einkennilega í fyrstu, en við skulum reyna að útskýra þetta nánar.
Jörðin er enn heit og kröftug pláneta, en frá því að hún my...
Jörðin er sem næst kúlulaga, og geislinn (radíus) er 6370 km, þannig að sú er fjarlægðin niður í miðju hennar. Jarðkjarninn, sem reyndar er stór kúla með um 3470 km geisla, er talinn vera að mestu úr járni og nikkel - þar hafa menn fyrir sér annars vegar eðlismassa (eðlisþyngd) kjarnans, og hins vegar loftsteina s...
Flatarmál jarðarinnar er um það bil 511.186.000 ferkílómetrar.
Á síðunni The Nine Planets er hægt að sjá að þvermál jarðarinnar er 12.756 kílómetrar. Til að finna flatarmálið þarf að finna þvermálið í öðru veldi og margfalda það með tölunni p (pí) sem er hér um bil 3,14. Samkvæmt þessu er flatarmál jarðarinnar...
Á Vísindavefnum eru til nokkur svör sem skýra út af hverju jörðin, aðrar plánetur og stjörnur er hnöttóttar en ekki einhvern veginn öðru vísi í laginu, til dæmis kassalaga eða sexhyrndar eins og við teiknum oft stjörnu á blað.
Í svari við spurningunni Af hverju fara stjörnurnar í hringi og af hverju eru þær hnö...
Næsti loftsteinn lendir örugglega á jörðinni í dag!
Eins og fram kemur í fróðlegu svari Sævars Helga Bragasonar við spurningunni Hvað eru miklar líkur á því að geimgrýti rekist á jörðina? verður jörðin daglega jörðin fyrir ágangi milljóna smásteina sem eru á sveimi úti í geimnum. Flestir þessara steina eru afa...
Nei, segulpóll og norðurpóll eru ekki sama fyrirbærið. Norðurpóll og suðurpóll eru þeir pólar þar sem jarðmöndullinn eða snúningsásinn sker yfirborð jarðar í norðri og suðri og eru skilgreindir sem breiddargráðurnar 90°N og 90°S.
Hreyfingar segulpólsins á norðurheimskautinu.
Segulpólarnir sem finnast bæði í ...
Athugasemd ritstjórnar: Þegar þetta svar var upphaflega skrifað var Plútó flokkaður sem ein af reikistjörnum sólkerfisins. 24. ágúst árið 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga aftur á móti nýja skilgreiningu á reikistjörnum. Plútó fellur ekki undir hana og telst nú til dvergreikistjarna. Reikistjörnurnar er...
Neptúnus er áttunda og ysta reikistjarnan frá sól. Reikistjarnan er í um það bil 4,4 milljarða km fjarlægð frá jörð en það eru 4.400.000.000 km. Þar sem brautir reikistjarnanna umhverfis sól eru sporbaugslaga en ekki hringlaga er fjarlægð reikistjarnanna frá sól, og þá einnig fjarlægð á milli reikistjarnanna sjálf...
Geislun í umhverfi okkar er af ýmsu tagi og má flokka hana á marga vegu eins og rakið er til dæmis í svari eftir sömu höfunda við spurningunni Hvað er geislun og hvað eru til margar gerðir af henni? Þar er meðal annars fjallað um flokkun eftir því frá hvers konar efni eða efniseindum geislunin kemur. En einnig má ...
Íbúar jarðar eru rétt rúmlega 7 milljarðar, þar ef eru um það bil 27% börn, það er yngri en 15 ára. Gerum ráð fyrir að þeir myndi langa keðju sem hlykkjast fram og til baka nokkuð þétt þannig að á hverjum fermetra komast fyrir tveir fullorðnir eða fjögur börn. Börnin taka þá 472.500.000 m2 eða 472,5 km2. Plássið ...
Þetta er í rauninni einfalt reiknisdæmi.
Þvermál jarðar við miðbaug er 12.756 km en 12.713 km við pólana, eins og fjallað er um í svari Vísindavefsins við spurningunni Hvað er jörðin þykk?
Everest, hæsta fjall jarðar, rís 8,848 km yfir sjávarmál. Mesta sjávardýpi er hins vegar í Mariane djúpsjávarrennunni ...
Í svari við spurningunni Hvernig er þróun sólstjarna háttað? kemur fram að sólstjörnur verða til í risastórum gas- og rykskýjum í Vetrarbrautinni, en Vetrarbrautin er safn hundruð milljarða stjarna:
Stjörnur verða til í geysistórum gas- og rykskýjum, einhvers staðar í vetrarbrautunum. Við köllum slík ský stjörn...
Þessu má svara á tvo vegu.
1) Jörðin er í geimnum. Plöntur og dýr, þar á meðal menn, eru lífverur. Þannig má segja að allar lífverur á jörðinni séu geimverur. Ýjað hefur verið að þessu viðhorfi í spurningum á Vísindavefnum.
2) Jarðarbúar hafa ekki fundið sannanir fyrir verum á öðrum plánetum, né hafa menn u...
Þessi spurning leynir svolítið á sér. Sjónskyn mannanna er með því besta sem gerist í náttúrunni. Þegar við sjáum hlut í litum þá hefur hann í reynd þessa liti sem við sjáum; við getum til dæmis sannfært okkur um það með mælingum á litrófi endurkastaða ljóssins sem fæst þegar hvítt ljós skín á hlutinn. Og ef við g...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!