Mjólk er af flestum ekki talin valda tannátu, jafnvel í mörgum tilvikum talin draga úr henni. Aftur á móti er alþekkt að ungbörn sem sofa með pela, fá tannskemmdir framan á framtennur efrigóms.
Mjög fáar bitastæðar rannsóknir eru til þar sem áhrif mjólkurdrykkju á tannátu í fólki eru könnuð, enda er erfitt eða ...
Þegar fólk hefur silfurfyllingar í munni og bítur í álpappír myndast rafstraumur sem kallast galvanismi.
Galvanismi myndast í þessu tilfelli vegna snertingar ólíkra málma (ál og silfur). Málmar leiða vel rafstraum sem hefur áhrif á kviku (taugar) tanna og veldur sársauka (galvanic shock). Þessi sársauki er ...
Ef við vildum svara þessu beint með rannsóknum, væri einfaldast að láta einstaklinga í tilteknum hópi borða misjafnlega mikið af sælgæti án tannburstunar, og fylgjast síðan með þróun tannskemmda. Slík rannsókn mundi ekki fullnægja kröfum nútímans um siðfræði í vísindarannsóknum. Nú á dögum yrðum við því að láta ób...
Tannkul eða viðkvæmni í tönnum getur komið fram þegar fólk borðar eða drekkur eitthvað kalt eða heitt, sætt eða súrt. Snerting við tennur getur líka í sumum tilfellum valdið sársauka og einnig ef kalt loft leikur um þær.
Viðkvæmnin stafar af örvun frumna inni í örsmáum göngum sem eru í tannbeininu (e. dentin) ...
Röndótt tannkrem hefur löngum þótt dularfullt fyrirbæri. Aðferðin við að setja rauðar rendur í hvítt tannkrem, til dæmis, er þó sáraeinföld. Litunum er ekki blandað saman í túpunni, heldur við stútinn þar sem tannkremið kemur út.
Tannkremstúpunni er skipt í tvö hólf. Annað hólfið er stærra og í því er hvítt ta...
Að finna fyrir verk í enni þegar maður borðar eða drekkur eitthvað kalt hefur stundum verið kallað heilakul (e. brain-freeze). Þetta þýðir þó ekki að heilinn sé að kólna, hvað þá frjósa. Líklega væri nærri lagi að kalla þetta frekar íshausverk (e. ice-cream headache) þar sem algengast er að finna fyrir verknum þeg...
Í svari Höllu Sigurjóns við spurningunni Hvers vegna gerir tannkrem tennurnar hvítar og sykur þær svartar? segir meðal annars um tannsýklu:Utan á tennur setjast óhreinindi og litur sem gera þær dökkar. Þar á meðal er tannsýklan sem er mjúkur, þunnur hjúpur, myndaður úr matarleifum, bakteríum, munnvatni og dauðum f...
Tíu dýpstu vötn í heimi eru:
Baykalvatn í Síberíu sem er 1741 metra djúpt
Tanganyikavatn í Afríku sem er 1435 metra djúpt
Kaspíhaf í Asíu og Evrópu sem er 946 metra djúpt
Malawi (eða Nyasa) í Afríku sem er 706 metra djúpt
Issyk – Kul í Kirgizstan sem er 700 metra djúpt
Great Slave lake í Kanada sem er 614 ...
Tennur mannsins ganga í raun í gegnum 4 þroskunarstig: Það fyrsta hefst þegar á fósturstigi, en grunnefni tanna byrja að myndast þegar fóstrið er um það bil 6 vikna.
Þegar fóstrið er um 3 - 4 mánaða fer glerungurinn að myndast utan um tennurnar.
Þriðja stigið er þegar tennurnar koma upp í gegnum góminn eftir að ...
Tennur eru ekki bein, en þær sitja í beini. Tennur eru gerðar úr fjórum vefjum. Ysti vefurinn er svokallaður glerungur (e. enamel) sem er harðasta efni líkamans. Meginefni hans eða um 96% eru ólífræn steinefni, en afgangurinn er vatn og lífræn efni. Eðlilegur litur glerungs er allt frá ljósgulum til gráhvíts, en s...
Stutta svarið við þessari spurningu er „já“. Hins vegar er rétt að vekja athygli á því að það að drekka súrefni á vökvaformi er stórhættulegt og mundi líklega valda dauða þess sem reyndi það!
Mörgum finnst svalandi að drekka kalda drykki en við erum ekki vön að drekka vökva sem eru kaldari en við frostmark, sem...
Tannkrem eru hönnuð til að halda tönnunum hreinum og hvítum og í þeim eru ýmis efni sem gegna þeim tilgangi. Kannski er ofmælt að sykurinn geri tennurnar svartar en hann veldur tannskemmdum og þær verða oftast dökkar á litinn af fæðu eða öðru sem í munninn fer. Sykurinn er mikilvæg næring fyrir sýklana sem valda t...
Veðurhæðar er nú að jafnaði getið í hraðaeiningunni metrar á sekúndu (m/s) enda er hann nú mældur með hraðamælum. Áður var notast við mat sem byggðist á svokölluðum Beaufort-kvarða. Kvarðinn sá hefur lengst af verið 13 stiga, lægst núll, hæst 12. Við matið var notast við töflu sem ber áhrif vindsins saman við mæld...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!